Tölvumál - 01.12.1998, Side 27
Átak 2000
Mælt er með hraðri
ákvarðanatöku um
framhald og að
ákvörðunun sé komið
í framkvæmd eins
fljótt og hægt er.
Rökin fyrir þessu eru
meðal annars að þörf
og eftirspurn eftir
þjónustu mun
tvímælalaust aukast
mikið
Mikilvægir birgjar og þjónustuaðilar
fyrirtækisins: Þeir sem selja og afltenda
fyrirtækinu annað hvort hátt hlutfall eða
mikilvægan hluta af þeirri vöru eða
þjónustu sem fyrirtækið verslar með eða
vinnur úr og selur.
Mikilvægir kaupendur fyrirtækisins:
Þeir sem kaupa eða taka á móti háu hlut-
falli eða mjög sérhæfðri vöru eða þjónustu.
Hér er ekki verið að tala um hvort birgir
afliendir ár 2000 helda vöru, heldur hvort
hann geti yfirhöfuð selt og afhent vöru í
byrjun árs 2000. Sama á við um þjónustu
þjónustuaðilans.
Hvernig mun rekstur fyrirtækis ganga
ef rafmagn frá þjónustuaðila verður ekki
til staðar, símaþjónusta verður óvirk, eða
tollafgreiðsla stöðvast? Hvað gerist ef
ekki fæst afgreitt eldsneyti á þjónustu- eða
dreifingarbíla fyrirtækisins? Hvað gerist ef
sérhæfða varan frá eina mögulega birgjan-
um berst ekki?
I hvað langan tíma mun rekstur fyrir-
tækisins geta gengið, ef tveir stærstu kaup-
endur vöru eða þjónustu geta ekki keypt
eða tekið við vörunni eða þjónustunni?
Róðgjöf og kostnaðaráætlun
Ráðgjöf og kostnaðaráætlun í úttektar-
skýrslu er hugsuð til að auðvelda forráða-
mönnum ákvarðanatöku um næstu skref á
leiðinni að meira rekstraröryggi í ársbyrjun
2000. Mælt er með hraðri ákvarðanatöku
um framhald og að ákvörðunun sé komið í
framkvæmd eins fljótt og hægt er. Rökin
fyrir þessu eru rneðal annars að þörf og
eftirspurn eftir þjónustu mun tvímælalaust
aukast mikið og skortur verða á fólki með
nauðsynlega sérfræðimenntun og reynslu,
þannig að sú þjónusta sem yfirhöfuð fæst
mun líklega verða dýrari og dýrari, eftir
því sem nær líður árinu 2000.
Hér eru ekki rakin sérstök dæmi um
áætlaðan kostnað, en segja má að fyrir hið
dæmigerða fyrirtæki hér að framan geti
kostnaðaráætlun vegna lagfæringa og
endurnýjunar vél- og hugbúnaðar hlaupið
á nokkrum hundruðum þúsunda, eftir
umfangi búnaðar og ástandi hans.
Til umhugsunar
Hér hefur verið stiklað á nokkrum atriðum
varðandi niðurstöður ár 2000 úttekta
Tæknivals og öðrunt atriðum sem snerta
ár 2000 vandamálin, upptalningin er
engan veginn tæmandi því óteljandi hliðar
eru á þessurn vandamálum og mögulegum
afleiðingum þeirra.
Ofangreind atriði þurfa forsvarsmenn
fyrirtækja og stofnana fyrr en síðar að
skoða og hugleiða, hver í sínu umhverfi
og taka síðan ákvarðanir um nauðsynlegar
aðgerðir. Það að taka ekki ákvörðun unt
aðgerðir má jafna við ranga ákvörðun -
árið 2000 frestast ekki, það kemur eftir
tæplega 13 rnánuði. Á þessum 12 mánuð-
um er jólafrí, páskafrí, sumarfrí og jólafrí,
fyrir utan allar helgar og sérstaka frídaga,
veikindadaga og aðrar frátafir. Hvað eru þá
margar klukkustundir eftir til að vinna að
upplýsingaöflun, greiningu, ákvörðunum
og forvarnaraðgerðum til að draga sem
mest úr líkum á rekstrartruflunum og tekju-
tapi vegna ár 2000 vandamálanna?
Arinbjörn Sigurgeirsson verkefnastjóri
ár 2000 úttekta Tæknivals hf.
Tölvumál
27