Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 21

Tölvumál - 01.05.1998, Blaðsíða 21
TÖLVUMÁL 4lá ekki er hægt að kaupa þau eða flytja milli fyrirtækja. Innlendar og erlendar kannan- ir sýna hins vegar að bókhalds- og upplýsingakerfi fyrirtækja eru óhentug þegar kemur að því að láta stjórnendum í té upplýsingar sem nothæfar eru sem grundvöll- ur ákvarðanatöku og stjórnunar. Þetta má rekja til þess m.a. að vinnslukerfi fyrirtækja eru ekki hönnuð fyrir upplýsingagjöf til stjórnenda. Þannig eru t.d. gögn sem sótt eru beint í vinnslukerfin ekki nægjanlega samhæfð til að vera grundvöllur ákvarðanatöku, of langan tíma tekur að afla þeirra og loks eru þau sjaldnast á hent- ugu formi. Fyrirtæki sem ekki bregðast við þessari stöðu með því að stór- auka og bæta aðgang stjórnenda að upplýsingum eiga hreinlega á hættu að lúta í lægra haldi fyrir samkeppnisaðilum. TÍR auðveldar fyrirtækjum að bregðast við framangreindu með því að veita þeirn ráðgjöf um hönnun og uppsetningu upplýs- ingakerfa fyrir stjórnendur, auk þess að annast gerð þeirra og veita nauðsynlega þjónustu. Þessar lausnir byggja á vöruhúsi gagna (Data Warehouse) og sér- hæfðum fyrirspurnar- og úr- vinnsluverkfærum (Decision Support Tools.) Forskot á samkeppnisaðila Meginmarkmiðið með upp- setningu stjórnhjálparkerfis er ekki að spara í rekstri heldur auka árangur starfseminnar og ná forskoti á samkeppnisaðila. Kostir stjórnhjálparkerfa eru m.a. eftirfarandi: • Aukið forskot á samkeppnis- aðila. • Betri nýting á dýrmætum tíma, þekkingu og reynslu stjórn- enda. • Styrkari grundvöllur ákvarð- anatöku. • Einfaldari og bættari aðgangur stjórnenda að upplýsingum. • Auðvelt að þróa lausnina í áföngum - hver áfangi skilar strax miklum ávinningi. • Stjórnhjálparkerfi truflar ekki starfsemi fyrirliggjandi bók- halds- og upplýsingakerfa. Aukinn áhugi á hlutbund- inni hönnun Undanfarin ár hefur áhugi manna á kostum hlutbundinnar hönnunar farið vaxandi. Hérlend- is má sjá þennan áhuga í því að hlutbundin hönnun er kennd í Háskóla íslands, Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands, tölvu- fræðibraut Iðnskólans í Reykjavík og í einkareknum tölvuskólum. Sífellt fleiri fyrirtæki hérlend- is nota hlutbundna aðferðafræði við hugbúnaðargerð og styðjast í því sambandi við sérstök grein- ingar- og hönnunarverkfæri. TIR er þjónustuaðili fyrir afar öflugt verkfæri fyrir hlutbundna hönnun, sem heitir SELECT Enterprise, og er notað af m.a. Seðlabanka íslands, Skýrr hf., VISA, Tölvumiðstöð sparisjóð- anna, Reiknistofu bankanna o.fl. Kostir hönnunarverkfæra Ávinningurinn við að nota verkfæri á borð við SELECT Enterprise er m.a. sem hér segir: • Mikið hagræði og tímasparnað- ur til langs tíma litið. • Auðveldar endurnýtingu hug- búnaðareininga. • Veitir yfirsýn yfir hugbúnaðar- eign. • Heldur utan um alla skjölun við hugbúnaðargerð. • Auðveldar þarfagreiningu og kerfisgerð. • Samræmir vinnubrögð við hug- búnaðargerð. • Styttir tíma sem varið er til for- ritunar. Lokaorö Hér að framan hefur verið greint frá meginþáttunum í starf- semi TIR og helstu áherslum sem þar ríkja. Þá var fjallað um hvern- ig fyrirtæeki geta baett samkeppn- isstöðu sína með því að nota stjórnhjálparkerfi sem byggja á vöruhúsi gagna til að breyta gögn- um í upplýsingar. Loks var fjall- að um margvíslegan ávinning sem fylgir notkun verkfæera eins og SELECT Enterprise við hlut- bundna hönnun. Ríkarður Ríkarðsson er fram- kvæmdastjóri hjá TÍR EHF. Document Generation Requirements Traceaoility Modei Animation Trainingand Consulting Process Support c++ Forté Visual Basic PovvcrBuilder DCOM CORBA Java Delphi Smalltalk Estimation NatStar Configuralion c/-)i Management/VC ^ Computer-Based Training SELECT Component Factory MAÍ 1998 - 21

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.