Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 29
TOLVUMAL
Venjulegt
8-bita
kóöaorð
Stafrænt
8-bita
kóöaorö
stakræn sýni
merkisins
* Afkóðari
D/A+sía
Símstöð
Símstöö
* Lína
stakræn sýni
merkisins
* Sía+A/D
I
Mótald IÞ
stakræn sýni
merkisins
Brúunar-
sía
Mótald IÞ
Mynd 3. Mismunandi línur inn til Internets-þjónustuaðila
mótaldi IÞ. Mynd 3. skýrir þetta
nánar.
í venjulega tilfellinu er IÞ með
hefðbundna símalínu inn til sín og
V.34 mótald á enda hennar. Merkið
sem V.34 mótald notandans sendir
kemur á stafrænu formi upp í þá
símstöð sem næst er IÞ. I símstöð-
inni er 8-bita kóðaorðunum breytt
á hliðrænt form og þau send yfir
símalínuna til IÞ. í mótaldi IÞ er
hliðræna merkinu aftur breytt í
stafrænt merki sem mótaldið síðan
vinnur á og finnur út hvaða gögn
verið var að senda.
í síðara tilfellinu er IÞ með staf-
ræna línu frá símstöðinni. Þannig
getur hann fætt V.34 mótöldin með
kóðaorðunum úr símstöðinni og
sleppt D/A breytingunni í símstöð
og A/D breytingunni í V.34 mót-
aldinu. Þegar V.34 veit kóðaorðin
þá veit það útslög merkisins, og
með einfaldri brúunarsíu höfum
við stakræn sýni merkisins sem
V.34 rnótald notandans var að
senda.
Hvað vinnst svo með þessu?
Við fækkum línum inn í hús (sam-
einum margar talsímalínur í færri
stafrænar), fækkum truflanavöld-
um og einföldum flutning. V.34
mótöld bjóða upp á þennan mögu-
leika og margir IÞ nýta sér hann.
Tökum eftir að nú er staðan
breytt. Flutningur gagnanna er
stafrænn alla leið nema frá notanda
upp í símstöð. Spurningin er þá
hvort ekki sé hægt að nýta sér þetta
einhvern veginn til að auka hrað-
ann? Svarið er jákvætt, það er
hægt er að nota sér þetta til að
komast hjá skömmtunarskekkjunni
og auka hraðann þar með.
Grunnhugmynd á bak
við K56 mótaldið
Með því að nýta sér skömmtun-
arpunkta D/A breytunnar í sím-
stöðinni sem leyfileg sendiútslög
má fræðilega senda 64kb/s í báðar
áttir. Rannsóknir hafa þó aðallega
beinst að leiðinni frá IÞ niður til
notanda og liggja þar tvær ástæður
að baki
1. )Almennt er meiri þörf fyrir
aukinn sendihraða frá IÞ til
notanda.
2. ) Tæknilega einfaldara viðfangs
Til að byrja með er reiknað með
að V.34 verði notaður í sendiáttina
frá notanda til IÞ. Við skulum líta
á sendinguna frá IÞ og niður til
notanda. Mynd 5 sýnir blokkmynd
afkerfinu.
IÞ þarf að senda notandanum
runu af bitum. Bitarunan fer yfir
stafræna tengingu alla leið frá IÞ
að símstöðinni næst notanda.
Símstöðin túlkar þessa bita sem
runu af 8-bita kóðaorðum sem hún
notar til að velja útslagA úr mengi
256 leyfilegra útslaga. Sendur er
púls með útslagi An , og á línuna
fer An p(t) þar sem p(t) er impúls-
svörun D/A breytunnar.
I móttökunni er framkvæmd
síun og merkinu safnað því sem
næst í miðju sendipúlsanna. Eftir
söfnun og skömmtun eru sýnin
borin saman við leyfileg útslög og
fundið það leyfilega útslag sem fer
næst sýninu. Þegar við vitum
útslagið þá vitum við bitana sem
sendir voru.
Ef við gætum greint á milli allra
256 mismunandi útslaga í móttök-
unni þá gætum við sent 64 kb/s.
Það er því miður ekki raunhæft en
þessa aðferð má nota til að ná
umtalsvert meiri hraða en V.34
nær. Við tökum eftir að símkerfið
er í raun 256-PAM (púlsmótunar)
kerfi og það erum við að nýta
okkur. Með því losnum við undan
áhrifum skönnntunarskekkjunnar
sem hrjáir V.34.
APRÍL 1997 - 29