Vísir - 29.11.1962, Page 2
2
V1SIR . Fimmtudagur 29. nóvember 1962.
METJÖFNUN OG ÁGÆT
AFREK í VOLGRILAUG
SYNIR I MOKKA
Fyrsta sundmót vetrar-
ins, Sundmót Ægis, fór
fram í miklum öldugangi
og í volgu vatni Sundhall-
ar Reykjavíkur í gær-
kvöldi. Tíu sentimetra
vantaði á að laugin væri
full, sem er mikið atriði til
að minnka öldugang, og
hiti vatnsins var sagður
vera um 30 gráður, en ekki
er heppilegt að hitinn sé
meiri en ca. 24 gráður.
Samt skapaðist þama
nokkur árangur, og Guð-
mundur Gíslason vann það
afrek að jafna Islandsmet
sitt í 50 metra baksundi við
þessar aðstæður og sveit
ÍR var heldur ekki langt
frá meti sínu í 4x50 metra
skriðsundi.
Guðmundur Gíslason bar á þessu
móti ægishjálm yfir aðra keppend-
ur, en gaman er að sjá marga
yngri mennina, sem greinilega eru
í mikilli framför. Guðmundur vann
allar greinar, sem hann tók þátt f,
enda ekki vanur að tapa keppnum
við innlenda sundmenn. Guðmund-
ur vann 100 metra skriðsund á 59.9
— 50 metra baksund á hinum á-
gæta tfma 30.9 sek., sem er jafnt
Islandsmetinu, og að lokum var
Guðmundur með f sveit iR, sem
synti 4x50 metra skriðsund á . 1.50.3
sek., nokkrum brotum lakara en
met sveitarinnar.
Hörður Finnsson þurfti ekki mik
ið að taka á f 100 metra bringu-
sundinu en hafði hinn efnilega Er-
iing Jóhannsson á undan mestalla
leiðina, en endasprettur Harðar lét
ekki á sér standa og tryggði hon-
um sigur á 1.16.3, en Erlingur fékk
1.18.1. Meira átak þurfti Hörður
til að sigra í 100 metra einstakl-
ingsfjórsundi, þar sem aðalkeppi-
nautur hans var Pétur Kristjáns-
son úr Ármanni, góð æfing Harð-
ar færði honum sigurinn þó ekki
væru yfirburðirnir miklir. Hörður
vann 3. sigur sinn í boðsundinu.
Hrafnhildur átti ekki í erfiðleik-
um með sfna grein og vann 100
metra bringusund mjög örugglega
hálfri laugarlengd á undan næstu
stúlku.
Unglingasundin voru mörg
hörkuspennandi og þátttaka mjög
góð.
U r s 1 i t: '
100 m. skriðsund karla:
Guðm. Gíslason, iR, 59.9
Guðm. Þ. Harðarson, Æ, 1.04.0
Davíð Valgarðsson, iBK, 1.05.2
100 m. bringu.sund karla:
Hörður B. Finnsson, ÍR, 1.16.3
Erlingur Jóhannsson, KR, 1.18.1
Þorvaldur Guðnason, KR, 1.24,2
100 m. bringusund kvenna:
Hrafnh. Guðmundsd., ÍR, 1.25.6
Kolbrún Guðmundsd.,ÍR, 1.37.7
Guðfinna Jónsdóttir,, SH 1.42.1
50 m. baksund karla:
Guðmundur Gíslason, ÍR, 30.9
Guðmundur Guðnason, KR, 35.8
Guðberg Kristinsson, Æ, 38.2
100 m. einstaklingsfjórsund karla:
Hörður B. Finsson, IR, 1.10.7
Pétur Kristjánsson, Á, 1.12.8
Guðm. Þ. Harðarson, Æ, 1.15.2
4x50 m. skriðsund karla:
ÍR 1.50.3
Ármann 1.56.9
KR 2.03.1
50 m. bringusund telpna:
Kolbrún Guðmundsd., ÍR, 43.0
Evrópubikcmnn;
Leiktafir færíu
Skovbakken sigur
Skovbakken vann Ieik sinn í Ev-
rópubikarnum í handknattleik í
gærkvöldi, en andstæðingar liðsins
nú var Fredensborg f Osló, stærsti
„hluthafinn" í landsliðinu sem
vann V-Þjóðverja um sfðustu
helgi. Leikurinn í gærkvöldi var
mjög lélegur af beggja hálfu og
finnskur dómari eyðilagði leikinn
mikið, sagði NTB í skeyti um
leikinn. Einkum fór það í taugar
hinna 1200 áhorfenda hve dómar-
inn leyfði Dönum mikið að tefja,
sem þeir notuðu óspart. Hi... veg-
ar var þetta leikbragð Dananna vel
útfært og greinilegt var að þeir
voru betra liðið.
