Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 15
TÖLVUMÁL fjarskiptastofnun er ætlað að hafa umsjón með framkvæmd fjar- skipta- og póstmála hér á landi í samræmi við lög um stofnunina sem og lög um fjarskipti og póst. Póst- og fjarskiptastofnun ber að gefa út rekstrarleyfi fyrir fjar- skiptastarfsemi, en setja rná ýmis skilyrði fyrir leyfisveitingu, sem m.a. hafa það að markmiði að tryggja að leikreglurnar, sem áður er getið, verði virtar. Rétt er að geta þess að í vissum tilfellum er stofnuninni heimilt að takmarka fjölda leyfishafa á einstökum þjónustusvæðum og gildir það fyrst og fremst, þegar um er að ræða takmarkaðar auðlindir svo sem tíðnisviðið, sem er til ráðstöf- unar fyrir þráðlausa þjónustu. Ymis verkefni, sem tengjast al- mennri stjórnsýslu á fjarskipta- sviði, hafa verið flutt frá Pósti og síma fyrrverandi til Póst- og fjar- skiptastofnunar og má nefna mál, sem tengjast EES og öðrum alþjóða- málurn og almennt eftirlit. Aður var búið að flytja málaflokkana tíðni- mál, gerðarsamþykki, tækjaleyfi og tæknilegt eftirlit til Fjarskiptaeftir- lits ríkisins, sem nú er hluti Póst- og fjarskiptastofnunar. Til að tryggja að leikreglur verði haldnar hefur Póst- og fjar- skiptastofnun ýmis eftirlitsúr- ræði, m.a. • Rétt til að krefja ieyfishafa upp- lýsinga um alla þætti starfsemi þeirra • Rétt til að krefjast ársreikninga, milliuppgjörs, yfirlýsinga end- urskoðenda o.fl. • Heimild til að krefjast úrbóta á lélegri fjárhagsstöðu, ef hætta er talin að leyfishafi geti ekki uppfyllt skyldur, sem mælt er fyrir um í rekstrarleyfi • Aðgang að húsnæði í eftirlits- ferðum án dómsúrskurðar • Heimild til að beita dagsektum fyrir vanrækslu við að uppfylla skilyrði eða kvaðir • Svipting leyfis við ítrekuð brot að undangenginni viðvörun. Rekstraraðilar, sem ekki eru sáttir við úrskurð Póst- og fjar- skiptastofnunar geta vísað málum til 3. manna úrskurðarnefndar, sem skipuð er af samgönguráð- herra. Formaður hennar skal vera tilnefndur af hæstarétti, annar nefndarmaður er tilnefndur af Verkfræðingafélagi íslands, en hinn þriðja skipar ráðherra án til- nefningar. Auk þeirra verkefha, sem getið hefur verið, á Póst- og fjarskipta- stofnun að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld og ráðuneyti á sviði fjarskipta. Þar með getur stofnun- in hugsanlega beitt sér fyrir ítar- legri stefnumörkun um fjarskipti á opinberum vettvangi. Það er ein afleiðing hins breytta umhverfis að nauðsynlegt er að ríki og at- vinnulíf eigi sér fastmótaða stefnu að því er varðar fjarskipti og þróun þeirra og fyrirtækjum í þessum geira þykir örugglega ekki verra að vita hvert skipstjór- inn ætlar að taka stefnuna. Markaðurinn að fengnu frelsi Nokkur Evrópulönd hafa þeg- ar fengið reynslu af opnum fjar- skiptamarkaði, vegna þess að lög- gjöf þeirra var breytt fyrr en kraf- ist var af ESB. Sú reynsla sýnir að ný fjarskiptafyrirtæki eiga erfitt uppdráttar í samkeppninni við fyrri ríkisstofnanir. Þetta er ef- laust ástæða þess að fram- kvæmdastjórn ESB leggur í til- skipunum sínum miklu meiri kvaðir á fjarskiptafyrirtæki með markaðsráðandi stöðu en á nýlið- ana, en hinir síðarnefndu telja samt ekki nógu langt gengið og vísa gjarnan til þess að þeir verða að byrja frá grunni að byggja net og þjónustu, en fyrri ríkisfyrir- tæki sitji í blómlegu búi. Það er eftirtektarvert í þessu sambandi að það hefur lítið sem ekkert ver- ið til umræðu að kljúfa fyrri síma- fyrirtæki í net- og þjónustufyrir- tæki, enda þótt oft sé krafist reikningslegs aðskilnaðar á net- starfsemi frá allri þjónustu. Inn í þetta blandast ótti við það að veikja fyrirtækið, sem hefur markaðsráðandi stöðu, því að það kann að leiða til innrásar erlendra fyrirtækja á markaðinn. Það vekur athygli, að þegar erlend símafyrir- tæki hafa fengið samkeppni heima fyrir, grípa þau gjarnan til þess ráðs að sækja inn á erlenda markaði til þess að bæta sér upp tekjumissinn heima fyrir. Þá er það ýmist að myndað er bandalag með fyrrverandi ríkisstofnun í landinu eða einhverju hinna nýju fyrirtækja á markaðinum. Slík bandalög hafa verið áberandi þáttur í fréttum síðustu ára af er- lendum fjarskiptamörkuðum, en árangur þeirra hefur vægast sagt verið misjafn. Það má hins vegar vera ljóst að myndun alþjóðlegra viðskiptabandalaga getur hæglega leitt til fákeppni, sem margir telj- ast síst vænlegri kost en fyrri rík- isrekstur. Gústav Arnar er forstöðumaður Póst- og fjarskiptastofnunar. MAÍ 1998 - 1 5

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.