Vísir - 19.01.1963, Blaðsíða 7
VÍSIR . Laugardagur 19. janúar 1963.
7
Kvennasíða
JÓLINÁ GRUND
VIÐ LEGGJUM Á BORÐ
Við eigum von á gestum í
kvöld og ætlum að hafa góðan,
margréttaðan mat með öllu til-
heyrandi. Til að flýta fyrir und-
irbúningnum, leggjum við strax
á borðið.
Við gerum ráð fyrir, að við
höfum allt til alls. Ef einhverjar
hafa það ekki geta þær vonandi
hagað hlutunum þannig, að það
komi ekki að sök.
Við gerum einnig ráð fyrir að
hafa undirdisk, þ.e. disk, sem
ekki er borðað af, en hinir disk
arnir settir á, þegar að réttun-
um kemur. Við setjum aðeins
undirdiskinn á borðið núna.
Við vitum að yzt eru lögð
þau hnífapör sem fyrst eru not
uð og að glösunum er raðað
þannig, að Iengst til hægri er
það glas, sem fyrst er drukkið
úr. Ef við kjósum að hafa aðeins
eina vínsort er það allt í lagi.
Ef við fáum stúlku til að bera
fram vínið kemur ekki til að
við þurfum að leggja glösin á
borðið.
Við höfum nú fimm „mat-
seðla“ að velja og leggjum því
á borðið á fimm mismunandi
háttu.
1. Brauðsneið, fiskréttur, kjöt
réttur og eftirréttur. Við setjum
diskinn fyrir brauðsneiðina
strax á undirdiskinn og leggjum
litlu hnífapörinn, sem brauðið
verður borðað með, annað
hvort á diskinn eða sitt hvoru
m?gin við fiskhnífapörin. „Of-
an“ við diskinn er skeið og
gaffall fyrir eftirréttinn. Þótt
gaffall sé ef til vill ekki nauð-
s>.ilegur, fer betur á að hafa
hann með. Glösunum röðum við
svo frá hægri til vinstri: fyrir
hvítvín, sem drukkið er með
fiskinum, rauðvín með kjötinu
og sherry með eftirréttinum.
2. Súpa, kjötréttur og eftir-
réttur. Við gerum ráð fyrir, að
eftirrétturinn sé kex rheð osti
eða ávextir og setjum því lítil
hnífapör ,,ofan“ við diskinn. Til
hægri er glas fyrir sherry, sem
drukkið er með súpunni, en til
vinstri er glas fyrir rauðvín,
sem haft er með kjötinu. Sé
5. Súpa, kjötréttur og eftir-
réttur. Lagt á borð eins og 2.
nema nú er eftirmaturinn
borðaður með skeið og gaffli
í stað gaffals og hnífs.
Að lokum skulum við vona
að allt gangi vel og að gest-
irnir verði ánægðir með mat-
inn.
■B
eftirrétturinn kex með osti höf-
um við rauðvín með því, annars
sherry.
3. Fiskréttur með humar,
kjötréttur og eftirréttur. Ef
humargafflar eru fyrir hendi
setjum við þá yzt til hægri. Að
öðru leyti eru hnífapörin ein1
og í 1. Hvítvín er drukkið mef
fiskréttinum og er því það gla?
yzt til hægri, síðan er rauðvín
ið, sem drukkið er með kjötinu
og lengst til vinstri er sherry.
sem við höfum með eftirrétt-
inum.
4. Súpa, fiskur, kjöt og eftir-
réttur. Súpuskeiðin er að sjálf-
sögðu yzt til hægri og gaffall-
inn og skeiðin fyrir eftirréttinn
„ofan“ við diskinn. Sherry er
drukkið með súpunni og eftir-
réttinum, en freyðandi vín t.d.
kampavín höfum við nú með
fiskinum, kjötinu og e.t.v. með
eftirréttinum.
Eins og líkum lætur er talsverð-
ur undirbúningur fyrir jólin og
miklar annir á stærsta heimili
landsins og í mörg horn að líta
fyrir starfsfólkið. Var reynt að
gera ýmislegt fyrir heimilisfólkið
um jólin eins og venjulega, og
einnig bar marga góða gesti að
garði, sem skemmtu og glöddu á
ýmsan hátt.
Á fyrsta sunnudegi í Aðventu
bauð Kirkjunefnd kvenna Dóm-
kirkjusafnaðarins heimilisfólkinu á
kirkjukvöld, sem haldið var í Dóm
kirkjunni. Tóku margir þessu
ágæta boði og höfðu mikla ánægju
af. Voru þeir sóttir heim og fluttir
aftur í bifreiðum. Kvæðamanna-
félagið Iðunn kom hingað einn dag-
inn og skemmtu margir félagar
þess vel og lengi með kveðskap,
upplestri og rímum. — Lúsíurnar
komu nú, eins og svo oft áður.
Erum við þeim mjög þakklát, sem
og frú Birnu Hjaltested og frú
Sigrúnu Jónsdóttur, sem ár eftir ár
koma hingað með þær. — Hljóm-
sveit frá varnarliðinu á Keflavíkur
flugvelli kom sunnudaginn, 16.
des. og skemmti með hljómleikum,
sem þóttu takast mjög vel.
Átthagafélögin, Rebekkustúkan,
Kvenfélag Háteigssóknar og ýmis
önnur félög sendu að vanda marg
ar góðar gjafir til vistfólksins.
