Tölvumál - 01.12.1998, Blaðsíða 24
Átak 2000
Eimskip og árið 2000
Gylfi Hauksson
Ráðstafanir vegna
ársins 2000 í
upplýsingakerfum
Eimskips hafa verið
gerðar undanfarin ár
samhliða öðrum
breytingum á kjarna-
kerfunum
S
Aþessu ári hefur verið unnið mark-
visst að því hjá Eimskip að yfír-
fara upplýsingakerfi og tölvubúnað
vegna hugsanlegra galla sem leynst geta
vegna rangrar notkunar ártalsins 2000.
Þetta er gert til að draga sem mest má vera
úr þeirri hættu á rekstrartruflunum sem
þetta vandamál hefur í för með sér. Til að
ná þessu marki höfum við gefið verkefninu
forgang og höfum sett saman hópa dug-
legs og vel menntaðs fólks, sem mun vinna
að úrbótum. Starfsemi Eimskips er mjög
fjölbreytt og starfsemin dreifð. Mikilvægi
upplýsingakerfa fyrir reksturinn er mjög
mikið og fer stöðugt vaxandi.
Tölvuumhverfið byggir á 11 AS/400
miðlurum og 32 NT netþjónum. Tölvubún-
aðurinn er staðsettur á skrifstofum fyrir-
tækisins í tíu löndum og er hann tengdur
saman í eitt víðnet um SITA fjarskipta-
kerfið. AS/400 kerfin eru 30 og á staðar-
netunum eru yfir 100 mismunandi kerfi.
Útstöðvar á neti eru samtals um 530 auk
63 þráðlausra tölva og um 130 stakstæðra
tölva, fartölva, tölva í skipum og víðar.
Ráðstafanir vegna ársins 2000 í upp-
lýsingakerfum Eimskips hafa verið gerðar
undanfarin ár samhliða öðrum breytingum
á kjarnakeifunum. Mjög stutt er síðan settar
voru fram kröfur um staðfestingu á virkni
búnaðar varðandi árið 2000 í útboðum og
innkaupum vélbúnaðar. Það hefur lengi
verið ljóst að nauðsynlegt væri að fara
skipulega yfir allan hugbúnað og vélbúnað
til að sannreyna virkni hans. Þessi verkefni
voru afmörkuð sérstaklega og sett inn á
áætlanir fyrirtækisins snemma á þessu ári.
í fyrra hófst kynning á verkefninu innan
fyrirtækisins og í byrjun þessa árs var
skipað gæðalið til að greina umfang vand-
ans og áhættu. Gæðaliðið skilaði niður-
stöðum til yfirstjórnar í mars sl. þar sem
fram kom að nauðsynlegt væri að hefjast
handa strax ef takast ætti að lágmarka þá
rekstrartruflun sem árið 2000 veldur í
upplýsingakerfum. Strax í framhaldi af
því var verkefninu markaður farvegur
innan fyrirtækisins. Fjórir vinnuhópar
voru skipaðir og ráðinn verkefnisstjóri í
fullt starf til að hafa yfirumsjón með
verkefninu. Vinnuhóparnir skiptu með sér
verkum. Hér á eftir fer stutt lýsing á megin
verksviði vinnuhópanna:
Vinmihópur - vélbúnaður
Verkefni hópsins felst í flokkun, yfirferð
og prófun vélbúnaðar, tölvu- og stýribún-
aðar, samráðs við framleiðendur og að
koma uppfærslu búnaðar þar sem það er
talið nauðsynlegt í framkvæmd.
Vinnuhópur - síina- og gagnasamskipti
Verkefni hópsins felst í því að greina allar
samskiptaleiðir og þann búnað sem notað-
ur er í síma og gagnasamskiptum, flokka,
yfirfara og prófa í samráði við framleið-
endur, einnig að koma uppfærslum eða
endurnýjun á búnaði í farveg ef það telst
nauðsynlegt.
Vinnuhópur - samstarfsaðilar og aðföng
Verkefni hópsins felst í því að greina og
meta mikilvægi helstu birgja og samstarfs-
aðila fyrir reksturinn, að hafa samband við
þá og kanna stöðu þeirra varðandi árið
2000. Hópurinn skipuleggur einnig ráðstaf-
anir sem hægt verður að grípa til, bregðist
mikilvægir birgjar eða samstarfsaðilar á
þessum tímamótum.
Vinnuhópur - hugbúnaður
Verkefni hópsins er í meginatriðum að
flokka, yfirfara og prófa allan eigin hug-
búnað fyrirtækisins, og leita eftir staðfest-
ingum framleiðenda aðkeyptra lausna og
gera lagfæringar þar sem þörf er á.
Ovenjulegf verkefni
Það hefur alla tíð verið töluverð óvissa í
allri áætlanagerð í þessu verkefni. Þetta er
mjög sérstakt verkefni sem aldrei hefur
verið á dagskrá áður. Það er einnig mjög
sérstakt vegna þess að því verður ekki
frestað, árið 2000 kemur á sínum tíma
hvort sem okkur líkar betur eða verr. Sem
dæmi um þá óvissu sem verið hefur í
verkefninu rná nefna að í hugbúnaðar-
hópnum kom fram við fyrstu yfirferð að
24
Tölvumál