Tölvumál - 01.12.1998, Síða 11
Myndrænar upplýsingar
Myndrænar upplýsingar á Internetinu
Anita Björk Lund
Magn myndrænna
upplýsinga á vefnum
fer vaxandi og sumar
leitaivélar gefa vef-
notendum kost á að
leifa að gögnum á
myndrænu formi
Beinn aðgangur í
myndrænar upplýs-
ingar felur í sér þá
kröfu að vefnotand-
inn viti nákvæmlega
að hvernig myndefni
hann er að leita og
hvar það er að finna
Flest okkar hafa notað leitarvél á
Intemetinu til að nálgast upplýsingar
um margvíslegt efni, ýmist til fróð-
leiks eða skemmtunar. Hingað til hefur öll
upplýsingaleit á vefnum takmarkast af
textaleit enda hefur meginþorri alls efnis á
Internetinu verið á textaformi. Magn mynd-
rænna upplýsinga á vefnum fer þó óðum vax-
andi og nú er svo komið að sumar leitar-
vélar gefa vefnotendum kost á að leita að
gögnum á myndrænu formi1. Leitin bygg-
ist þó í flestum tilvikum á textastrengjum
sem lýsa innihaldi gagnanna sem óskað er
eftir. En eins og máltækið segir, mynd
segir meira en þúsund orð, þannig að oft
getur verið erfitt að fmna leitartexta sem
lýsir myndefninu nægilega vel.
Rannsóknir undanfarinna ára sýna að
það styttist óðum í að við getum leitað að
myndrænum gögnum á aðgengilegri hátt
en nú. Þessi grein fjallar um myndrænar
upplýsingar á vefnum og gefur innsýn inn
í þær rannsóknir sem eiga eftir að gefa
okkur beinan aðgang að enn fjölbreyttari
upplýsingum en við höfum séð hingað til.
Myndrænar upplýsingar og
margmiðlunargagnasöfn
Þegar talað er um myndrænar upplýs-
ingar er verið að vitna í gögn sem birt eru
á myndrænan hátt svo sem grafík, kyrr-
mynd, teiknimynd (e. animation) eða
kvikmynd. Þessi gagnatög eru, ásamt texta
og hljóði, oft nefnd margmiðlunargagna-
tög þar sem þau miðla upplýsingum til
notenda á margvíslegan hátt.[1)
Myndrænar upplýsingar er að finna á
vefþjónum vítt og breitt á Internetinu.
I mörgum tilvikum eru upplýsingarnar
geymdar á skráarformi (t.d. JPEG, GIF,
MPEG osfrv) á vefsvæðum líkt og hefð-
bundnar vefsíðuskiár (HTML). Vefnot-
endur nálgast slíkar upplýsingar á sama
hátt og venjulegar textavefsíður.
Myndrænar upplýsingar eru þó einnig
geymdar í svo kölluðum margmiðlunar-
gagnasöfnum. Þessi gagnasöfn innihalda
oft sérhæfð gögn, til dæmis listrænt, læknis-
fræðilegt eða landfræðilegt myndefni, og
hafa þá sérstöðu fram yfir hefðbundin
gagnasöfn að innihalda mörg ólík gagna-
tög sem þurfa að jafnaði mikið geymslu-
rými. Sem dæmi má nefna kvikmyndir á
stafrænu formi, en ein klukkustund af
myndefni tekur u.þ.b. 1GB af diskrými.2[1]
Eitt af einkennum margmiðlunargagna-
taga s.s. hljóðs, kvik- og hreyfimynda eru
vensl í tíma og/eða rúmi. Margmiðlunar-
gagnasöfnin verða að geta geymt þessi
vensl og séð til þess að kröfum um flutn-
ingsgetu innan ákveðins tímaramma sé
fullnægt. Annar höfuðverkur er aðgangur
að þessum flóknu gagnatögum. Erfitt
getur verið að lýsa innihaldi hljóðs og
myndefnis með hefðbundinni textaleit. Því
þurfa margmiðlunargagnasöfn að veita
beinan aðgang að gögnunum þ.e. á hljóð-
og myndrænan hátt.,3]
Hvar finnum við myndrænar
upplýsingar á vefnum?
Við nálgumst myndrænar upplýsingar á
vefnum á sama hátt og hefðbundnar texta-
upplýsingar, þ.e. annað hvort með því að
vísa beint í ákveðin margmiðlunargagna-
söfn eða með því að nota leitarvélar sem
styðja leit að myndrænum upplýsingum.
Beinn aðgangur í ákveðin margmiðlunar-
gagnasöfn felur að sjálfsögðu í sér þá
kröfu að vefnotandinn viti nákvæmlega að
hvernig myndefni hann er að leita og hvar
það er að finna. Þetta er hinsvegar sjaldan
raunin þar sem magn myndrænna upp-
lýsinga á vefnum er orðið óheyrilegt og
ekki á færi nokkurs manns að halda utan
um framboð og staðsetningu án hjálpar
sérhæfðra leitarvéla.
Leitarvélar á vefnum svo sem InfoSeek,
Alta Vista, Lycos og Excite virka þannig
að þær búa til yfirlitsskrá yfir skjöl sem er
1 Electric Library sjá htlp://www3.elibrary.com/id/
2525/search.cgi og AV PhotoFinder hjá AltaVista
sjá http://image.altavista.com/cgi-bin/avncgi.
2 Endanleg skráarstærð fer þó eftir þjöppunarstaðli
og eiginleikum kvikmyndarinnar. Gefnar tölur
miðast við MPEG-1 þjöppunarstaðalinn.
Tölvumál
11