Vísir - 19.01.1963, Síða 1
VISIR
53. árg. — Laugardagur 19. janúar 1963. — 16. tbl.
Strax og þing kemur
saman í enduðum þess-
um mánuði verður nýja
toilskráin lögð fram og
tekin til umræðu.
Hér er um mjög veigamikið
mál að ræða, sem búast má við
að verði eitt höfuðmál þingsins
fram til þingslita. Gert er ráð
fyrir ýmsum breytingum frá nú-
gildandi tollalöggjöf, m. a. nið-
arfellingu söluskattsins.
Ekki er unnt að greina frá
einstökum breytingum á tollum
vöruflokka þar sem efni skrár-
innar er enn algjört trúnaðar-
mál Hefir skráin að undanförnu
verið til athugunar og álitsgerð-
ar hjá ýmsum atvinnusamtök-
um, sem hún snertir.
Harmar frófall góðs manns
Ummæli brezka sendiherrans við fráfall Mr. Gaitskells
Þegar fréttimar bárust af andláti Hugh Gaitskell í gærkvöldi,
hafði Vísir samband við brezka sendiher*ann, Mr. Boothby, og bað
hann að minnast hins Iátna stjómmálamanns með nokkrum orðum.
Mr. Boothby svaraði á þessa leið:
Ég þekkti Mr. Gaitskell vel persónulega, þar sem við stund-
uðum nám við sama skóla, Winchester Coliege. Ég veit að hann
var mjög heiðarlegur maður og náði miklum árangri í áð sameina
mismunandi þætti Verkamannaflokksins. Ég veit ekki hvort honuni
hefði íekizt að færa flokkinn til sigurs, en vel hefði það getað átt
sér stað og hann hefði orðið ágætur forsætisráðherra.
Þar sem ég er opinber starfsmaður, er það ekki mitt að segja
neitt um pólitíska hlið málsins. En persónulega harma ég fráfali
göðs manns.
1
Bergþóra, dóttir Ragnars, með föður sínum i sjúkrabílnum.
Björgunarferí í illviðrí
Um klukkan hálf tvö
í gær kom flugvél frá
varnarliðinu á Keflavík-
urflugvelli með Ragnar
Guðmundsson, bónda á
Hrafnabjörgum í Arnar-
firði, til Reykjavíkur.
Fékk Ragnar heila-
blóðfall og var meðvit-
undarlaus, en kom til
meðvifundar á leiðinni
til Hellissands.
Með í förinni var læknir frá
varnarliðinu og auk þess fór
sonur Ragnars með vestur.
Hann kom svo til baka ipeð hon
um, auk dóttur Ragnars, Berg-
þóru. Líðan Ragnars er nú góð
eftir atvikum.
Blaðið hafði tal af flugstjóra
Douglas flugvélarinnar, sem
flutti Ragnar til Reykjavíkur,
MacKim að nafni og sagði hann
svo frá: „Þetta var mjög vel af
sér vikið hjá flugmönnunum á
Frh á bls 5
HUGH GAITSKELL LÁTINN
Hugh Gaitskell foringi
brezka Verkamannaflokks
ins lézt í gær að Middlesex
sjúkrahúsinu í Lundúnum.
Það var kl. rúmlega 8 í
gærkvöldi eftir íslenzkum
tíma. Kona hans, frú Dóra
Gaitskell, sat við rúm hans
þegar hann missti meðvit-
und og fékk einkenni
hjartakrampa. Hún kallaði
á lækni, sem kom, en gat
ekkert aðhafzt. Gaitskell
andaðist eftir skamma
stund.
Grein í blaðinu á bls. 6 fjallar
um sjúkleika Gaitskells síðustu
daga. Sjúkdóm hans og andlát bar
að höndum þegar höfuð stjórnmála
andstæðingur hans Macmillan á við
vaxandi erfiðleika að stríða og
margir töldu líklegt að Geitskell
yrði orðinn forsætisráðherra lands-
ins eftir kosningar innan tveggja
til þriggja mánaða. En margt hef-
ur bent til þess að gengi Verka-
mannaflokksins og Gaitskells hafi
farið mjög vaxandi síðustu vikurn-
ar. Nú er hins vegar hætt við að
Verkamannaflokkurinn verði fyrir
skakkaföllum þar sem hann má
heito forystulaus eftir fráfall hins
vinsæla foringja.
Framh. á bls. 5.
Áhöfn flugvélarinnar og slökkviliðsmcnn flytja Ragnar úr flugvélinni.
Fl situr hjá við atkvæðagreiðslu
um fargjaldaiækkun SAS
f'lugfélag íslands held
ur ekki uppi flugferðum
milli Evrópu og Amer-
íku og getur því engin
afskipti haft af fargjalda
ákvörðunum á þeirri
leið, sagði Örn Johnson
framkvstj. Flugfélags ís
lands í gær.
Flugfélag íslands er í IATA
— alþjóðasambandi flugfélaga
— ,svo sem kunnugt er. Hefur
að undanförnu verið talsvert um
það rætt manna á meðal, hver
afstaða F.í. væri í þessu máli.
Var Örn Johnson frkvstj. F.I.
spurður um hana á fundi með
fréttamönnum í gær. — Gerði
hann grein fyrir reglum, sem
undantekningarlaust væri fylgt
innan IATA í svona málurn og
í samræmi við undantekningar-
lausar hefðbundnar venjur í
meðferð slíkra mála innan IATA
myndi Flugfélag íslands Sitja
hjá við atkvæðagreiðslu um
þessa fargjaldalækkun.
Örn Johnson kvaðst hafa orð-
ið þess var, að ýmsir hefðu
spurt um afstöðu Flugfélags ís-
lands og fagnaði hann því tæki-
færi sem hér gæfist til að girða
fyrir misskilning. Ef það er rétt,
sagði hann, sem fram hefur korh
ið í fréttum, að þau flugfélög,
sem halda uppi flugferðum yfir
Norður-Atlantshaf og hagsmuna
eiga að gæta á þessari flugleið,
hafi þegar samþykkt fargjalda-
lækkun hjá SAS fyrir sitt leyti,
mundi ekkert félag innan IATA
beita neitunarvaldi til þess að
hindra þá ákvörðun.
Eins og getið var í upphafi
þessarar fréttar sagði forstjór-
inn, að F.í. héldi ekki uppi flug-
ferðum milli Evrópu og Amer-
iku og gæti því engin afskipti
haft af fargjaldaákvörðunum á
þeirri leið, ef viðkomandi félög
koma sér saman um hana. Hann
sagði og að F.í. hefði heldur
ekki fengið nein tilmæli um slíkt
og væri Loftleiðum enginn
greiði gerður ef Flugfélag Is-
lands beitti neitunarvaldi í
þessu máli innan IATA. Kvaðst
' hann vona, að menn skildu
þessa afstöðu Flugfélagsins og
væri þá girt fyrir allan misskiln
ing í þessu efni.
]