Tölvumál - 01.12.1998, Side 18
Menntamál
Ég tel að meginhlutverk miðstöðvar
sem þessarar eigi að verða þjónusta við
starfandi kennara á öllum skólastigum og
við endurmenntun þeirra á sviði upplýsinga-
tækni. Hægt er að hugsa sér að annað
hvort verði þjónustan veitt skólunum beinl
og milliiiðalaust, eða þá í samstarfí við
skólaskrifstofur viðkomandi sveitarfélaga.
I þessu felst meðal annars almennur
stuðningur við notkun upplýsingatækni í
skólum, almenn ráðgjöf og upplýsinga-
þjónusta og aðstaða til að skoða kennslu-
hugbúnað og annað námsefni. Þarna ætti
enn fremur að vera hægt að fá ráðgjöf
varðandi kaup á vél- og hugbúnaði og um
netkerfi og uppsetningar. Þá myndaðist
þarna kjörinn vettvangur fyrir fræðslu um
notkun kennsluhugbúnaðar og fjölbreytt
námskeið á því sviði. Vel má hugsa sér að
þetta nám afli kennurum aukinna réttinda
á sviði upplýsingatækni.
Þá er loks að nefna að í miðstöð sem
þessari skapast kjörinn vettvangur fyrir
fyrir tölvunarfræðinema, kennaranema,
námsefnishöfunda og aðra til að sinna
verkefnum á sviði kennsluhugbúnaðarg-
erðar og ráðgjafarstörfum, eftir því sem
við á. I stefnumörkun menntamálaráðu-
neytisins, þeirri sem nefnd var í upphafi
þessarar greinar, er gert ráð fyrir að valdir
skólar verði gerðir að svonefndum kjarna-
skólum eða þróunarskólum á sviði upp-
lýsingatækni. Frá þeim á að korna ráðgjöf
og endurgjöf til þeirra sem hanna og gefa
út kennsluhugbúnað, þar á að fara fram
tilraunakennsla og þaðan á að koma
kennslufræðileg ráðgjöf á þessu sviði.
Ljóst er að ný kennslunriðstöð á sviði upp-
lýsingatækni mundi nýtast vel sem tengi-
liður og samstarfsvettvangur skólaskrif-
stofa, útgefenda, kjarnaskóla, almennra
kennara og annarra sem að þessum málum
þurfa að koma.
Tryggvi Jakobsson er útgáfustjóri
Námsgagnastofnunar
10.460,- krónur
NÁMSGAGNASTOFNUN
A diskinum er einnig ab finna:
Ensk/enskan og ensk/íslenskan orbalista
Málfrœöiœfingar
Málver þar sem hœgt er aö taka upp eigiö tal
og cefa framburb
Fróöleiksmola um Bretland og breska menningu
Diskurinn gengur bœbi á Macintosh
og PC tölvur.
iM
Laugavegi 166 • 105 Reykjavík • Sími 552 8088 • Bréfasími 562 4137
FI L E 5
enskunám meb nýrri tœkni
The A-Files er nýstárlegt margmiölunarefni fyrir enskunám. Þú ert í hlutverki
geimveru sem send er til jarbar í upplýsingaleit. Þaö er um sex meginverkefni
aö velja og hvert um sig býbur upp á mörg skemmtileg viöfangsefni og
leiki. Alltafer eitthvaö sem kemur á ávart. Þú fœrö fyrirmœli áöur en lagt
er af staö og þegar þú snýrö aftur gefuröu skýrslu um feröir þínar. Ef
þú talar ensku eins og geimvera kemur jaröarlöggan og hiröir þig og
þú veröur aö sýna aö þú kunnir ensku til aö sleppa úr greipum hennar.
18
Tölvumól