Tölvumál - 01.12.1998, Page 26
Átak 2000
Ár 2000 raunveruleikinn í dag -
dæmi um niðurstöður úttekta
Arinbjörn Sigurgeirsson
Niðurstöður nokkurra
úttekta benda til að
40% útstöðva séu
ekki ár 2000 heldar.
BIOS þarf að upp-
færa í 24% útstöðva
og 16% útstöðva
svarar ekki kostnaði
að uppfæra
Margir setja ár 2000
vandamálið eingöngu
í samband við hefð-
bundnar tölvur, en
vandamálið er víð-
tækara. Svokallaðar
iðnstýringar innihalda
tölvubúnað og ef
hann vinnur með
dagsetningar eða
klukku þarf að kanna
ár 2000 heldni bún-
aðarins
Tæknival hefur undanfarið unnið að
ár 2000 úttektum á upplýsinga-
kerfum viðskiptavina. Aðilar eru
bundnir gagnkvæmum trúnaði um niður-
stöður slíkra úttekta og hér eru því ekki
nafngreind nein fyrirtæki eða niðurstöður
einstakra úttekta. Það sem hér er sagt er
engu að síður byggt á reynslu Tæknivals
af slíkum úttektum og dæmigerðum
atriðum úr skýrslum um úttektir.
Almennt
Dæmigert fyrirtæki stundar tiltekna starf-
semi, hefur tiltekinn fjölda starfsmanna og
helmingur þeiiTa notar tölvu við vinnu
sína. Tölvur eru af ýmsum gerðum og á
ýmsum aldri. Fyrirtækið notar meðal
annars stýrikerfishugbúnað, bókhaldshug-
búnað, samskiptahugbúnað, skrifstofu- og
annan notendahugbúnað, auk fleiri flokka
og tegunda. í notkun eru til dæmis afrit-
unarstöðvar, mótöld, prentarar, „posar“,
símstöð og loftræstikerfi.
Vélbúnaður
Niðurstöður nokkurra úttekta benda til að
40% útstöðva séu ekki ár 2000 heldar.
BIOS þarf að uppfæra í 24% útstöðva og
16% útstöðva svarar ekki kostnaði að upp-
færa. Hvað þýðir þetta í fyrirtæki með 25
útstöðvum? Uppfæra þarf BIOS í 6 vélum,
4 vélar þarf að endurnýja. 15 vélar eru
taldar ár 2000 heldar. Hér er eingöngu
verið að tala um vélbúnaðinn, ekki þann
hugbúnað sem í notkun er á hverri vél.
Ástand netþjóna er mismunandi, niður-
stöður undanfarinna úttekta benda til að
þeir séu oftar en ekki ár 2000 heldir.
Hugbúnaður
í fyrirtækjum eru í notkun margar tegundir
af hugbúnaði -jafnvel fleiri en forráða-
menn þeirra hafa hugsað út í fyrirfram, til
dæmis 30 tegundir.
Á meðal helstu og mikilvægustu hug-
búnaðtegunda sem í notkun eru í hverju
fyrirtæki eru að jafnaði bókhalds- og upp-
lýsingakerfi, netstýrikerfi og stýrikerfi á
útstöðvum. Auk þess sérhannaður og sér-
smíðaður hugbúnaður, sem er mismunandi
eftir því í hverju starfsemi viðkomandi
fyrirtækis er. Síðan má nefna almenn not-
endaforrit, samskiptaforrit og ýmis tengi-
forrit. Mikilvægi þessara fon'ita getur
verið mismunandi eftir því í hvaða starf-
semi fyrirtækið er. Það að ein tegund hug-
búnaðar verði óvirk í einhvern tíma þarf
ekki að hafa nein merkjanleg áhrif á rekst-
ur fyrirtækis, á meðan óvirkni annarrar
hugbúnaðartegundar getur þýtt að rekstur
fyrirtækisins lamast.
Af 25-35 tegundum af hugbúnaði sem
dæmigert fyrirtæki getur verið að nota, eru
sem dæmi 15% ekki ár 2000 heldar, þar á
rneðal hugbúnaður í mikilvægum hugbún-
aðarflokkum svo sem bókhaldshugbúnað-
ur og sérsmíðaður hugbúnaður sem nauð-
synlegur er fyrir daglega starfsemi.
Ef ekkert er gert í þessu sambandi má
ganga út frá að rekstur slíks fyrirtækis rnyndi
að miklu leyti lamast á fyrsta rekstrardegi
ársins 2000, með viðeigandi afleiðingum
fyrir tekjur og afkomu fyrirtækisins.
Annarbúnaður
Margir setja ár 2000 vandamálið eingöngu
í samband við hefðbundnai' tölvur, en vanda-
rnálið er víðtækai'a. Svokallaðai' iðnstýring-
ar innihalda tölvubúnað og ef hann vinnur
með dagsetningar eða klukku þarf að kanna
ár 2000 heldni búnaðarins. Þetta á við í
mörgum fyrirtækjum, ekki síst í fram-
leiðslufyrirtækjum, svo sem verksmiðjum.
Birgjar, þjónustuaðilar og mikil-
vægir kaupendur
í úttekt eru forsvarsmenn fyrirtækis spurð-
ir hvort fyrirtækið hafi haft samband við
mikilvægustu birgja og þjónustuaðila,
vegna ár 2000 mála. Algengasta svar er að
fyrirtækið hefur ekki haft formlegt sam-
band við þessa aðila.
26
Tölvumál