Tölvumál - 01.04.1997, Side 5
TOLVUMAL
Félagssamþykktir
Skýrslutæknifélags íslands
1. Nafn og aðsetur
Heiti félagsins er Skýrslutækni-
félag íslands, skammstafað SÍ.
Aðsetur félagsins er í Reykjavík.
2. Markmið
Skýrslutæknifélag íslands er félag
einstaklinga, fyrirtækja og stofn-
ana á sviði upplýsingatækni.
Markmið félagsins eru
- að breiða út þekki ngu á upplýs-
ingatækni og stuðla að skyn-
samlegri notkun hennar
- að skapa vettvang fyrir faglega
umi'æðu og tengsl milli félags-
manna
- að koma fram opinberlega fyrir
hönd fólks í upplýsingatækni
- að stuðla að góðu siðferði við
notkun upplýsingatækni
- að styrkja notkun íslenskrar
tungu í uppiýsingatækni
3. Félagsaðild
Aðild að félaginu geta átt stofn-
anir, fyrirtæki og einstaklingar.
Aðild stofnana og fyrirtækja er
bundin einstakiingum á þeirra veg-
um. Hver skuldlaus félagi fer með
eitt atkvæði á fundum félagsins.
Félagar skulu fara að lögum og
siðareglum félagsins.
4. Félagsgjöld og fjármál
Aðalfundur ákveður félagsgjöld
fyrir eitt ár í senn.
Starfs- og reikningsár félagsins er
almanaksárið. Félagsjöld til fél-
agsins skulu greidd fyrir 1. apríl.
Framkvæmdastjóri annast tjárreið-
ur félagsins í samráði við gjaldkera
þess.
Endurskoðaða reikninga félagsins
skal leggja fyrir aðalfund til sam-
þykktar. Reikningar skulu vera að-
gengilegir félagsmönnum á skrif-
stofu félagsins 7 dögum fyrir aðal-
fund.
5. Stjórn
5.1 Stjórnskipulag
Aðalfundur fer með æðsta vald í
málefnum félagsins. Fundurinn
kýs félaginu stjóm sem annast mál-
efni þess milli aðalfunda. Aðal-
fundur kýs tvo skoðunarmenn
reikninga félagsins. Aðalfundur
setur félaginu siðareglur og kýs
siðanefnd. Aðalfundur kýs rit-
stjóra skv. gr. 6. Stjórn félagsins
skipar starfsnefndir eftir því sem
hún telur ástæðu til. Orðanefnd
skal skipuð á fyrsta fundi stjórnar.
5.2 Félagsstjórn
Stjórn félagsins skipa sex menn,
allir kjömir til tveggja ára og skulu
þeir ganga úr stjórninni á víxl.
Kjósa skal formann sérstaklega en
að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf
með sér verkum og kýs varafo-
rmann, ritara og gjaldkera. Tveir
varamenn skulu kosnir til eins árs
í senn.
Falli atkvæði jöfn á stjórnarfund-
um ræður atkvæði formanns.
Hætti stjórnarmaður í félaginu á
kjörtímabilinu skal varamaður
taka sæti hans til næsta aðalfundar,
en þá skal kjósa stjórnarmann í
stað hans til loka kjörtímabils
hans.
Tillögur um stjórnarmenn skulu
sendar stjórninni eigi síðar en
þremur dögum fyrir aðalfund.
Stjórn skal í upphafi starfsárs setja
sér starfsáætlun í samræmi við
markmið félagsins.
6. Nefndir
6.1 Siðanefnd
Siðanefnd skal skipuð þremur
mönnum og einum til vara, kjörn-
um til eins árs í senn. Tengist
nefndarmaður meintu siðbroti telst
hann vanhæfur og tekur vara-
maður sæti hans í nefndinni og
situr hann þar til málinu lýkur.
Hlutverk siðanefndar er að úr-
skurða í málum viðvíkjandi meint-
um brotum á siðareglum félagsins.
Siðanefnd tekur upp mál eftir
ábendingum eða samkvæmt kær-
um og er heimilt að taka upp mál
að eigin frumkvæði. Úrskurðir
siðanefndar eru öllum opnir.
6.2 Ritstjórn
Ritstjórn skal skipuð ritstjóra, sem
kosinn skal á aðalfundi til eins árs
í senn, og ritstjórnarmönnum sem
stjórn félagsins skipar í samráði
við ritstjóra. Ritstjórn velur vara-
ritstjóra úr sínum hópi.
Hlutverk ritstjórnar er að ritstýra
Tölvumálum, tímariti félagsins, og
annarri útgáfu á vegum þess.
6.3 Orðanefnd
Stjórn félagsins skipar formann
orðanefndar og aðra nefndarmenn
í samráði við hann, til tveggja ára
í senn.
Hlutverk orðanefndar er að efla og
móta íslenskan orðaforða og
íslenskt málfar í upplýsingatækni.
7. Aðalfundur
Aðalfund skal halda eigi síðar en
14. febrúar ár hvert og skal boða
hann bréflega með 14 daga fyrir-
vara. Dagskrá aðalfundar er eftir-
farandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrslur nefnda og starfshópa
3. Reikningarfélagsins
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun fél agsgj alda
6. Stjórnarkjör
7. Kosning tveggja skoðunar-
manna reikninga
8. Nefndakjör
9. Önnurmál
Kosið skal skriflega sé þess óskað.
APRÍL 1997 - 5