Vísir


Vísir - 29.11.1962, Qupperneq 7

Vísir - 29.11.1962, Qupperneq 7
7 V 1 S I R . Fimmtudagur 29. nóvember 1962. Vegna FLUTNINGS verður BIFREIÐADEILD vor lokuð FÖSTU- DAGINN 30. nóvember. SjóvfltrgqqiHramtag íslands Gjaldeyrisleyfi fyrir smíðajárni og stáli Peir viðskiptamenn okkar sem kynnu að eiga ónotuo gjaldeyrisleyfi fyrir smíðajámi og stáli eru vinsamlega beðnir að hafa samband við okkur sem fyrst þar sem tilfinnanleg vöntun er á fjölmörgum stœrðum og gerð- um af smíðajárni og mörg verk stöðvuð þess vegna. Fokhelt hús til sölu í Hafnarfirði Hér með er óskað eftir kauptilboðum í húsið no. 14 við Háabarð í Hafnarfirði í því ástandi sem það er nú. > Húsið er nú fokhelt, múrhúðað utan, þak járn- klætt og gluggar eru með tvöföldu gleri. Með kauptilboðinu ^kal fylgja: 1) Vottorð skattstofu (skattstjóra) um efnahag 2ja síðustu ára, ásamt 2) vottorði manntalsskrifstofu (eða bæjarstjóra). um fjölskyldustærð. 3) I kauptilboðinu skal og greina hve mikil út- borgunargeta er. Tilboðum ásamt framantöldum gögnum sé skilað í skrifstofu Húsnæðismálastofnunar ríkisins, Lauga- veg 24 3. hæð fyrir kl. 12 á hádegi föstudaginn 7. des- ember n. k. Húsnæðismálastofnun ríkisins. Hiolbardoverkstæðid Millan Opin alla daga frá kl. 8 að morgm til kl. 11 að kvöldi. Viðgerðir á alls konar njólbörðum. — Seljum einmg allar stærðir hljóbarða — Vönduð vinna. — Hagstætt vferð. M 1 L L A N Þverholti 5. Gamla bílasalan tiefir alltaf til sölu mikið úrval af nýjum og eldri oílum, af öllum stærðum og gerðum og oft litlar em engar útborganir. Gamla bílasalan //Rauðará Skúlagötu 55 Sími 15812. Selur: Mercedes Benz 219 '57 og Mercedes Benz 190 '57 og Opel Oapitan ’57. Allir bilamir nýkomnir til landsins. Bíia- og búvélasaian við Miklatorg, sími 23136. » í'Tercedes Benz 180 ’55. Gott verð. Zephyr s... ’55, selst án útborgun- ar gegn góðri tryggingu. Jeppar, flestar árgerðir og tegundir. Ford pickup ’53 allur nýupptekinn. Ford ’54, mjög góður 6 cyl. bein skiptur 4ra dyra. Ford '50 4 dyra verð 25 þús. Útborgun 10 þús. Bifreiðaeige .ur og bifreiða- kaupendur, gjörið svo vel og reyn ið viðskiptin. Við munum kapp- kosta að gefa yður góða og fljóta þjónustu. smm $mm imn - AUGLÝSIÐ í VÍSI - Sættir fjármagns og vinnu — stærsta vandamál þjóðfélagsins — fprnleifagröftur — fiskiðnskóli - fólksfækkun á Vestfjörðum. Þegar sagt er frá þingfundum á Alþingi í gær, verður tvímæla laust fyrst að mir.nast á þær umræður, sem urðu um vinnu- deilur, þ. e. sættir vinnuafls og fjármagns. Tvær tillögur þess efnis voru teknar fyrir í gær, báðar frá fulltrúum stjórnar- flokkanha, og þótt deila megi um gildi þeirra og tilhögun, ber að fagna því, að vakið er máls á þessu í þinginu. Magnús Jónsson var flutnings maður annarrar tillögunnar, sem kemur frá þrem þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, og er þess eðlis að starfsmenn eignist hlut deild í rekstri og arði fyrirtækja. Magnús benti réttilega á, að hér væri um stærsta vandamál okk- ar þjóðfélags að ræða. Illvígar deilur og verkföll hindruðu og hafa hindrað eðlilega þróun efnahagslífsins á þann hátt að óviðunandi er. Jón