Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1998, Side 10

Tölvumál - 01.12.1998, Side 10
Menntamál Meistaraprófsritgerðin er þáttur í náminu sem gagnast öllum nemendum, jafnt þeim sem hyggjast á enn frekari nám, þeim sem ætla að vinna við rannsóknarstofnanir og einnig þeim sem vinna hjá fyrirtæki. f vaxandi mæli eru fyrirtæki að vinna að nýsköpun, þróun og upptöku nýrrar tækni þó e.t.v. sé sé um grunnrannsóknir að ræða. Þetta á ekki síst við á sviði eins og tölvunarfræði þar sem örar breytingar eiga sér stað. Það er ákaflega mikilvægt fyrir starfsmenn að geta tileinkað sér nýja tækni eða metið hve mikilvæg hún er. Hvaða viðfangsefni nemandi kýs að taka fyrir er að sjálfsögðu breytilegt. Ymist eru kennarar að vinna að verkefnum og geta áhugasvið nemanda fallið innan þeirra (sjá t.d. http://www.hi.is/~ebba/ tillogur98-99.html) eða nemendur hafa fyrirfram ákveðnar hugmyndir sem þeir geta þá rætt. Inntökuskilyrði Tölvunarfræði snertir mörg önnur svið. Þar má nefna t.d. sálarfræði (gervigreind), íslensku (máltölvun), félagsfræði (samskipti manns og tölvu), stærðfræði (reiknan- leiki), og verkfræði (hermun). Því geta umsækjendur haft háskólapróf í annarri grein enda séu þeir búnir að uppfylla eftir- farandi undirbúningskröfur ef þeir eru ekki með B.S.-próf í tölvunarfræði: Grunnnámskeið Stærðfræðimynstur í tölvunarfræði, 4 ein. Tölvunarfræði I, 4 ein. Tölvunarfræði II, 4 ein. Eitt hugbúnaðarnámskeið, 3 ein Gagnasafnsfræði / Hönnun hugbúnaðar Eitt frœðilegt námskeið, 3 ein Forritunarmál / Formleg mál og reiknanleiki / Greining reiknirita Eitt tœkninámskeið. 3 ein StýrikeiTi I / Stýrikerfi II Sérstök nefnd, meistaraprófsnefnd, skipuð af deildarráði Raunvísindadeildar, fjallar um umsóknir. Nemandi þarf að hafa lokið B.S.-prófi með lágmarkseinkunn 6,5. Aðalumsóknarfrestur er í febrúar til að hefja nám á haustmisseri, en einnig er hægt að sækja um í ágúst til að hefja nám um áramót. Lokaorð Nýlega hefur tölvunarfræðiskor fengið nýja aðstöðu fyrir nemendur í nýju húsi vestan Tæknigarðs að Dunhaga 7. Þar er nú verið að útbúa vinnuaðstöðu fyrir átta nemendur þar sem hver fær skrifborð, tölvu og að auki verður fundaraðstaða en það er ekki síst mikilvægt því oft fer vinna fram í hópum. I haust sem leið hófu 10 nemendur nám og eru þeir allir í hlutanámi. Mjög mis- jafnt er hve langt er síðan nemendurnir útskrifuðust með B.S.-próf en þeir koma úr ýmsum áttum með mismunandi reynslu og þekkingu sem er mjög skemmtilegt bæði fyrir nemendur og kennara. M.S.-nám í tölvunarfræði við Háskóla íslands er enn einn valkostur fyrir þá sem vilja mennta sig frekar á þessu sviði. Margir nemendur munu að sjálfsögðu kjósa að fara utan til náms en við munum leggja kapp á að M.S.-námið við HÍ sé fyllilega samkeppnishæft. Eg bendi öllum þeim sem hafa áhuga á M.S.-námi í tölvunarfræði að skoða einnig vefsíðu tölvunarfræðiskorar á http://www. hi.is/HI/Deild/Raun/Tolv/heima.html og kennsluskrá Háskóla íslands. Ebba Þóra Hvannberg er lektor við Háskóla Islands 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.