Nokkrar amerískar konur frá
Keflavíkurflugvelli sendu ýmis kon
ar skartgripi, og tvær konur ís-
lenzkar, búsettar i Bandaríkjunum
sendu marga jólaböggla, sem þær
höfðu útbúið handa vistkonunum.
Frá bakarameistara einum barst
*S1
Prjónið hálsbindi
handa HONUM
Ef ykkur langar til að koma eiginmanninum, unnustanum eða
einhverjum öðrum skemmtilega á óvart, skuiuð þér prjóna handa
honum hálsbindi. Heimaprjónuð hálsbindi eru bæði fljótgerð, ódýr
og falleg. í þau fer nijög Iitið garn og tilvalið er að nota garnaf-
ganga, og hafa þá hálsbindin röndótt. En athugið að allt garnið sé
jafn gróft.
Ykkur til hjálpar er hér ein uppskrift af hálsbindi:
Prjónar no. 2, sokkaprjónar eru hentugir, og frekar fínt garn.
Fitjið upp 20 lykkjur. Prjónið eina slétta og eina brugðna til skiptis.
Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið þá síðustu slétta. Prjón-
ið unz hálsbindið er orðið 52 cm. að lengd, takið þá úr, með þvi
að taka tvær lykkjur saman í byrjun hvers prjóns, unz eftir eru
tíu Iykkjur. Prjónið nú 52 cm. til viðbótar, fellið af, pressið háls-
bindið létt og það er tilbúið tii notkunar.
nú, sem svo oft áður, rausnarleg
sending af alls konar kökum, sem
að sjálfsögðu komu í góðar þarfir.
Margir góðir söngmenn komu og
aðstoðuðu við guðþjónusturnar,
þar á meðal nokkrir Fóstbræður,
Liljukórinn og piltar og stúlkur
úr K.F.U.M. og K.
Á gamlársdag kom séra, Þor-
steinn Björnsson með organleikara
og söngkór Fríkirkjunnar og hélt
guðþjónustu. Var það í 25. skipti
sem Fríkirkjuprestur messar hér
á gamlársdag og þótti okkur sér-
staklega vænt um, að frú Bryndís
Þórarinsdóttir, ekkja séra Árna
Sigurðssonar, var viðstödd þessa
hátíðistund. Kjartan Ólafsson
brunavörður, sem er í kórnum
og hefur komið hingað öll þessi
ár, skrifaði eftirfarandi vers í
gestabók heimilisins:
Hér í sögu er b-‘otið blað,
burt er skeiðið runnið.
Drottinn blessi stund og stað
starf, sem hér er unnið.
Kvenskátarnir buðu um áramót
in vistfólkinu að sjá alla ljósa-
dýrðina í borginni og fóru með
það í tveimur stórum bifreiðum.
Þótti fólkinu mjög gaman að þessu
ferðalagi, og margt af því hafði
aldrei séð slíka Ijósadýrð áður.
Á þrettánda héldum við, að
venju, sérstaka skemmtun og nut-
um aðstoðar ágætra vina. Þor-
steinn J. Sigurðsson, kaupmaður,
annaðist orgelleik ásamt Grétari
Dalhoff, en harmonikuleikari var
Magnús Jónsson, sem mörg ár hef
ur aðstoðað á Þrettándanum með
mestu prýði. Liljukórinn kom og
söng mörg lög, og þótti okkur
öllum mjög vænt um þá heimsókn.
Lögin voru gamlir kunningjar og
söngurinn tókst með afbrigðum
vel. Einar Sturluson óperusöngvari
söng og nokkur lög með kórnum.
Þessari greinargerð um jólin er
að Ijúka. Innilegt þakkbeti færi
ég öllum, sem á einn eða annan
hátt hjálpuðu til þess, að jólin og
áramótin gátu orðið svo mörgum
til gleði og ánægju hér á Grund.
Að lokum langar mig til þess að
þakka starfsfólkinu alveg sérstak-
lega. Oft hefur verið erfitt að fá
fólk til starfa í jólamánuðinum.
Sumar stúlkurnar þurfa að fara
heim til foreldra og ættingja —
veikindi voru mikil, og svo var
það blessuð síldin. En samt gekk
þetta allt vel. Margar skólastúlk
ur hjálpuðu okkur, eins og svo oft
áður — og allt starfsfólkið vann
af trúmennsku og alúð vandasöm
störf . Ég hef oft sagt við það —
við getum greitt kaup fyrir störfin,
en áhugi og fórnfýri eru óborgan-
Ieg og ómetanleg.
Gísli Sigurbjörnsson.
Happdrættislán
ríkissjóðs
B-flokkur, dregið 15. jan. 1963.
Nr. 115581 kr. 75 þúsund.
Nr. 116168 kr. 40 þúsund.
Nr. 11455 kr. 15 þúsund.
Nr. 1854 54875 68253 kr. 10 þús.
5 þúsund krónur: 3989 33843
52719 105846 140396.
2 þúsund krónur: 18783 19687
25641 27467 49348 50774 66469
73169 76995 80384 83245 84612
96970 111589 149413.
1000 krónur: 1608 6871 15272
18324 25533 26467 39678 40656
41147 48554 50017 50664 63477
79850 100482 104113 105475
113746 119068 119727 124151
126087 133206 135777 139030