Vísir - 09.01.1963, Síða 6

Vísir - 09.01.1963, Síða 6
V í S IR . Miðvikudagur 9. jnnúar 1963, fi SPW.lflllS ■-.'c1" iy : . * tvítiigi ódæðismaður í gæzliivarðhaldinu í Halden. Eltingaleikur að bíl númer BE-75009 Hörmuiegt leigubílstjóra- morð í Danmörku Á mánudaginn lauk á suður- strönd Noregs geysilega mikilli leit og eftirför að dönskum morðingja, sem hafði ráðizt að leigubílstjóra i bænum Holbæk á Norður-Sjálandi, drepið hann, rænt hann peningum. Síð- an tók hann leigubílinn, flutti hann með ferju frá Helsingör yf ir Eyrarsund og ók svo upp með aliri vesturströnd Svfþjóð- ar tii Oslóar og síðan suður Vestfold til bæjarins Grimstað, sem er suður við Lfðandisnes í Noregi. Þaðan sneri hánn aftur tii Osló og nú suður eftir Aust- fold, austan megin Osló-fjarðar. Þar var hann loksins handtek- inn í bænum Halden við sænsku landamærin, aðfaranótt mánudagsins, á gistihúsi þar sem hann hafði fengið sér gist- ingu. Hinn handtekni er 20 ára piltur að nafni Ove Jörgensen. ★ Leigubílstjóramorð þetta hef- ur vakið hinn mesta hrylling um alla Danmörku og í nágranna- löndunum. Hafa danskir leigu- bílstjórar endurnýjað fyrri kröf- ur sínar um að öryggisgler verði sett í allar leigubifreiðir milli ökumannssætis og farþegasæta. Leigubílstjórinn var ungur mað- ur, 24 ára, að nafni Erik Jensen. Hann fannst látinn í snjóskafli á eyðilegu bílastæði í Norð- ur-Sjálandi. Var það fjórtán ára skósmíðanemni, sem fann hann þar. Um sama Ieyti fór leigubílstöðin, sem átti leigu- bílinn, að undrast um bílinn, sem hafði horfið tveimur dögum áður. Var nú fyrst farið að grennslast eftir bílnum, sem var nr. BE-75000 og var auglýst eft- ir þessu bflnúmeri í útvarps- stöðvum allra landanna, Dan- merkur, Svíþjóðar og Noregs. Það virtist þegar sýnt, að morðið hefði aðeins verið fram- ið sem liður í peningaráni. Veski leigubílstjórans með 200 dönskum krónum hafði horfið. Þessi smávægilega peningaupp- hæð kostaði hann lífið. ★ Lögreglan bjóst tæpast við því að ódæðismaðurinn gerðist svo djarfur að aka sjálfur um í leigubifreiðinni. En bráðlega fóru að berast fréttir af henni. Nokkrir strrfsmenn einnar bfla- ferjunnar yfir Eyrarsund minnt ust þess að hafa séð svartan Mercedes-bíl fara yfir sundið ög minntust þeir þess sérstaklega hve mikill asi hafði verið á öku- manninum. Þetta kom lögregl- unni á sporið. Næstu daga var stanzlaust auglýst f útvarpsstöðvunum eft- ir bíl nr. BE-75000 og upplýs- ingar fóru að berast sem bentu til þess, að hann hefði verið á sveimi í Suður-Noregi, enda Bandaríkin aðvara EBE Landbúnaðarráðherra Banda- rikjanna varaði efnahagssamtölc Evrópu (EBE) við því i gær í ræðu, sem hann flutti í Miami Beach Florida, að koma sér upp tollmúrum til þess að bægja banda rískum landbúnaðarafurðum frá Ráðherrann, Orville Freeman, kvað slíkt mundu geta leitt til gagnaðgerða, svo sem niðurskurð- ar á efnahagsaðstoð við erlend ríki. Freeman kvað Bandaríkin hafa miklar áhyggjur af verndarstefn- kom það síðar á daginn. Svo vildi ,til að hinn tvítugi maður, sem talinn §“hafá"unprið‘^dæðiá verkið, átti unnusi,ul.I,r,bænum Grimsstað í Suður-Noregi og hafði hann komið heim til henn- a,r skemmt sér með henni og farið með henni í skemmtiferðir í bílnum. ★ Þegar norsku lögreglunni bár ust fréttir af bílnum við Grims- stað, var heil bifreiðadeild frá Osló send þangað og var leitað um alla vegi fram 'og til baka, mörg þúsund kílómetra vega- lengd. Samtímis var haldið á- fram að útvarpa hvatningum til fólks um að hafa augun opin. En þá var Ove Jörgensen aft- ur kominn langt frá Grimstad og hélt áfram ökuferðinni i hin um svarta leigubíl áleiðis til sænsku landamæranna. Þar tók hann sér gistingu á Grand Hotel. En er hann var kominn upp á herbergi sitt, tók nætur- vörðurinn eftir því að hann hafði ekið upp að hótelinu f svörtum Mercedes bil. Datt hon um í hug að ganga