Vísir - 10.12.1962, Page 2
2
VlSIR . Mánudagur 10. desember 1962.
*
■'njS Li—| |—d L«—-i |—J
=nr ‘T
r/, V////M y//////////'m w////////m y/////2
Hið sigursæla lið Framara.
Handknaftleikur:
Framarar sigurvegar
fyrir Víkingsleikinn
FRAMARAR gengu til leiks í gær sem Reykjavíkur-
meistarar í handknattleik gegn Víking. Ástæðan fyrir
því var sú, að KR hafði í leik nokkru áður gert keppi-
naut Framara, ÍR, óskaðlegan með 18:14 sigri, sem
var nokkuð óvænt. Þriðji leikurinn í mfl. karla var
sigur Ármanns yfir Val 18:16, sem dæmir Val í botn-
sæti keppninnar. Ármann vann mfl. kvenna þetta
kvöld í lélegum leik við Val.
Leikur Ármanns og Vals reis
aldrei hátt og var lengst af ömur-
, legt dæmi um hve handknattleik-
urinn að Hálogalandi er frábrugð-
inn þeirri íþrótt, sem iðkuð er í
stærri sölum. Ármenningar voru
mun betri aðilinn, einhvern veginn
] tókst þeim aldrei að hrista Vals-
menn af höndum sér nema stutta
: stund í einu. Ármenningar voru
yfir í 6:1 og 8:3, en Valsmenn
Norðmenn unnu Frakka
— næsta verkefn: ís-
lenzka landsliðsins í
handknattleik — í lands-
leik í Njárdhallon í gær-
dag með 17:12.
í NTB-skeyti segir, að Norð-
menn hafi sigrað mjög örugg-
lega og leikið mun betur en
Frakkarnir. í hálfleik var stað-
an 8:5 fyrir Norðmenn. Fyrri
hálfleikurinn var þó jafn en síð-
ari hálfleikurinn var að mestu
eign Norðmanna og þá fyrst
komst nokkur hraði í leikinn.
Norðmenn höfðu allan leik-
inn yfirhöndina, í fyrri hálfleik
yfirleitt með eitt mark yfir, en
í síðari hálfleik fór að síga sund
ur með liðunum. Norðmenn
komust 6 mörk yfir í 13:7, en
Frakkar minnka í 13:10. Leik-
urinn varð nokkuð harður og
margir leikmanná fengu áminn-
ingar frá hinum ágæta danska
dómara, Knud Knudsen.
Af Norðmönnum voru beztir
Arild Gulden og markvörðurinn
Klepperas, en af Frökkunum
var langbeztur fyrirliðinn Chast-
anier. Markvörður Frakka stóð
sig og vel, en hann heitir Arm-
bruster. Mörkin skoruðu: Arild
Gulden (3), Knut Ström (3),
Erik Vellan (3), Kai Ringlund
(2), Erik Schönfield (2), Thor-
stein Hansen, Kjell Svestad,
Knut Larsen og Jon Arne Gunn-
erud 1 hver fyrir Norðmenn,
en Chastanier (6), Paolini, Vig-
nat, Portes, Richard og Cholay
1 hver fyrir Frakka.
ísland hefur einu sinni keppt
við Frakka. Var það í HM í
Þýzkalandi fyrir nær 2 árum og
unnu okkar menn 20:13. — Þá
unnu Norðmenn okkur hins veg-
ar í 2 landsleikum 25:22 og
27:20, en miklar breytingar
hafa orðið síðan og ekki ráð-
legt að spá hvernig fer fyrir
íslenzka Iandsliðinu í febrúar
n.k., þegar það leggur til atlögu
við franska liðið, sem vann
heimaleik sinn við Norðmenn
fyrr i vetur.
voru nær búnir að jafna I 9:8 og í
hálfleik var staðan 10:9 fyrir Ár-
mann. Síðari hálfleikurinn var svip
aður þeim fyrri með það að Ár-
menningar komust hreinlega yfir
með 18:12, en þá tóku Valsmenn
við og skoruðu síðustu 4 mörkin.
