Tölvumál - 01.04.1997, Side 15

Tölvumál - 01.04.1997, Side 15
TÖLVUMÁL Reynslusaga úr atvinnulífinu: Lykilatriði í markaðslegri sókn og rekstrarlegri hagræðingu Grein þessi er byggð á fyrirlestri sem haldinn var ávegum SI14. nóvember 1996 Ef VðarViðatssonoa Steinaiím Hdmsteinsson Inngangur Á síðustu árum hefur innan Olíufélagsins hf. ESSO verið unnið mikið uppbyggingarstarf í málaflokknum upplýsingatækni. Innan fyrirtækisins hefur orðið gagnger hugarfarsbreyting frá því að litið var á tölvur sem illa nauðsyn í það að nú er litið á upp- lýsingatæknina sem eina aðal- uppsprettu möguleika til mark- aðslegrar sóknar og rekstrar- legrar hagræðingar. Þetta hefur leitt til þess að staða upplýsinga- tækninnar hefur gjörbreyst innan fyrirtækisins, sem meðal annars endurspeglast í stöðu hennar innan skipurits félagsins. Fyrirtækið getur í dag vísað til verulegs árang- urs í markaðs og rekstrarlegu tilliti með tilkomu þessara áherslu- breytinga, sbr. Safnkortakerfi ESSO, sem er afar öflugt mark- aðstæki, og nýlokna gagngera endurgerð helstu vinnuferla fyrirtækisins. Aðstæður á samkeppnismarkaði olíufélaga Samkeppni olíufélaganna hefur í gegnum tíðina verið með nokkuð sérstökum hætti. Lengi gerði ís- lenska ríkið viðskiptasamninga við þáverandi Ráðstjórnarríki sem náði m.a. til kaupa á eldsneyti. Þessir samningar voru framseldir olíufélögunum, sem sáu um dreif- ingu innanlands og sölu. Verð elds- neytisins var undirlagt verðlags- ákvæðum; var nákvæmlega það sama hjá öllum olíufélögum og eins alls staðar á landinu. Á árinu 1992 var fyrirkomulagi innflutn- ings breytt þannig að olíufélögin hefja sjálf innkaup eldsneytis erlendis frá. Samtímis er verð- lagning eldsneytis gefin frjáls, þó með þeim takmörkunum að sama verð skuli gilda til sömu nota um allt land. Verðmyndun bensíns er þannig að innkaupsverð og flutningur til landsins er um 16% útsöluverðs- ins, opinber gjöld 70%, en allur dreifingar- og sölukostnaður inn- anlands, ásamt álagningu er ein- ungis 14%. Af þessu má ljóst vera að álagning olíufélaganna er hverf- andi hluti útsöluverðsins. Öll olíufélögin kaupa erlendis frá í svipuðu magni á svipuðum kjörum, svipaða vöru. Því er tak- markað hversu hatrömm verðsam- keppnin getur orðið á þessum markaði. Þessi markaður hefur þó síður en svo verið samkeppnislaus. I útgerðinni er barist um sérhvern viðskiptavin og á bensínmark- aðnum hefur sífellt verið bryddað Utsöluverð á ben isiui Opinber gjöl 70% Dreifing , sala , álagning 14% Innkaup , flutningur 16% Mynd #1 APRÍL 1997 - 15

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.