Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1998, Qupperneq 5

Tölvumál - 01.12.1998, Qupperneq 5
Menntamál Viðskiptaháskólinn í Reykjavík Björg Birgisdóttir Kennslu á háskóla- stigi á vegum Verzl- unarskólans bar fyrst á góma á ráðstefnu árið 1971. Að við- bættum venjulegum fyrirlestrarsölum og kennslustofum eru minni vinnuherbergi fyrir verkefnavinnu nemendahópa S haust sem leið var stofnaður Við- skiptaháskólinn í Reykjavík (VHR). Menntastofnanir hafa það veigamikla starf að búa nemendur undir að takast á við líf og starf framtíðarinnar. í nýrri skólastefnu menntamálaráðuneytisins er Iögð mikil áhersla á upplýsingatækni og innan alls menntakerfisins er nú vakning á þessu sviði. Viðskiptaháskólinn er eitt dæmi um það. Því er ekki úr vegi að bregða ljósi á stöðu hans, hlutverk og þróun. VHR tók til starfa í haust í nýju og glæsilegu húsnæði að Ofanleiti 2 og var stofnaður með það að leiðarljósi að þjóna nemendum, starfsfólki, atvinnulífi og íslensku samfélagi. Þegar auglýst var eftir nýnemum kom í ljós gífurleg aðsókn að skólanum og sóttu rúmlega 700 nemendur um skólagöngu, af þeim fengu innan við 30% skólavist. Það sýnir glöggt að þörf var fyrir Viðskiptaháskóla í íslensku menntakerfi og eins hversu margir hafa áhuga á námi í viðskipla- og tölvufræði. Viðskiptaháskólinn var settur á stofn með það fyrir augum að vera góður valkostur fyrir þá sem hafa áhuga á viðskiptafræði, tölvufræði og upplýsingatækni. I þessari grein verður gerð grein fyrir aðdraganda að stofnun skólans, stefnu og markmiðum, náminu sjálfu, aðstöðu nemenda, o.fl. Aðdragandi að stofnun Viðskipta- háskólans í Reykjavík Viðskiptaháskólinn í Reykjavík á rætur sínar að rekja til Verzlunarskóla Islands sem stofnaður var árið 1905. Kennslu á háskólastigi á vegum Verzlunarskólans bar fyrst á góma á ráðstefnu árið 1971. Ekki varð af framkvæmdum fyrr en 17 árum síðar og munu húsnæðismál skólans þar meginorsök. Ur húsnæðisvandræðum rættist þegar skólinn flutti í nýtt hús við Ofanleiti hinn 4. janúar 1986. Mennta- málaráðuneytið samþykkti stofnun Tölvu- háskóla Verzlunarskóla Islands 1986 og hét fjárhagslegum stuðningi. Tölvuhá- skólinn var síðan settur í fyrsta skipti 15. janúar 1988, nemendur skólans átlu þess kost að útskrifast sem kerfisfræðingar. Þetta var þriggja anna skóli fyrstu árin en haustið 1991 var námið lengt í fjórar annir og var það fram til haustsins 1998. Tölvu- háskólinn rann inn í Viðskiptaháskólann í Reykjavík við stofnun þess síðarnefnda árið 1998 og hafði þá útskrifað 302 kerfis- fræðinga frá upphafi. Þorvarður Elíasson var stjórnandi Tölvuháskólans þau ár sem skólinn starfaði og Nikulás Hall var kennslustjóri. Stofnun Tölvuháskólans var áfangi á lengri leið að áliti fon áðamanna Verzlunar- skólans. Skipuð var nefnd árið 1988 að beiðni Þorvarðar Elíassonar sem kannaði möguleika á stofnun viðskiptaháskóla. Dr. Þorlákur Karlsson var fonnaður nefndarinnar og nefndin taldi vera þörf fyrir tveggja ára framhaldsnám í viðskiptafræðum á háskóla- stigi við Verzlunarskólann. Fljótlega var sýnt að ráðast þyrfti í byggingarframkvæmdir og borgarráð út- hlutaði stofnuninni lóðinni Ofanleiti 2 í októbermánuði 1992. Næstu árum var varið til undirbúnings en vorið 1995 var Ormar Þ. Guðmundsson arkitekt ráðinn til að teikna bygginguna. Fyrsta skóflustungan var tekin 7. apríl 1997. Skólanefnd sam- þykkti 25. nóvember 1997 að skólinn skyldi bera nafnið Viðskiptaháskólinn í Reykja- vík. Skólanefnd ákvað síðan 30. janúar 1998 að hinn nýi skóli, Verzlunarskólinn og Húsbyggingasjóður yrðu undir vernd og umsjón nýrrar sjálfseignarstofnunar, Sjálfseignarstofnunar Verzlunarráðs íslands, um viðskiptamenntun (SVIV). Verzlunar- ráð kaus fyrsta háskólaráðið 2. mars 1998. Síðan var auglýst eftir rektor og kennurum og voru fyrstu kennaramir ráðnir og einnig rektor, dr. Guðfinna S. Bjamadóttir. Skól- inn var settur í fyrsta skipti 4. september 1998. Þann dag gaf Björn Bjamason menntamálaráðherra út starfsleyfi fyrir hinn nýja skóla. Stefna og markmið Viðskiptaháskólinn í Reykjavík á að þjóna íslensku samfélagi og stefnt er að mark- vissu og árangursríku skólastarfi í sam- ræmi við hlutverk og markmið skólans. Tölvumál 5

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.