Tölvumál - 01.04.1997, Síða 21
TOLVUMAL
Notendaforrit
Þegar notandi tengir sig við
MBONE netið byrjar hann á því
að keyra upp forritið ‘sdr - ses-
sion directory’.
Sdr er nokkurs konar dag-
skrárgluggi fyrir netið. Þar getur
notandi séð lista yfir allar þær
sendingar/atburði sem eru í gangi
á netinu og hann getur tengst og
tekið þátt í. Hann getur séð hvort
slíkar sendingar noti mynd-,
hljóð-, texta- eða teiknisendingar
og hvers konar kóðunaraðferðir og
hjálparforrit eru notuð. Með því
að smella á eina af sendingunum
keyrir kerfið upp hjálparforrit og
notandinn er kominn í samband í
gegnum netið. Þá getur hann valið
á milli mynd-, hljóð, texta eða
teiknisendingar eða allt saman eftir
þeini bandbreidd sem hann hefur
aðgang að.
Notandi getur líka hafið nýja
útsendingu með ‘sdr’ og skilgreint
hversu dreifð sú sending skal vera
og á hvaða formi efnið verður sent
út (mynd, hljóð, ...). Hann
skilgreinir þá einnig hvaða hjálp-
arforrit hann notar fyrir útsend-
inguna.
Nú gæti einhver skilið sem svo
að sendingarnar á MBONE netinu
séu ekki gagnvirkar en það er nú
öðru nær því hjálparforritin sem
til eru bjóða notendum upp á fulla
gagnvirkni þannig að fólk getur
ekki aðeins fylgst með útsending-
um heldur tekið þátt í alvöru
spjallrásum eða notað tæknina t.d.
sem myndfundasíma. Reyndar er
það svo að það vantar tilfinnan-
lega forrit fyrir netið sem nota
mætti í „Teleconferencing“. Þar
hefði fyrirlesari fulla stjórn á því
hvenær hann gæti einn talað og
sent út hljóð og skýringarmyndir
út á netið og hvenær aðrir gætu
komið inn með fyrirspurnir. Þessi
miðstýrði eiginleiki er ekki til
staðar í neinu forriti sem höfundur
hefur séð eða lesið um, heldur geta
allir truflað sendingar hvenær sem
þeir vilja.
Sdr geymir einnig upplýsingar
um þær sendingar sem áætlaðar
eru á næstu vikum á netinu.
Vic - videoconferencing tool.
Þetta forrit sér um móttöku og
sendingu á hreyfimyndum. Það
getur kóðað og afkóðað skv.
nokkrum stöðlum, en oftast er
notaður H.261 enda er hann vel
útfærður í vic. Forritið getur einnig
notað vélbúnað sem er til staðar í
tölvunni til þess að sjá um kóðun/
afkóðun. Notandi forritsins getur
stjórnað því hversu marga ramma
hann sendir á sekúndu.Hann byrjar
á því að sjá alla þá sem taka þátt í
sendingunni í litlum römmum og
getur síðan stjórnað nokkuð stærð
og upplausn á hverjum og einum
þátttakenda. Forritið gefur líka
upplýsingar um móttekinn gagna-
straum frá hverjum og einum
(rammar/s, kb/s) og á hvaða 1P
netnúmeri þeir eru tengdir. Vic á
líka að geta afritað sendingar niður
á disk og spilað síðar.
Vat - visual audio tool. Vat sér
um móttöku og sendingu á hljóði.
Þegar forritið er keyrt upp birtist
listi af þeim sem eru tengdir og er
nafn þess sem talar hverju sinni
upplýst þannig að það fer aldrei á
milli mála hver talar. Notandi getur
hækkað og lækkað móttökustyrk
sinn og útsendingarstyrk með
sleðum (e. slidebars) og fengið
upplýsingar um þátttakendur. Vat
getur kóðað og afkóðað hljóð skv.
nokkrum aðferðum og má þar
nefna, GSM (13 kbps), LPC (8
kbps) og PCM (64 kbps).
VW; - whiteboard
wb eða krítartaflan er „bitmap“
teikniforrit þar sem margir notend-
ur teikna á sama blaðið á svipuð-
um tíma (e. document sharing).
Hægt er að teikna fríhandarteikn-
ingu, strik, hringi og kassa eða
skrifa texta. Teikniblaðinu er skipt
upp í mörg lög og fær hver tengdur
notandi úthlutað einu lagi. Þannig
er hægt að einbeita sér að því að
skoða hvað hver notandi hefur
teiknað eða skrifað og útiloka alla
aðra. Hægt er að hlaða Postscript-
eða textaskrám inn í forritið.
Krítartöfluna er líka hægt að keyra
í fyrirlestrarham þannig að ein-
ungis sá sem hóf sendinguna geti
teiknað og skrifað.
Ofangreind forrit eru öll að-
skilin þannig að notandi sem hefur
litla bandvídd inn í MBONE netið
getur valið að fylgjast með fyrir-
lestri með því að keyra aðeins upp
„vat“ og „wb“ án þess að þurfa
að keyra upp „vic“. Þetta er mjög
mikill kostur og gerir kerfið miklu
sveigjanlegra en ef öll notenda-
tilfelli væru saumuð saman í einu
forriti.
Fleiri notendaforrit eru til fyrir
MBONE, en þau sem nefnd hafa
verið eru mest notuð og eru til á
Intemetinu fyrir eftirfarandi „plat-
form“: Fyrir flest afbrigði af
UNIX (þar með talið LINUX),
Windows NT og Windows 95.
Frægar sendingar
Ein allra frægasta útsending á
MBONE netinu var 18. nóvember
1994 þegar sýnt var í 25 mínútur
frá Rolling Stones tónleikum sem
fram fóru í Dallas í Texas. Margir
ætla að þessi atburður hafi markað
tímamót á netinu þegar notkun
þess í viðskiptalegum tilgangi
hófst fyrir alvöru.
Fyrsta sendingin var hljóðsend-
ing frá fundi IETF (Internet Engi-
neering Task Force)í San Diego í
mars 1992. Þá var fylgst með á
20 stöðum.
Síðan hafa aðilar eins og Cisco
og Microsoft bæst í hópinn en þeir
senda út frá tækniráðstefnum
sínum. Einnig hafa aðilar í Evrópu
sem starfa á vegum rannsóknar-
áætlunar ESB í fjarskipta- og upp-
lýsingatækni sent frá ráðstefnum
sínum.
Einn fastur liður í dagskrá
netsins eru útsendingar frá rann-
sóknarstöð NASA, en þaðan eru
sendar fréttir af ferðum geimferj-
unnar og rannsóknum stofnunar-
innar.
APRÍL 1997 - 21