Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 25

Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 25
TOLVUMAL er með að notendum fjölgi úr 136.000.000 manns í 580.000.000 eftir fimm ár. Það var því ekki að undra að GSM búnaður væri til sýnis hjá fjöldamörgum aðilum. Rafhlöð- umar duga núna dögum saman og símarnir eru minni og léttari en nokkru sinni. Það er hægt að fá ýmsa afar sérkennilega síma. Einn framleiðandi sýndi frumgerð af tæki sem hringir samkvæmt munnlegum fyrirmælum og annar sýndi síma sem hefur innbyggt dverg-rápforrit fyrir tölvupóst og SMS smáskeyti. Enn annar sýndi GSM sem gengur fyrir sólarorku. Þó hægt sé að nota GSM fyrir gagnaflutning er hætt við að sumir staldri við þar sem hraðinn er að öllu jöfnu bara 9.600 bitar/sek og vesen að tengja saman tölvu og síma auk þess að vera dýrt í notkun. Til sýnis voru PC-kort í fartölvur sem eru í raun GSM símar og einnig fylgir hugbúnaður til að höndla tölvupóst, fax og SMS. Einnig voru til sýnis GSM símar með tölvusamskiptabúnað- inum innbyggðum. Bara snúru þarf á milli fartölvu og símtækis. Eitt símafyrirtækjanna sýndi 32 kbita/sek. tengingu milli GSM tækja og lifandi mynd var flutt á milli. Það er vík milli vina þar sem eru farsímakerfin í BNA annars- vegar og GSM í Evrópu hinsvegar. Núna er kominn á markað GSM sími sem jafnframt getur líka tengstPCS 1900 í Bandaríkjunum en handhafinn verður að vera áskrifandi bæði að GSM í sínu heimalandi og PCS í BNA til að nota tækið. Það var áberandi hversu margir sýningargesta voru með GSM síma og þýzku blöðin gerðu grín að þessu og birtu myndir af mas- andi bisnessmönnum á þrammi milli bása. Sú saga var sögð af íslendingi (ekki í blöðunum reynd- ar) sem þurfti að ná í félaga sinn og hringdi en sá stóð á bakvið hann. Símtalið fór semsagt frá Þýskalandi til íslands og tilbaka aftur til að tengja saman notendur sem voru meter frá hvor öðrum! Einmenningstölvur Hraðar tölvur með NT og Win- dows 95 í forgrunni voru langmest áberandi og MMX gjörvinn mjög í sviðsljósinu, ekki síst hjá Intel en fyrir utan að vera sérstaklega ætl- aður til notkunnar með margmiðl- unarefni heldur Intel því fram að allur hugbúnaður vinni 20-30% hraðar með MMX. Nokkuð var um agnarsmáar tölvur, til að mynda Libretto frá Toshiba sem er innan við 1 krló og keyrir Windows 95. Philips var einnig að sýna svipaða tölvu sem þeir kalla Velo. Einnig voru til sýnis fjölmargir næfurþunnir en jafnframt skarpir og stórir tölvuskjáir, byggðir á TFT eða gastækni. Til þessa hafa þunnir kristalskjáir verið bundnir við fartölvur. Núna fást mun stærri skjáir með samskonar tækni og hafa þeir sumir hverjir mikla skerpu og allt bendir til að þessi tækni taki við hinum risavöxnu myndlampa-skjám sem allir hafa á borðum sínum í dag, og ekki er heldur ólíklegt að draumurinn um sjónvarp-uppi-á-vegg rnuni rætast þegar þessi tækni nær flugi. DVD var í sviðsljósinu og til sýnis vora fram- eða fyrstu útgáfur af spilurum en þessi tækni gæti tekið við af CD-ROM á skömmum tíma enda diskastærð og útlit það sama en plássið margfalt meira. Einmenningstölvur vora til sýnis sem höfðu DVD-ROM drif sem einnig geta lesið CD-ROM og sömuleiðis var verið að sýna DVD spilara fyrir bíómyndir sem jafn- framt geta spilað CD Audio. Motorola sýndi mjög hraða Macintosh-klóna og einnig Be- stýrikerfið en það getur keyrt MacOS í glugga. í blaðinu The European var sagt eftir sýninguna að klukku- hraði í nýjum einmenningstölvum yrði 400 MHz um næstu jól og að um mitt ár 1998 yrði algeng diskastærð 8 Gígabæti. Videotækni tekur framförum Margir sýndu myndfundabún- að og ein athyglisverð þróun þar er tenging milli tölva um staðamet. Sýnt var hvemig tengja má á milli tölva á staðarneti með góðri bandbreidd en hver notandi getur jafnframt komist í samband við NT miðlara sem hefði ISDN búnað og sá gat hringt um síma- kerfið til að koma á myndfundi. Það væri því óþarfi að hafa ISDN línu til hvers notanda. Einnig eru í sjónmáli kerfi til að tengja myndfund með góðum gæðum um Internetið og nota til þess samtengingar sem kallast „multicasting“. Núna er kominn nýr staðall fyrir skjalaskipti milli tölva meðan myndfundur stendur og kallast hann T. 120. Á sýningunni mátti sjá þetta í raun þegar tengt var á milli tækja frá ólíkum framleiðendum. Öðruvísi tæki IBM var að kynna fyrirbæri sem kallast Personal Area Net- work en um er að ræða tæki sem notendur bera á sér og gengur fyrir orku sem það fær frá líkamanum. Not fyrir þetta væru til að mynda einskonar rafeindanafnspjald þar sem nægði að menn tækjust í hend- ur til að skiptast á helstu upplýs- ingum. IBM telur tæknina henta á spítulum þar sem sjúklingar bæru á sér svona búnað og eins líka í verslunum til að greiða fyrir vörar og þjónustu með því einu að taka í hendina á kassadömunum að loknum kaupum. Lítið tæki sem heilmikið var skrifað um var nokkurs konar penni sem getur þýtt texta. Hann APRÍL 1997 - 25

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.