Þorsteinsson (A) mælti fyrir hinni tillögunni, sem fram hefur komið um þetta efni, en Hann vill að starfsfólk fái launabætur hjá atvinnufyr- irtækjum, en leggur hins vegar ekki til að starfsfólkið gerist eig éndur að fyrirtækjum. Jón legg- ur fyrst og frémst áherzlu á, að þetta fyrirkomulag verði tekið upp hjá samvinnufélögum, að þau fari inn á þetta svið og hafi forgöngu þar um. Báðir, þ. e. Magnús og Jón, lögðu áherzlu á að koma upp hagfræðilegri fræðslu meðal launþega t.l að sýna á hvern hátt bezt sé hægt að bæta afkomuna. Og einmitt þetta ariði er hvað þýðingarmest, þegar rætt er um sættir vinnuafls og fjár- magns. Það verður að gera hin- um almenna launþega, hverjum og einum, ljóst, hvaða áhrif kauphækkanir hafi, hvað sé hægt að ganga langt hverju sinni, svo til raunverulegra bóta komii Það er ekki aðalatriðið, eins og Magnús Jónsson benti rétti- lega á, hvort hans tillaga um hlutdeildar og arðskiptingu, eða einhver önnur, nái fram að ganga, heldur hitt, að þessi mál séu tekin á dagskrá, rædd og hugsuð á ábyrgan hátt. Þetta er ekki hagsmunamál einstakra þingmanna og stjórnmálamanna, heldur þjóðarinnar allrar, og þá allra helzt launþeganna. Alfreð Gíslason og Skúli Guðmundsson tóku einnig til máls undir þessum dagskrárlið- um. Benedikt Gröndal reifaði til- lögu sína um byggingarfram- kvæmdir og fornleifarannsóknir í Reykholti í Borgarfirði. Hann minnti á, að aðeins lítill hluti af Snorragöngum hefði verið grafinn upp, en göngin ru eins og kunnugt er einna merkust fornleifa, sem hér hafa fundizt. Ástæðan fyrir því, að ekki hefði verið grafið meira upp og rann- sakað frekar, væri sú, að á sama stað stæði nú íþróttahús stað- arins. Það mun hafa verið byggt fyrir 30 árum síðan, þá til bráðabirgða, og nú er kominn tími til, sagði Benedikt, að rlfa það hús og byggja annað, ekki sízt með tilliti til þeirra tvímæla laust merku fornleifa, sem er að finna þar undir. Jón Skaftason mælti fyrir til- lögu sinni um fiskiðnskóla, og þar sem á nauðsyn þess máls hefði bæði verið minnzt á í Vísi og Alþýðublaðinu nýlega, gerði hann sér vonir um stuðn- ing stjórnarflokkanna í máli þessu. Gísli Jónsson mælti fyrir til- lögu sinni um vegabætur á Vestfjörðum og drap á í því sambandi þann óhugnanlega flótta, sem verið hefur frá Vest fjörðum síðasta aldarfjórðung- inn. Síðastliðin 25 ár hefur fólki samtals fækkað um 2500, eða 20%, þrátt fyrir að fjölgað hafi í öllum öðrum landshlutum Is- lands. Meá þessu áframhaldi leggst Vestfjarðakjálkinn í auðn áður en langt urn líður, sagði ræðumaður. Gfsli, kenndi hér um sam- gönguleysi, einangrun kjálkans frá umheiminum og rakti í því sambandi samgöogur þær, sem við fjórðunginn væru. Áleit hann, að hér þýrfti mik- il bót á að verða, ekki sízt með tilliti til þess, að tekjur Vest- firðinga og útflutningsverðmæti afurða þeirra væru hærri en nokkurra annarra landsmanna. Alfreð Gíslason mælti fyrir geðveikralögum og Ágúst Þor- valdsson fyrir auknum stuðn ingi ríkisins í heyverkun. Þá fylgdi Jón Þorsteinsson ú hlaði tillögu sin. um . mnsh grasmjöls á Skagaströnd.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.