Vísir - 09.01.1963, Síða 3
V1 SI R . Miðvikudagur 9. janúar 1963,
3
Nýr dans
„Hully-gully44
breiðist út eins og eldur í sinu
Nú eru liðin nærri tvö ár síð-
an hinn fjörugi dans twist
skaut fyrst upp kollinum á litlu
og lítt þekktu veitingahúsi í
New York.
Margir tóku twistinu fá-
lega í fyrstu, töldu það grófan
og allt að því dónaiegan dans.
Þess má m. a. minnast, að ís-
lenzkur danskcnnari lýsti því
yfif að hann myndi aldrei kenna
hann, þar sem hann væri 6-
sæmilegur.
En ekkert dugði tii að hindra
sigurför hans um heiminn.
Twistið breiddist óstöðvandi út
og þótti dansinn svo fjörugur og
skemmtilegur, að eldri dansar,
svo sem rokkið bliknuðu við
hliðina á honum.
Veitingahúsið í New York,
þar sem hann kom fyrst upp,
heitir Piparmintuklúbburinn og
er það nú heimsfrægt orðið og
hefur fólk haldið áfram að
flykkjast þangað úr Bandaríkj-
unum og jafnvel frá fjarlægum
löndum. Það hefur þótt
skemmtilegt ævintýri að fá að
dansa twist á þessum fræga
stað.
En allt á sinn endi, líka
twistið og nú berast þær fregn-
ir vestan frá Bandaríkjunum,
að enn sé þar kominn fram á
sjónarsviðið nýr dans, sem velti
twistinu úr sessi. Og það merki
Iegasta við þetta er, að nýi
Frh. á bls. 10.
Myndotextar
Á þessum myndum sýnir hinn
kunni bandaríski söngvari
Little Tony og dansmær ein
sporin í nýja dansinum. Little
Tony var áður fyrr frægur
rokk-maður, en hefur nú snú-
ið baki við rokkinu og teiur
hann hully-guliy skemmtileg-
asta dansinn sem hann hefur
kynnzt. Hér er fyrsta sporið.
Dansararnir standa hlið við
hlið, rétta fram hægri fót og
Iclappa saman lófunum.
Önnur hreyfing: Dansararnir
taka þrjú spor tii hægri og
ljúka þeim með því að setja
vinstri fót fram.
Þriðja hreyfing: Dansparið
snýr sér í hring á einum fæti.
Síðan Iyfta þau vinstra fæti,
leggja hendurnar niður með
hliðunum og mega nú iihprovi-
sera, reka upp ýms hljóð,
herma eftir frægum persónum
eða dýrum og því næst kippast
hendur og fætur eins og þeir
hafi orðið fyrir rafmagns-
straumi. Á þessu stigi verður
dansinn vilitastur.
Fjórða hreyfing: í hinum
villtu hreyfingum hefur herr-
ann gripið hönd dömunnar. Nú
stiliist dansinn og þau ganga
þrjú skref aftur á bak og Iyfta
nú vinstra fæti.
Fimmta hreyfing er kátleg
millihreyfing, þar sem parið
gengur fram í „indíánaröð" og
stígur ferhyrning á gólfinu með
tilheyrandi axlaypptingum og
mjaðma og handleggshreyfing-
um. Svo er byrjað upp á nýtt.
\