Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 8

Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 8
TOLVUMAL Einstök ráöuneyti F orsætisráðuney ti Faghópar ráðuneyta Samráðshópur ráðuneyta og Alþingis Fundir ráðuneytisstjóra Málaskrár- Verkefnis- nefnd stjórn Nefnd uin (Ritstjórn) I—* ‘ Ritstjórnir I ■<-1---- ráðuneyta I Samráðshópur sveitarfélaga, atvinnulffs o.fl. Ráðgjafahópur: Rut-nefnd heimila er til tölva með mótaldi. Með því að bera saman niðurstöð- ur þessarar könnunar og könnun- ar sem framkvæmd var í nóvem- ber 1997 kemur í ljós að notkun Internetsins hér á landi vex rnjög hratt. Spurt var um ýmsa aðra þætti sem varða tölvunotkun og verða niðurstöður kynntar opin- berlega þegar búið er að vinna úr könnunni í heild. Hvatt til náms og þátttöku í upplýsingasamfélaginu Skortur á tölvumenntuðu fólki á vinnumarkaði er staðreynd og fyrirsjáanlegt er að slíkur skortur verði viðvarandi ef ekkert er að gert. Verkefnisstjórn hefur skoðað þessi mál og sett fram tillögur um aðgerðir. Einnig hefur verið útbú- inn bæklingur sem m.a. verður dreift til nemenda á framhalds- og háskólastigi. Markmið þessa bæklings er að hvetja fólk á öllum aldri til náms á sviði upplýsinga- tækni. Fjallað er um margbreyti- leika þeirra starfa sem bjóðast þeim sem leggja upplýsingatækn- ina fyrir sig og mikilvægi þess að allir tileinki sér þá færni sem þarf til að geta notað tæknina hvaða atvinnu sem þeir kjósa að stunda. Einnig er bent á að störf á sviði upplýsingatækni henta konum ekki síður en körlum. Vandi vegna ártalsins 2000 Flestum eru nú kunnug þau vandamál sem fylgja ártalinu 2000. Verkefnisstjórn, RUT-nefnd og Ríkiskaup hafa samræmt að- gerðir sínar á þessu sviði. Nú vinna þessir aðilar saman að verkefnum sem komið geta ríkis- fyrirtækum, einkafyrirtækjum og sveitarfélögum að gagni við lausn þessa vanda. Meðal annars er fyr- irhugað að kanna stöðu þessara mála hjá ríkisfyrirtækum, dreifa fréttabréfum til fyrirtækja og sveitarfélaga, halda ráðstefnu og setja upp gagnagrunn með upp- lýsingum um hvort vél- og hug- búnaður á íslenskum markaði ræður við ártalið 2000. RUT-nefnd Verkefnisstjórn hefur sér til ráðuneytis ráðgjafanefnd sérfræð- inga á sviði upplýsingatækni. í samráði við fjármálaráðuneyti hefur verið ákveðið að RUT- nefnd, sem um árabil hefur starf- að á vegum fjármálaráðuneytis, taki að sér ráðgjafahlutverk fyrir verkefnisstjórn. Við þessa breyt- ingu víkkar starfsvið nefndarinn- ar á þann rnáta að það er ekki lengur takmarkað við ríkissstofn- anir og ráðuneyti. Helstu verkefni sem nefndin er að fást við eru út- gáfa á nýrri og endurbættri inn- kaupahandbók fyrir upp- lýsingatækni, rnótun til- lagna um notkun tölvu- pósts í opinberum stofn- unum, samvinnuverkefni vegna ártalsins 2000 og skipulag endurmenntunar sem stuðlar að því að koma útboðsstefnu ríkis- ins í framkvæmd. Samráðshópur ráðu- neyta og Alþingis Settur hefur verið á fót sanrráðshópur ráðuneyta og Alþingis sem er vett- vangur samstarfs þessara aðila á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Hópur- inn vinnur með verkefnisstjórn- inni að því að koma stefnu ríkis- stjórnarinnar í framkvæmd og fjallar um verkefni sem krefjast samræmingar milli ráðuneyta og Alþingis. Einnig kemur hann að reglulegri heildarendurskoðun stefnunnar og árangursmati. Samráðshópur ráðuneyta og Alþingis er skipaður fulltrúum allra ráðuneyta ásamt fulltrúa Al- þingis. Þau verkefni sem hópur- inn fæst við eru fjölbreytileg og varða m.a. stjórnarráðsvefinn og málaskrá ráðuneyta en mikilvæg- ustu verkefnin nú felast í sam- ræmingu tillagna ráðuneyta vegna fjárlagagerðar. Samráðshópur sveitarfélaga, atvinnulífs og launþega Akveðið hefur verið að óska eftir samráði við fulltrúa sveitar- félaga, atvinnulífs og launþega um málefni upplýsingasamfélags- ins og er nú verið að undirbúa stofnun þessa hóps. Faghóparráðuneyta Komið hefur verið upp föstum farvegi innan hvers ráðuneytis fyrir þróun upplýsingasamfélags- ins. Slíkur farvegur er nauðsyn- legur til þess að tryggja að stefna ríkisstjórnarinnar verði útfærð á vettvangi hvers ráðuneytis, end- 8 - MAf 1998

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.