Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1998, Side 30

Tölvumál - 01.12.1998, Side 30
Verkefnastjórnun Verkefnastjórnunarfélag Islands Steinunn Huid Atladóttir og Ómar Imsiand Starfsemi félagsins felst meðal annars í miðlun upplýsinga um verkefnastjórnun með fundahöldum, náms- og ráðstefnu- haldi og blaðaútgáfu um verkefnastjórnun Verkefnastjórnunar- félag Islands hefur nú í tvö ár staðið fyrir alþjóðlega viður- kenndri vottun á verkefnastjórum sem, ásamt því að vera viðurkennd af IPMA, er einnig viðurkennd af alþjóðlega verk- efnastjórnunarsam- bandi Ameríku (PMI) Um félagið Verkefnastjórnunarfélag íslands (VSFÍ) var stofnað 1984 í því augnamiði að leiða þróun og eflingu verkefnastjórnunar á Islandi. Félagið er öllum opið, einstakl- ingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnunum. Starfsemi félagsins felst meðal annars í miðlun upplýsinga um verkefnastjórnun með fundahöldum, náms- og ráðstefnuhaldi og blaðaútgáfu um verkefnastjórnun. Félagið er jafnframt í samstarfi við innlend og erlend félög með sömu eða sambærileg markmið og stuðlar að endurmenntun verkefnastjóra. Loks sér félagið um alþjóðlega viðurkennda vottun fyrir verkefnastjóra hér á landi. Samstarf við önnur félög VSFÍ er aðili að evrópsku alþjóðasamtök- um verkefnastjórafélaga, International Project Management Association (IPMA) og samtökum verkefnastjórnunarfélaga á Norðurlöndunum, NORDNET. Jafnframt er VSFI aðili að alþjóðasamtökum kostn- aðarverkfræðinga (ICEC). Félagið er einnig í nánu samstarfi við önnur erlend félög, eins og til dæmis við hin amerísku alþjóðasamtök verkefnastjóra (PMI). Samstarfsverkefni VSFÍ við erlend félög eru margþætt, sem dæmi má nefna að árið 1997 hélt félagið aðra alþjóðlegu ráðstefnu sína hér á landi, að þessu sinni um gæði í verkefnastjórnun, og sótti fjöldi erlendra fyrirlesara og gesta ráðstefnuna heim. Gott samstarf er við alþjóðlegu verk- efnastjórnunarfélögin, IPMA og PMI, og aðildarfélög þeirra við mótun og samræm- ingu á kröfum til vottunar verkefnastjóra. IPMA CPM vottun verkefnastjóra Með vottun verkefnisstjóra er átt við stað- festingu á að viðkomandi verkefnastjóri uppfylli skilgreindar kröfur hvað varðar reynslu og þekkingu á fræðum og störfum við verkefnastjómun. Mörg Evrópulönd hafa nú þegar tekið upp vottunarkerfi fyrir verkefnastjóra, en þar hafa Englendingar að mörgu leyti verið frumkvöðlar og aðrar þjóðir í stórum dráttum tekið mið af þeirra reynslu og notað þeirra viðmiðunarstaðla og reglur um framkvæmd. Alþjóða verkefnastjórnunarsambandið, IPMA, hefur nú gefið út skilgreiningar um vottun verkefnastjóra og eru þær notaðar við vottun hjá Verkefnastjórnunarfélagi íslands. Verkefnastjómunarfélag íslands hefur nú í tvö ár staðið fyrir alþjóðlega viður- kenndri vottun á verkefnastjórum sem, ásamt því að vera viðurkennd af IPMA, er einnig viðurkennd af alþjóðlega verkefna- stjórnunarsambandi Ameríku (PMI), en þeir hafa vottað verkefnastjóra til rnargra ára. I dag hafa 9 einstaklingar hér á landi fengið IPMA CPM vottun og 6 hafa lagt inn umsóknir fyrir næsta vottunarferli sem hófst nú í október. Skammstöfunin CPM stendur fyrir Certificated Project Manager. Frá upphafi hefur Verkefnastjórnunar- félagið fengið til liðs við sig reynda erlenda matsmenn til þess að taka þátt í framkvæmd ferlisins hér á landi. Það hefur verið gert vegna þess að við höfum enn ekki viður- kennda íslenska matsmenn, aðra en frum- matsmenn. Frummatsmenn eru þeir sem eru útnefndir af félögum einstakra landa sem aðilar með mikla og viðurkennda reynslu á sviði verkefnastjórnunar, án þess þó að hafa gengið í gegn um skilgreint vott- unarferli. Hlutverk frummatsmanna er að jafna út hugsanlegan mun milli innlendra umsækjenda og erlendra matsmanna á grundvelli þjóðfélags, hefða, menntunar, skipulags og fleira. Frummatsmenn hjá félaginu eru í dag þeir Egill Skúli Ingi- bergsson, Jónas Frímannsson og Guð- mundur Pétursson, allt margreyndir verk- efnastjórar til fjölda ára. Avinningur fyrir einstaklinginn af vottun sem verkefnisstjóri byggir meðal annars á því að vottunin er staðfesting á hæfni við- komandi og reynslu sem verkefnisstjóri. Þessi staðfesting veitir jafnframt sam- keppnisforskot og er hluti af starfsþróun einstaklingsins, ásamt því að veita titil sem hefur alþjóðlega viðurkenningu. Fyrir fyrirtækin er vottun starfsmanns staðlað mat á hæfni hans sem verkefnisstjóra og 30 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.