Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 20
TOLVUMAL
með Dijkstra algríminu) í gegnum
safn af pípum. Sú leið er valin sem
lágmarkar summu kostnaðar píp-
anna á allri leiðinni. Rekstraraðili
fjölvarpsleiðstjóra gæti til dæmis
sett upp tvær pípur frá stjóra sínum
og notað aðra sem aðalleið og hina
sem varaleið og skilgreint hærri
kostnað fyrir hana.
Þegar notandi á MBONE net-
inu hefur sendingu á efni út á netið
þá skilgreinir hann hversu langt
hann vill að sending hans dreifist
með því að ákvarða svokallað
dreifing þeirra verður takmörkuð
við ákveðið svæði. Stærð svæðis-
ins ræðst af upphafsgildi pakkans
og þröskuldsgildi pípanna.
Einnig er hægt að takmarka
aðgang notenda að sendingum á
netinu með lyklun (e. encryption).
Notendur verða þá að þekkja
lykilorð að sendingunni til þess að
geta móttekið gögn og tekið þátt í
henni.
Til þess að spara bandvídd í
MBONE netinu var innleidd að-
ferð í fjölvarpsleiðstjórana sem
er leiðstjóranum, er að fylgjast
með, sendir stjórinn merki til næsta
stjóra um að nú vilji hann hætta
samskiptunum og fjölvarpspakkar
fyrir hópinn hætta að streyma á
milli leiðstjóranna.
Þannig er flutningsgeta netsins
nýtt á skynsamlegan hátt með sam-
nýtingu á meðal notenda og gögn
ekki send um fjarskiptahlekki á
milli leiðstjóra nema beiðni hafi
borist þar að lútandi frá notendum.
Flest forrit á MBONE netinu
nota frekar skeytasenditækni UDP
□ Vinnustöð
U Fjölvarpsleiðstjóri (e. multicast router)
“mrouted”
O Einvarpsleiðstjóri (e. unicast router)
= Pípa (e. tunnel)
Dæmi um MBONE tengingar
TTL-sildi (e. time to live). Hvern
pakka sem hann sendir frá sér
merkir hann með þessu gildi (t.d.
ttl=16 fyrir afmarkaðan hóp
ogttl=127 fyrir „global“ sending-
ar). Hver pípa í netinu fær líka sitt
fasta TTL gildi, kallað þrösk-
uldssildi hennar.
Þegar leiðstjóri fær til sín pakka
ætlaðan fjölvarpi skoðar hann
TTL gildi hans og þröskuldsgildi
allra pípanna sem hann er tengdur
og ef gildi pakkans er hærra en
gildi pípa byrjar hann á því að
lækka gildi pakkans um einn og
sendir síðan pakkann eftir þeim.
Ef hins vegar gildið er of lágt fyrir
allar pípurnar þá er pakkanum
hent. Þannig lækka gildi pakkanna
þegar þeir ferðast um netið og
kallast útilokun (e. pruning). Þessi
aðferð virkar þannig að leiðstjóri
sendir ekki pakka yfir pípu til
annars stjóra nema komið hafi
beiðni frá honum um að senda við-
komandi sendingu áfram eftir
pípunni til hans.
Þegar notandi vill tengjast
ákveðinni útsendingu á MBONE
netinu þá sendir hann beiðni til
þess fjölvarpsleiðstjóra sem hon-
um þjónar og stjórinn sendir síðan
beiðni áfram til næsta stjóra um
sendingu á fyrrnefndum gögnum.
Sá stjóri gæti þurft að senda beiðn-
ina áfram til næsta nágranna síns.
Þegar notandinn hættir að
fylgjast með útsendingunni sendir
hann merki til leiðstjóra síns. Ef
enginn annar notandi, sem tengdur
(e. datagram) en rásatengd sam-
skipti eins og TCR UDP er hent-
ugri leið fyrir gagnvirka margmiðl-
un þar sem menn geta ekki sætt
sig við miklar seinkanir en geta á
hinn bóginn sætt sig við örlítið tap
á gögnum, sbr. sendingar á hljóði
og hreyfimyndum.
Framleiðendur leiðstjóra bjóða
margir hverjir upp á fjölvarp.
Slíkir stjórar geta þá unnið með
„mrouted“ hugbúnaðinum sem
notar sér pípur og í framtíðinni
koma pípurnar til með að hverfa
og allir stjórar Intemetsins verða
fjölvarpsleiðstjórar. Hugmyndin
um pípurnar var enda í upphafi
hugsuð sem bráðabirgðalausn.
20 - APRÍL 1997