Ekki var leikur neinna umtals-
verður í liðum þessum, en þó var
Lúðvík Lúðvíksson öft skemmtileg-
ur og lumar á mörgum brögðum,
sem aðrir kunna ekki. í Valsliðið
vantaði Sigurð Dagsson og líklega
hefur sá missir svipt Val sigri að
þessu sinni.
Leikur iR og KR markaðist mest
af „stjörnum" liðanna, einkum
Reyni og Karli hjá KR og Gunn-
laugi og Hermanni hjá ÍR. Reynir
og Karl skoruðu 13 af 18 mörkum
KR og áttu stóran þátt í hinum
auk þess sem þeir unnu vel í vörn.
Leikurinn sjálfur var mjög bragð-
daufur eins og fyrri leikurinn og
náði aldrei til áhorfendanna.
iR komst snemma í leiknum í
4:1, sem KR-ingar jafna og bæta
við í 7:4 og skora sem sé 7 mörk
í röð. í hálfleik var staðan 10:6
Þeir
skoruðu
mörkin:
Að afloknu Reykjavíkurmótinu í
handknattleik cru 15 markhæstu
menn þessir:
Gunnlaugur Hjálmarsson ÍR 34 m
Ingólfur Óskarsson Fram 30 —
Karl Jóhannsson KR 27 —
Reynir Ólafsson KR 24 —
Hörður Kristinsson Ármanni 22 —
Hermann Samúelsson ÍR 19 —
Grétar Guðmundsson Þrótti 18 —
Árni Samúelsson Ármanni 18 —
Axel Axelsson Þrótti 17 —
Bergur Guðnason Val 17 —
Jóhann Gíslason Víking 16 —
Guðjón Jónsson Fram 16 —
Sigurður Einarsson Fram 16 —
Rósmundur Jónsson Víking 15 —
fyrir KR. Síðari hálfleikurinn var
mjög jafn og mátti vart á milli
sjá, en aldrei tókst ÍR-ingum þó
að ógna KR svo að gagni væri.
Hins vegar bættu KR-ingar á tíma-
bili við forskoti í 9:14 og 11:16,
en síðustu mínúturnar færðu ÍR í
sama horfið og í lok fyrri hálf-
leiks, — fjögurra marka forskot,
18:14 fyrir KR.
Frh. á bls. 5.
Sigurvegaror
Andreas Bergmann, stjórnarfor-
maður í ÍBR, afhenti í gærkvöldi
verðlaun til sigurvegara í Reykja-
víkurmótinu í handknattleik, en
þeir eru þessir:
Mfl. kvenna: Ármann
2. fl. kv. A: Ármann
B: Fram
Mfl. karla: Fram
1. fl. k.: Ármann
2. fl. k. A: Valur
B: Óútkljáð
3. fl. k. A: Valur
B: Fram
Framarar unnu bikarinn í mfl.
karla f 3. sinn í röð og eignast þar
með grip þann, sem keppt hefur
verið um, en KR vann þennan bik-
ar í fyrsta sinn sem um hann var
keppt /yrir 4 árum.
Leikirnir á laugardagskvöldið
voru hörkuspennandi, en áberandi
þar voru hinar rauð-svart strípuðu
skyrtur Víkinganna. Fimm sinnum
kepptu þeir þetta kvöld til úrslita
og jafn oft töpuðu þeir leikjum
sínum. Er þetta ekki í fyrsta sinn
sem þetta hendir Víking, því á Is-
landsmótinu fyrir 2 árum var ein-
mitt þetta sama uppi á teningnum.
I 2. fl. B kepptu Fram, Valur og
Víkingur og hafa öll 2 stig og verð-
ur að leika mótið upp að nýju, en
ákvörðun hefur enn ekki verið tck
in um hvernig það verður fram-
kvæmt.
STIGIN:
Staðan að loknu Reykjavíkurmót
inu f handknattleik: Fram . . 6 5 1 0 101:77 11 stig
I. R. ... 6 3 1 2 85:92 7 —
Víkingur 6 3 0 3 73:69 6 —
Ármann 6 3 0 3 71:68 6 —
Þróttur 6 2 2 2 69:73 6 -
K. R. . . 6 2 0 4 75:80 4 —
Valur . 6 0 2 4 69:88 2 —
Ein úr Ármanni brýzt í gegnum vörn Víkings og skorar.
/