Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 27
TOLVUMAL
Ný kynslóð mótalda
Eftir Óbf Óm Jónsson
oa Sveri Ótafeson
Inngangur
Nú er komin á markað ný kyn-
slóð mótalda sem ná allt að 56 kb/
s frá símstöð til notanda en allt að
33,6 kb/s frá notanda upp í sím-
stöð. Mótöld þessi tengjast hefð-
bundnum talsímalínum en eru
merkileg fyrir þær sakir að þau
nýta sér það að símstöðvarnar í
símkerfinu í dag eru stafrænar.
Þessi tækni er síðasti áfangi þeirrar
hraðaaukningar sem við höfum séð
í mótöldum á síðustu árum. Það
verður einfaldlega ekki sent með
meiri hraða yfir þær símalínur sem
ætlaðar til flutnings á tali öðruvísi
en að skipta um endabúnað í sím-
stöðvum.
í þessari grein er fjallað um
þessi nýju mótöld og þá tækni er
þau byggja á. Alþjóðlegur staðall
fyrir þessi mótöld hefur enn ekki
verið gerður, en sá staðall er höf-
undar þessarar greinar hafa unnið
að hjá Rockwell Semiconductor
Systems kallast K56. í greininni
munum við því kalla þessi mótöld
K56 til aðgreiningar frá V.34
mótöldum sem hvað útbreiddust
eru í dag.
Mótöld fram til þessa
Talsímakerfið er meira en
aldargamalt þar sem það er elst í
heiminum, og í því liggur gífurleg
fjárfesting bæði í lögnum og í
endabúnaði. Það kemur því ekki á
óvart að menn hafi horft til þess
að nýta fyrirliggjandi símkerfi
þegar tölvubyltingin gekk í garð
og við blasti að tengja saman tölv-
ur sem ekki voru staðsettar í sama
húsi.
Símkerfið er hannað til flutn-
ings á tali sem má með góðu móti
flytja á bandtakmarkaðri rás með
hleypisviði frá 100Hz - 3600Hz.
Þó svo símavírinn sem slíkur beri
auðveldlega miklu breiðara band
(allt upp í 400kHz) þá eru í sím-
stöðvunum síur sem takmarka
talmerkið við fyrrgreint band.
Mótöld eru tæki sem taka við
stafrænum gögnum {0 eða 1} og
nota þau til að móta/ákvarða hlið-
rænt merki sem sent er yfir venju-
lega talsímalínu. Á hinum endan-
um breytir móttökumótaldið hlið-
ræna merkinu í stafræn gögn. Það
sem takmarkar fyrst og fremst
sendihraðann er hin litla band-
breidd sem símkerfið úthlutar mót-
aldinu. Hliðræna merkið sem það
býr til má ekki fara út fyrir þetta
tíðniband því annars kemst það
ekki til skila.
Fyrstu mótöldin sem fylgdu
alþjóðlegum staðli voru svokölluð
V.21 mótöld en sendihraði þeirra
var 300 b/s. Síðar komu V.22 með
sendihraða 1,2 kb/s, V.22bis með
2,4 kb/s, V.32 með 9,6 kb/s,
V.32bis með 14,4 kb/s og nú síðast
V.34(bis) með sendihraða 28,8 kb/
s (33,6kb/s).
Sendihraðinn fór úr 2,4kb/s
árið 1980 í 28,8kb/s árið 1994.
Hvað breyttist? Fyrst og fremst
má þakka bættu símkerfi, ásamt
framþróun í fjarskiptafræðunum
og svo einnig framþróun í hálf-
leiðaratækni sem gerði kleift að
beita þessum nýju aðferðum fjar-
skiptafræðanna í rauntíma. Við
búum enn við sömu bandtakmörk-
un en höfum meira reikniafl í mót-
aldinu til að keyra þróaðri aðferðir
sem ná að nýta talsímarásina miklu
betur en fyrstu mótöldin gátu.
Sem dæmi má nefna að í V.34
mótaldi er sérhæfður merkjareiknir
og örtölva sem keyra 35-50 milljón
Mynd 1. Uppbygging stafrœns símkerfis.
APRÍL 1997 - 27