út og at- huga númerið, og þá blöstu við honum einkennisstafirnir BE- 75000. Næturvörðurinn lét ekki drag ast að hringja til lögreglunnar. Öve Jörgensen situr nú f gæzlu- varðhaldi í Halden og bíður þess að verða fluttur heim til Danmerkur, Seint í gærkvöld játaði pilturinn á sig glæpinn. í unni (protektionisma) innan vé- banda EBE, og nefndi hann sem dæmi að útflutningur alifugla til EBE-Iandanna fré Bandaríkjunum hefði minnkað um þriðjung vegna innflutningstollákvæða EBE gagn vart löndum utan bandalagsins. ’ Þetta er eitt þeirra mála, sem ráðherranefndin verður að taka fyrir á fundi sínum í Briissel í þessum mánuði. Afskipta SÞ af Kúbu ekki lengur þörf Bandaríkin og Sovétríkin hafa ;t yfir, að þau telji ekki lengur f afskipta Sameinuðu þjóðanna fúbumálinu, en þau telja Iokið inni alvarlegu deilu, sem upp :om varðandi eyna fyrir 11 vikum, ; vo að í bili virtist sem heimsstyrj | :>ld yrði afleiðingin. Af hálfu fyrrnefndra stórvelda tekið fram, að þótt þau telji deil ,:nni Iokið, sé ekki búið að jafna öll ágreiningsatriði. — Fulltrúi Kúbu er ékki sama sinnis um þessi mál og fulltrúar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og segir afstöðu Bandaríkjanna enn ofbeldislega. Sagt er, að Bandaríkjamenn telji viðunandi ráðstafanir hafa verið gerðar af hálfu Rússa til brott- flutnings eldflauganna, sem um var deilt, og sprengjuflugvéla og annarra vopna, sem árásarvopn geta talist, og Rússar fallist á bá afstöðu Bandaríkjastjórnar að gera ekki innrás á Kúbu. En upp geta komið nú deiluatriði, svo sem varðandi vopn, sem ekki var um vitað, og fleira, og að margra áliti munu Bandaríkin leita nýrra ráða til stuðnings þeim, sem vilja lýð- ræðið endurreist á Kúbu, en ekki þó valdbeitingarráða. Á hersýningu á fjögra ára af- mæli byltingarinnar fyrir Castro. skemmstu var Castro hinn víg- reifasti og sagði, að þótt hundruð innrása væru reyndar á Kúbu myndi engin heppnast. Kom fram á hersýningunni að Kúba hefur enn gnægð vopna — en vitað er að efnahagslega er allt í hönk í landinu. Meðalahneyksli Enn eitt meðalahneyksl- ið hefur nú komið upp í Evrópu. Nú er um að ræða lyfið Primolut, sem hefur verið gefið barnshafandi konum, sérstaklega ef þeim hef- isancsfiEræði Ný tilraun til að bana Nkrumah forseta Ghana var gerð í gær — hin þriðja á misseri. Sprengju var varpað á íþróttavelli, þar sem hann var nýbúinn að ávarpa mikinn ■mannfjölda. Hann var nýfarinn, er sprengjan sprakk. — Margir menn meiddust og voru fluttir í sjúkra- hús. s ur verið hætt við fóstur- láti. Það hefur nú komið í ljós, að lyf þetta hefur mjög slæm aukaáhrif. Skýra dönsk blöð frá því að heilbrigðisyfir- völd þar í landi séu að grípa í taumana, fyrst með því að banna fram- leiðendum og seljendum að auglýsa það meðal lækna. Athuganir sýna að um fimmta hvert stúlkubarn þeirra kvenna, sem nota primolut, fæðist með óeðlilegum kyneinkennum. Á- hrifin eru þau, að börnin missa telpnaeiginleika og líkjast á ýmsan hátt meir drengjum. 1 sumum tilfellum hefur þetta verið svo alvarlegt, að ljósmæð ur og læknar hafa talið að drengur hafi fæðzt, þó þar sé um að ræða telpubarn. Er erf- itt að segja hvaða áhrif þetta getur síðar haft á líf barnsins, en menn óttast að þetta geti leitt til kynvillu. Primolut er eitt hinna mörgu hormónalyfja, sem fundin hafa verið upp á síðustu árum, sem mjög vandfarið er með. Að þessu sinni telja dönsku heil- brigðisyfirvöldin ekki rétt að banna lyfið eins og thalidomid, þar sem afleiðingar þess séu ekki eins alvarlegar og auk þess geti það í sumum tilfellum kom ið að gagni. Hitt sé víst, að með alið hafi verið ofnotað og ó- eðlilegt sé að lyfjafyrirtækin auglýsi það og hvetji til notk- unar þess. Þá virðist vera hægt að lagfæra missmíðina með upp skurði, þó ekki sé málið fylli- lega ljóst. E3 E3

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.