Tölvumál - 01.12.1998, Side 17
Menntamál
mikil áhrif á hvemig námsefni verður
dreift í framtíðinni. Auðvelt er t.d. að
ímynda sér að á næstu árum muni VHS-
myndböndin hverfa úr skólastofunum en
við taki ýmist DVD-diskar eða gagnvirk
miðlun myndefnis á netinu.
Um þessar mundir er unnið að sérstakri
áætlun um gerð kennsluhugbúnaðar hjá
Námsgagnastofnun fyrir fé sem væntan-
lega mun fást af fyrrnefndum fjárlagalið
um íslenska upplýsingasamfélagið. Reynt
verður að sjá til þess að þeir fjármunir
nýtist sem best og að þess sjáist merki í
sem flestum námsgreinum. Jöfnum hönd-
um er rætt um að þýða erlend forrit, bæði
úr norræna samstarfinu og frá öðrum út-
gefendum, og skrifa ný íslensk forrit.
Námsgagnastofnun mun í þeim tilvikum
bjóða forritunina út á grundvelli greining-
arskýrslna sem stofnunin lætur vinna.
Þá hefur, auk norræna samstarfsins sem
fyrr er nefnt, tekist samvinna um gerð og
útgáfu umfangsmikilla foiTÍta á öðrum
vettvangi. Námsgagnastofnun er aðiii að
samtökum sem nefnast International
Group of Educational Publishers (IGEP).
Innan samtakanna hefur undanfarið verið
unnið að margmiðlunardiski til ensku-
kennslu sem nefnist The A-files. Hérer um
viðamikið verk að ræða sem í heild kostar
ríflega 28 milljónir króna. Hlutur stofnunar-
innar af því nemur rúmlega 2 milljónum,
auk ritstjórnarlauna hér. Óhætt er að full-
yrða að ógjörningur hefði verið fyrir stofn-
unina að gefa diskinn út á eigin spýtur, en
vegna þessa samstarfs er þetta efni nú
orðið að raunveruleika og nýtist vonandi
vel til enskunáms hér á landi, hvort sem er
í skólum eða á heimilum. Frá því að disk-
urinn var sýndur á bókasýningunni í
Frankfurt í október hafa tekist samningar
um að selja hann til landa utan samstarfs-
ins og margir hafa sýnt honum áhuga.
Ný kennslumiðstöð?
Sem fyrr segir er eitt af stefnumiðum
menntamálaráðuneytisins að koma á fót
þjónustumiðstöð eða kennslumiðstöð á
sviði upplýsingatækni. Hlutverk slíkrar
miðstöðvar yrði að veita skólum stuðning,
ráðgjöf og upplýsingar varðandi notkun
upplýsingatækni. Víða heyrast þær raddir
að brýn þörf sé á hverskonar ráðgjöf á
þessu sviði við kennara. Sú þjónusta sem
Námsgagnastofnun er nú unnt að veita við
notendur þess hugbúnaðar sem stofnunin
gefur út er mun minni en æskilegt getur
talist. Þar að auki er ljóst að það veitist
sumum sveitarfélögum erfitt eftir að
grunnskólakerfíð færðist yfir til þeirra að
þjóna skólum hvað upplýsingatækni
varðar. Ný kennslumiðstöð á sviði upp-
lýsingatækni gæti því orðið skóiakerfinu
mikilvægur stuðningur á því sviði.
Kennsluforrit Námsgagnatofnunar
— —
' □ □ , 1—1 , ... n i i □
Námsgreinar
Tölvumál
17