Vísir - 26.01.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 26.01.1963, Blaðsíða 1
VISIR 53. árg. — Laugardagur 26. janúar 1963. — 22. tbl. ☆ Á þessari mynd sést Valberg fá fyrsta kaffisopann, eftir að hann kom úr hrakningaferð sinni. — Beið hans og leitarmanna heitt kaffi i húsi Slysavamafélagsins. Bar Valberg sig vel, þrátt fyrir hrakningarnar og kenndi sér einskis meins, að öðru ieyti en því, að honum var lítils háttar kait. Sá það bezt eftir á hve litlu munaði" Valberg Sigmundsson fundinn í Viðey Þannig fórust Valberg Sigmundssyní orð, eftir að hann kom í land úr björgunarbátnum Gísla J. Johnsen, sem sótti hann út í Viðey, milli kl. 2 og 3 í gærdag. Höfðu starfsmenn Björgunar h.f., sem voru að vinna inni í Vatagörðum séð til Valbergs, þar sem hann stóð úti í Viðey og veifaði. Eins og kunnugt er lagði Val- berg af stað frá Korpúlfsstöð- Frh á bls o Fríður fíoti uýrra fískiskipa í smíðum Frú Jóhanna fagnar manni sínum fyrir utau heimili þeirra á Báru- götu 14. Fyrir nokkrum dögum skýrði Visir frá nýrri Lloyds-skýrslu í London um skipsbyggingar og komu þar í ljós að nú er verið að smiða 18 skip fyrir fslend- inga erlendis. Það hefur vakið nokkra athygli að af þeim var verið að smfða 15 í Noregi. fs- lenzkir útgerðarmenn leita til Norðmanna um skipasmíðar, af því að Norðmenn byggja sínar fiskveiðar á svipuðum veiðiað- ferðum og fslendingar, og full- nægja því betur en aðrir þeim kröfum, sem íslendingar gera. Auk þess eru skipin ódýrari þar, m. a. vegna iægri launa og vegna þess að norska stjóm- in styrkir skipasmíðastöðvarn- ar með sérstökum tolluppbótum eða útflutningsverðlaunum. Vísir hefur aflað sér upplýs- inga um það hvaða fiskiskip eru nú í smiðum f Noregi fyrir fs- lendinga. Skal tekið fram, að öll skipin eru kringum 200 tn. Er það glæsilegur floti nýrra skipa, sem mun sigla heim til íslands næstu mánuðina. Egill Júlíusson á Dalvfk fær skip frá Flekkefjord. Aðalsteinn Loftsson á Dalvík lær skip frá Hjörungavogi í maf. Ingvar Vilhjálmsson í Reykja- vík fær skip frá Aukerlökken í maf eða júní. Einar Sigurðsson, Reykjavík, fær skip frá Framnesi f júní. Gísli Þorsteinsson f Reykja- vík fær skip í maf frá Kardös mekaniske verksted f Harstad. Hrólfur Gunnarsson skipstjóri í Rvík o. fl. fá einnig skip í maí frá Kardös mekaniske verk sted. Þórður Óskarsson skipstjóri á Akranesi fær í september skip frá Skálunes Skibsbyggeri í Ros endal. F/h. á bls. 5. Emhugur á Skálholtsfundi um eudurreisn biskupsstáls í gær var haldinn í Skálholti fundur áhugamanna um endur- reisn Skálholtsstaðar og var það einróma álit allra fundarmanna að endurreisn Skálholts sé ekki lokið fyrr en biskupsstóli hefur einnig verið endurreistur þar. Fundinn sóttu 27 menn. Voru það þrir af þingmönnum héraðs ins, tveir sýslumenn, sex prest- ar, skólameistari frá Laugavatni og aðrir áhugamenn um þetta mál. Samþykkti fundurinn að kjósa sjö manna nefnd til að vinna að framgangi þessa máls og leggja drög að frekari aðgerðum. t nefndina voru kosnir BjCrn Björnsson, sýslumaður, sr. Gísli Brynjólfsson, Jóhann Hannes son, skólameistari, sr. Sigurður Pálsson, sr. Sveinbjörn Högná son, prófastur, sr. Þorsteinn L Jónsson, og Olfur Ragnarsson, læknir. Til fundar þessa boðuðu þrfr prestar i Árnesprófastsdæmi, sr. Gunnar Jóhannesson, prófastur, sr. Guðmundur Óli Ólafsson og sr. Sigurður Pálsson. í veikinda- forföllum prófasts stjórnaði sr. Sigurður Pálsson fundinum og reifaði málið. Fjöldi fundar- manna tók til máls og voru allir á einu máli, sem fyrr segir, og þökkuðu fundarboðið. Ulbricht. Kvikmynd um Ulbricht i ; ■'< Landið handan við vegginn nefn- ist kvikmynd, sem samtök um vest ræna samvinnu og Varðberg sýna í dag kl. 3 e.h. í Nýja Bíó. Fjallar myndin um Ulbricht, ráðbana Thalmanns, og er m. a. vjðtal við hann í myndinni. Þá verður einnig sýnd kvikmynd um Kennedy Bandaríkjaforseta, sjónvarpsviðtal sem nýlega var haft við hann. Texti myndanna er á ensku. Öllum áhugamönnum um vestræna samvinnu er boðið til kvikmyndasýningar þessarar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.