Vísir - 19.01.1963, Side 3
*
VÍSIR . Laugardagur 19. janúar 1963.
3
Blindravinnustofa
í Hamrahlíð 17 stendur hús
Blindrafélagsins, sem það hefur
reist, sem bústað og starfsstað
fyrir blinda. Búa þar nú 16
manns og hafa ýmis einsmanns
herbergi eða íbúðir, sem eru
fjórar í húsinu.
í sama húsi er blindravinnu-
stofan til húsa, sem er eina
stofnunin sinnar tegundar, sem
er í eigu blinda fólksins sjálfs.
Framleiðir það þar ýmsa
hluti. Stærsti þáttur framleiðsl-
unnar eru burstar af f jölda gerð
og eru framleiddir árlega yfir
hálf milijón bursta. Auk þess
eru framleiddir plastpokar og
gólfþvottaklútar.
Vinnustofa þessi skilar venju
lega einhverjum hagnaði og er
honum skipt miili fólksins. Hef-
ur það þarna útvarp og segul-
band til að hlusta á. Hafa ýms-
ir rrienn lesið bækur inn á segul
bandið. Síðasta bókin var í fót-
spor hans, en verið er að
byrja á Mínir menn, eftir Stefán
Jónsson.
Á myndinni fyrir ofan, er
Elísabet Þórðardóttir við vél,
sem býr til góifskrúbba, og
Guðmundur Jóhannsson við vél
sem jafnar hárin á burstunum.
Á myndinni til vinstri sést einn
vistmanna að búa til kúst í
höndunum, en framleiðslan er
bæði handavinna og vélvinna.
Fyrir neðan: Til vinstri sést
Rósa Guðmundsdóttir við vél,
sem skrifar blindraletur í tvær
málmþynnur, sem síðan eru not
aðar til að fjölrita blindraletur.
Hún fer eftir segulbandinu. í
miðið eru þær Steinunn Ög-
niundsdóttir og Margrét Andrés
dóttir að búa til uppþvotta-
bursta. Til hægri er svo Einar
Guðgeirsson við vélina sem býr
til plastpokana.
Forstöðumaður hehnilisins er
Björn Andrésson, sem hefur
unnið að þessum málum hátt
á annan áratug.
*
I
I
I
I