Tölvumál - 01.12.1998, Side 6
Menntamál
Við skólann starfa
tvær deildir, Tölvu-
fræðideild og
Viðskiptadeild
Tölvu og fjarskipta-
tækni hefur þróast ört
á síðustu árum og
opnað nýjar leiðir til
miðlunar upplýsinga
og þekkingar
Hlutverk skólans er að vera leiðandi í
viðskipta- og tölvufræðimenntun á háskóla-
stigi og að auka samkeppnishæfni íslensks
atvinnulífs. Upplýsingatækni hefur opnað
nýjar víddir og með því að nýta sér mögu-
leika hennar má bæta ýmsa starfsemi svo
sem rannsóknir, stjórnun, samskipti og
jafnframt auka hagræði. Á þann hátt
hyggst Viðskiptaháskólinn m.a. ná mark-
miðum sínum en hann hefur sett sér skýr
markmið sem munu endurspeglast í skipu-
lagi, kennsluháttum og námsmati.
Þar má fyrst nefna markmiðið að út-
skrifaðir nemendur verði framúrskarandi
fagmenn og eftirsóttir í atvinnulífinu með
greiðan aðgang að erlendum háskólum.
Með því að bjóða upp á krefjandi nám
sem gerir miklar kröfur til hæfni og getu
einstaklinga er hægt að búa nemendur
undir atvinnuþátttöku í íslensku samfélagi.
Samfara náminu er stefnt að góðum undir-
búningi fyrir þá nemendur sem kjósa að
halda áfram námi eftir útskrift frá VHR.
Annað markmið er að búa nemendur
undir að axla ábyrgð í atvinnulífmu og í
samfélaginu. Nemendur verða þjálfaðir
markvisst í ýmsum þáttum svo sem vönd-
uðum vinnubrögðum, framsögn, virðingu í
samskiptum og frumkvœði sem mun auka
getu þeirra til að axla ábyrgð í íslensku
atvinnulífi og i samfélaginu.
Enn eitt mikilvœgt markmið er að
samþætta námið og stuðla að víðsýni
nemenda. Viðskiptaháskólinn mun bjóða
upp á samþœtt nám í öllum þremur megin-
stoðum viðskiptalífs á komandi öld: tölvu-
frœði, viðskiptafræði og upplýsingafrœði.
Námið verður byggt upp til að tryggja þver-
faglega þekkingu og víðsýni nemenda.
Einnig er stefiit að því að námið sé hag-
nýtt og í tengslum við atvinnulífið. Til
þess að náfram þessu markmiði munu
nemendur vinna raunhœf, hagnýt verkefni
í tengslum við atvinnulífið. Nemendum
Tölvufrœðideildar er œtlað að geta unnið
við öll stig hugbúnaðargerðar og skipu-
lagt og séð um tölvuvœðingu hjá fyrir-
tœkjum. I Viðskiptadeild er nemendum
œtlað að geta stofnað og rekið sitt eigið
fyrirtæki, auk þess að vera viðurkenndir
og eftirsóttir fagmenn í viðskiptalífinu
Loks má nefna það markmið að námið
verði í stöðugri þróun í síbreytilegu um-
hverfi. Skólinn mun þróast með aukna
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs að
leiðarljósi. Skólinn á að vera leiðandi og
helst á undan samtíðinni í nýjungum á við-
skipta- og tölvusviði. Einnig verður stuðst
við þróun í völdum viðmiðunarskólum
erlendis og reynt verður að koma til móts
við þarfir viðskiptalífsins íframtíðinni.
Námsleiðir
Við skólann starfa tvær deildir, Tölvu-
fræðideild og Viðskiptadeild. Nú í haust
eru alls 310 nemendur í skólanum, 75 á
fyrsta ári í Viðskiptadeild og 235 í Tölvu-
fræðideild, þar af 120 á fyrsta árinu. Auk
þessara tveggja deilda er starfrækt símennt-
arstofnun við skólann, Símennt VHR, sem
sér um menntun og námskeiðahald fyrir
stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja og
stofnana.
Tölvufræðideild
Úr Tölvufræðideild útskrifast nemendur
sem kerfisfræðingar eftir tveggja ára nám
sem er 60 einingar. Útskrifaðir kerfisfræð-
ingar eiga þess kost að sækja um að ljúka
B.S. námi í tölvufræði. Þá stunda þeir nám
í eitt ár til viðbótar við kerfisfræðinámið -
Ijúka þannig þriggja ára B.S. námi í tölvu-
fræði, alls 90 einingum. Tveggja ára kerf-
isfræðinámið er verklegt og hagnýtt en
þriðja árið til B.S. prófs er fræðilegra.
Námið í tölvufræði hefur þróast í gegnum
árin í Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands
og þar hefur verið lögð áhersla á verklega
hlið námsins. Fyrstu námsönnum lýkur
með 3ja vikna verklegu námskeiði undir
leiðsögn kennara, þar sem nemendur
vinna í smáum hópum að raunhæfum hug-
búnaðarverkefnum. Nemendur vinna loka-
verkefni síðustu mánuði námstímans í
nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir
utan skólans. Markmiðið er að nemendur
vinni sjálfstætt að því að greina, hanna og
smíða nothæfan hugbúnað og beiti til þess
viðurkenndum aðferðum við hugbúnaðar-
gerð. Nemendur hafa oft leitað sjálfir að
viðfangsefnum en það hefur færist í vöxt
að fyrirtækin snúi sér sjálf til skólans og
óski eftir samvinnu. Skólinn hefur átt gott
samstarf við fjölmörg fyrirtæki og stofn-
anir og stefnir að því að halda því áfram.
Tölvu og fjarskiptatækni hefur þróast
ört á síðustu árum og opnað nýjar leiðir til
miðlunar upplýsinga og þekkingar. Ein af
6
Tölvumál