Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 8

Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 8
TOLVUMAL Lokaverkefni við tölvuháskólann Eflir Hebu Sburiónsdótlur Um þessar mundir eru nemend- ur TVÍ önnum kafnir við að vinna lokaverkefni, en þau eru unnin á síðustu námsönninni og eru há- punktur verklegrar þjálfunar þeirra í náminu. Lokaverkefni eru unnin í nánu samstarfi við fyrir- tæki og stofnanir utan skólans. Markmiðið er að nemendur vinni sjálfstætt að því að greina, hanna og smíða nothæfan hugbúnað og beiti til þess viðurkenndum aðferð- um við hugbúnaðargerð. Verkefnin endurspegla oft það nýjasta í hug- búnaðargerð og geta því verið áhugaverð fyrir aðra. Eg ætla að segja í stuttu máli frá þeim verk- efnum sem nú er unnið að, en þau verða kynnt og sýnd opinberlega í Tölvuháskólanum dagana 15. og 16. maí næstkomandi. Lifandi vefsíður Mörg fyrirtæki og stofnanir vilja auka þjónustu við almenning með því að veita aðgang að gögn- um sínum gegnum veraldarvef Internetsins. Þetta eru stundum nefndar lifandi vefsíður og við gerð þeirra koma ýmis hugbúnað- artól við sögu. Vinsældir forritun- armálsins Java koma svo sannar- lega fram í lokaverkefnunum því helmingur verkefnanna er skrif- aður í Java að einhverju eða öllu leyti. Java svipar til C++ hvað rit- hátt og forritunarstíl varðar, en með því eru búnar til skrár á tví- undarformi sem hægt er að keyra á mörgum tegundum tölva enda er það mjög vinsælt fyrir Internet- forritun. Auk Java er notað C++ ásamt HTML og mismunandi tækni fyrir samskipti og skil við gagnasafnskerfi og vefþjóna. Verið er að vinna verkefni sem mun veita íþróttaáhugamönnum og tippurum aðgang á veraldarvefn- um að miklu magni upplýsinga í gagnasafni Islenskra getrauna, en þar hafa safnast saman miklar upplýsingar um úrslit leikja, gengi liða, stöður í deildum og fleira sem tengist boltaíþróttum einkum á íslandi, Svíþjóð, Englandi og Ítalíu. Markmið hópsins er einnig að sýna úrslit á getraunaseðli vik- unnar jafnóðum og þau verða kunn og gefa notenda kost á að slá inn opinn seðil og fylgjast með því hvað hann hefur marga rétta. Bæði Náttúrufræðistofnun ís- lands og Hafrannsóknastofnun eru meðal samstarfsaðila og er verið að búa til upplýsingakerfi á verald- arvefnum fyrir þær. Ahugafólk um náttúrufræði, nemendur og kennar- ar munu geta fylgst með fréttum af nýlegum náttúrufyrirbærum, skoðað upplýsingar um bókakost, sérfræðirit og safngripi á Náttúru- gripasafni íslands. Ef vel tekst til verður jafnvel hægt að skoða safn- gripina f þrívíddarheimi á vefnum. Þeir sem hafa áhuga á upplýsing- um Hafrannsóknastofnunar um veiðistofna, veiðisvæði, afla og innbyrðis tengsl þessara þátta á Frh. á næstu síðu Frh. affyrri síðu nefnd þykir það slæmur kostur og býður nú upp á heitiðþjarki, skyll orðinu vinnuþjarkur. Drög að nýrri skilgreiningu líta þannig út: robot þjarki Vél sem venjulega er forritan- leg og er hönnuð til að fram- kvæma með sjálfvirkri stýringu verkþætti þar sem þarf að handleika hluti og flytja þá til. Önnur hugtök þar sem þjarki kemur fyrir og eru á borði orða- nefndar eru þessi: robotics þjarkafræði robot vision þjarkasjón robot system, robotic system þjarkakerfi manipulating industrial robot handlaginn iðnaðarþjarki knowbot, knowledge robot, ro- botic librarian þekkingarþjarki Web crawling infobot vefskrið- ilsþjarki (eða vefskriðsþjarki) Orðanefnd biður lesendur pist- ilsins um viðbrögð við þessum hugmyndum. Stefáin Briem er ritstjóri Tölvuorðasafns og starfs- maður orðanefndar Skýrslu- tœknifélags Islands. Netfang: stefan @ ismal. hi. is Veffang Tölvuorðasafns: http://www. ismal. hi. is/to/ 8 - APRÍL 1997

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.