Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 16
o
V U M
upp á nýjungum, sbr. seðlasjálf-
salar, kortasjálfsalar, blýlaust
bensín, íblöndunarefni, viðskipta-
kort, breytt smávöruúrval, breyttur
og lengdur opnunartími eða
ímyndarátak. Því er það, þó verð
sé svipað á milli olíufélaganna, að
það er alls ekki merki um litla sam-
keppni, frekar hið gagnstæða.
Staða upplýsinga-
tækninnar innan
Olíufélagsins
Rekstur Olíufélagsins hefur í
gegnum tíðina gengið vel og af-
koma þess ekki versnað, þótt
seinni árin hafi samkeppnin aukist
til muna. Þessu er fyrst og fremst
að þakka að innan fyrirtækisins er
markvisst beitt aðferðafræði
markmiðastjórnunar og endur-
gerðar vinnuferla og með stuðn-
ingi upplýsingatækninnar er
fyrirtækið í dag 50 ára, síungt og
vel í stakk búið til að berjast á
síharðnandi markaði.
Skipurit Olíufélagsins er að
flestu leyti hefðbundið, nema hvað
viðkemur stöðu upplýsingatækn-
innar innan þess.
Það sem gerir skipuritið óhefð-
bundið er staða forstöðumanns
upplýsingatæknideildar, en hann er
hluti af framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins. Þetta fyrirkomulag er í
dag talin vera forsenda fyrir vel-
heppnaðri uppbyggingu upplýs-
ingatækninnar innan fyrirtækisins.
Því miður er það þannig enn í
mörgum fyrirtækjum að tölvu-
deildir eru lokaðar innan fjármála-
sviða þeirra og lítið notaðar til
annars en að vélvæða bókhald
hvers konar. Gróskan í upplýsinga-
tækni innan Olíufélagsins hefur
ekki hvað síst verið í markaðs-
tengdum málum, enda er það þar
sem fyrirtæki geta aflað sér sam-
keppnisyfirburða en ekki við
færslu bókhalds.
Markaðsleg nýsköpun með
upplýsingatækni:
Safnkort Esso
Samkvæmt þjónustukönnunum
segja 70% viðskiptavina bensín-
ESSO-Safnkort
ESSO-Fyrirtœkjakort
ESSO-Einkak
..Myiicr#3'
stöðva að staðsetning stöðvanna
ráði vali sínu á bensínstöð og þá
helst staðsetning nálægt heimili.
Þetta skýrir að mestu mismuninn
á markaðshlutdeild olíufélaganna.
Hlutdeild Olíufélagsins er á lands-
byggðinni mun meiri, enda með
fleiri útsölustaði þar en hin olíu-
félögin til samans á meðan á stór-
Reykjavíkursvæðinu er svipaður
fjöldi útsölustaða allra olíufél-
aganna og markaðshlutdeildin á
því svæði þess vegna svipuð. Þetta
þýðir að í bensíni er Olíufélagið
með um og yfir 40% markaðs-
hlutdeild á landsvísu en hin olíu-
félögin minna.
Samkeppni síðustu ára hefur
miðast við eitt af þrennu. I fyrsta
lagi hefur verið reynt að skapa sér
jákvæða ímynd meðal almennings,
sbr. „græðum landið með OLIS“,
„skógrækt með SKELJUNGI“ eða
„sækjum landið heim með ESSO“.
I öðru lagi hefur verið reynt að
bæta og auka þjónustuna við
viðskiptavinina í þeirn tilgangi að
fá þá til að koma frekar til eins
olíufélags en til annars og í þriðja
og síðasta lagi hefur verið reynt
að skapa sér einhverja sérstöðu á
markaðnum og er „Betra Bensín“
SKELJUNGs"og „Hreint Systern
3“ frá OLÍS dæmi um það.
Hingað til hafa þessi átök ekki
leitt til verulegra breytinga á mark-
aðshlutdeild, enda er þeim öllum
sammerkt að þau byggja ekki upp
16 - APRÍL 1997