Tölvumál - 01.12.1998, Síða 32
Verkefnastjórnun
Á myndinni eru þeir
aðilar sem hlutu
IPMA CPM vottun I
júní 1998, f.v.
Kolbeinn Kolbeinsson
og Þórður Víkingur
Friðgeirsson, ásamt
umsjónarmönnum vott-
unarferlisins fyrir hönd
VSFI, jbe/'m Ómari
Imsland og Steinunni
Huld Atladóttur.
umsóknareyðublað og sjálfsmatsblað. Auk
þess þarf að fylgja æviágrip og fyrstu drög
að verkefnaskýrslu (um 300 orð eða 1 -2
A4 síður). Sjálfsmatið er til þess ætlað að
gera umsækjanda kleift að nreta eigin styrk-
leika og veikleika í aðferðafræði verkefna-
stjórnunar áður en lengra er haldið í vott-
unarferlinu.
Vinnufundur: Tilgangur vinnufundarins
er að skerpa og samræma notkun á hinum
ýmsu hugtökum sem notuð eru í verkefna-
stjórnun, ekki síst vegna þess að bæði
erlendis og hérlendis er nokkuð um að
sama hugtakið sé notað yfir mismunandi
hluti. Vinnufundurinn er þannig upp-
byggður að þátltakendum er skipt í verk-
efnahópa sem er gert að leysa ákveðið verk-
efni samkvæmt aðferðafræði verkefna-
stjórnunar á einunr og hálfurn degi.
Verkefnaskýrsla: Verkefnaskýrslan er lýs-
ing umsækjanda á verkefni sem hann
hefur stýrt að hluta eða í heild. Ahersla er
lögð á framgang verkefnisins annars vegar
og hins vegar hlutverk umsækjanda sem
verkefnisstjóra. Umfang skýrslunnar er
miðað við 15-30 A4 bls., auk fylgigagna.
Við mat á skýrslunni er megináhersla lögð
á hvernig umsækjandi skýrir verkefnið,
umhverfi þess, eigið hlutverk og þann
lærdórn sem draga má af verkefninu.
Viðtal: I viðtalinu fylgir umsækjandi verk-
efnaskýrslunni eftir og svarar fyrirspurn-
unr nratsmanna um efni skýrslunnar og
hlutverk sitt sem verkefnisstjóra. Viðtalið
fer fram á ensku.
Vottunin: Eftir viðtalið taka matsmenn af-
stöðu til þess hvort viðkomandi umsækj-
andi uppfylli skilyrði til þess að fá vottun
sem verkefnastjóri samkvænrt skilgrein-
ingum IPMA.
Islensku verkefnisstjórarnir útskrifaðir
IPMA CPM eru: Sigurður Ragnarsson,
Forverki, Geir Þórólfsson, Hitaveitu Suður-
nesja, Karl Friðriksson, Iðntæknistofnun,
Steinar Friðgeirsson, RARIK, Ingólfur
Hrólfsson, Hitaveitu Reykjavíkur, Logi
Kristjánsson, framkvæmdastjóri VFI og
TFÍ, Gunnlaugur Hjartarson, LH Tækni,
Kolbeinn Kolbeinsson, Istaki og Þórður
Víkingur Friðgeirsson Tæknivali.
Steinunn Huld Atladóttir er varaformaður
VSFI og umhverfis- og gæðastjóri RARIK
Omar Imsland er formaður VSFI og
yfirverkfræðingur hjá Landsvirkjun
32
Tölvumál