Mörkin i leiknum skoruðu —
Skovbakken: Sandhöj 6, Skaarup
2, Thomsen 1 og Bertram 1. —
Fredensborg: Gunnerud 3, Larsen
2, Ringlund 1, Svastad 1, Leven 1,
Yssen 1.
50 m. skriðsund drengja:
Davíð Valgarðsson, IBK, 28.2
50 m. skriðsund telpna:
Ásta Ágústsdóttir, SH, 35.4
Áhorfendur voru allmargir í
Sundhöllinni í gærkvöldi, en betra
má skipulagið vera á mótunum f
vetur, einkum og sér í Iagi með
tilliti til árangurs, eigi hann að
nást góður.
— jbp —
Um þessar mundir stendur yfir á Mokka-kaffi sýning ungs listamanns,
Guðmundar Á. Sigurjónssonar. Guðmundur, sem er aðeins 18 ára, er
prentmyndanemi, en í frístundum sínum málar hann og teiknar. Guð-
mundur hefur stundað nám í Handíða- og myndlistaskólanum undan-
farna vetur, og er þetta fyrsta sýning hans. Myndimar, sem eru 21 að
tölu, eru gerðar með tússi, þekjulitum, koli og glerþrykki. Þær eru
allar til sölu og eru í trérömmum, sem listamaðurinn hefur smíðað
sjálfur. Sýning Guðmundar Á. Sigurjónssonar hófst s. I. sunnudag og
mun standa tvær vikur.
Vinnuslys
á Akureyri
Vestur-Þjóðverjar buðu nýlega hnefaleikamönnum frá Kamerún-Iýðveld-
inu á Fílabeinsströndinni í kynnisför um Þýzkaland, svo að þeir
gætu kynnzt fþrótt sinni þar. Myndin hér að ofan er tekin af einum
þátttakanda frá Fílabeinsströndinni, Mosis Niamke, sem heldur á ung-
um aðdáanda, sem hann kynntist í Berlín.
Akureyri f morgun.
Næsta alvarlegt vlnnuslys varð í
klæðaverksmiðjunni Gefjuni á Ak-
ureyri nýlega, er elnn starfs-
manna verksmiðjunnar fór með
hönd f kembivél.
Það var um níuleytið í gærkveldi,
er Snorri Guðmundsson, starfsmað
ur í Gefjuni, var að starfi við
kembivél verksmiðjunnar, að hann
lenti með höndina í vélinni og slas-
aðist illa. Skinn og hold flettist af
handarbakinu frá úlnlið og fram
á fingur, svo að á beini stóð. Auk
þess sem holdið tættist af hend-
inni, fór ull í sárið og leit það
mjög illa út.
Snorri var þegar f stað fluttur f
sjúkrahúsið, þar sem gert var að
meiðslum hans, í morgun var líðari
hans sæmileg eftir atvikum, að þvi
er yfirlæknir sjúkrahússins taldi.
Kembivélin, sem þarna er um að
ræða, er samstæða af þéttum vír-
settum völsum og þarf — eins og
við aðrar vélar — að gæta fyllstu
varúðar við þær. Snorri Guðmunds
son hefu að visu starfað um margra
ára skeið í Gefjuni, en lengst ai
við annað starf og var tiltölulega
nýbyrjaður að starfa við kembivél-
arnar.
Sundmót ÆGIS:
VALBJÖRN:
4.20 á
K.R.
Valbjöm Þorláksson
stökk 4,20 metra í stang-
arstökki í KR-húsinu á
innanfélagsmóti í gær-
dag. Er árangur Val-
stong i
■húsinu
bjöms bezti árangur í
greininni innanhúss, en
íslandsmet eru ekki
skráð í þeirri grein, en
til óopinberlega.
Ók brott
of slysstað
Um sjöleytið f fyrrakvöld barst
lögreglunni tilkynning um að 6
ára gömul telpa hefði lent í bílslysi
á Gnoðavogi, en bílstjórinn hafði
ekið á brott án þess að nemá stað
ar eða skeyta um telpuna.
Ekki er fyllilega ljóst hvernig
slysið bar að höndum, hvort telp-
an hefur hlaupið á bifreiðina, eða
orðið fyrir henni. Sem betur fór
slapp hún með lítil meiðsli, hlaut
kúlu á enni og rispur á kinn.
í gær var lögreglunni ennfremur
tilkynnt um slys, sem orðið hafði
í heimahúsi, þar sem stúlka hafði
'hrasað og meitt sig. Hún var flutt
í slysavarðstofuna.