Vísir - 31.01.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 31.01.1963, Blaðsíða 2
/ -naa' -cwv*« VlSIR . Fimmtudagur 31. janúar 1963. Alaln Mimoun Englandi. Frakklandi Emil Zatopek trá Tékkóslóvakíu. MARÁÞC sem „Faðir Olympíuleikanna", Frakk inn Pierre de Coubertin, en það var hann sem fyrstur kom með þá tiilögu að taka Maraþonhlaup s,em keppnisgrein á þetta mikla mót íþróttamanna. Hann mætti mikilli mótspyrnu eins og hann bjóst við 1 fyrstu, en að lokum var tillagan samþykkt. Coubertin fékk áhuga fyrst, þegar hann las um Aþenubúann Pheidippides, sem eftir gömlum heimildum hafði hlaupið frá bænum Maraþon þar sem hinn litli grfski her hafði sigr- að hinn mikla og volduga pers- neska her, alla leið til Aþenu 42.195 metra veg, með hin gleði- legu tíðindi er hann kallaði upp þegar hann hlóp um strætin: „Við sigruðum", en datt síðan dauður niður. Coubertin fékk því fram- gengt að Maraþonhlaupið eins og hann var farinn að nefna það, væri tekið upp, sem keppnisgrein á fyrstu nútfma Ólympíuleikjunum í Aþenu 1896. Hlaupið varð mikill sigur fyrir Coubertin. Það vakti þegar óhemju atþygli eins og það gerir enn í dag. Sigurvegarinn hef- ur alltaf verið álitinn „sigurvegari sigurvegaranna“. 1 hlaupinu 1896 tóku þátt 25 keppendur og var hlaupið þá vegalengd er Peidippi- des hafði farið er hann flutti boð- skapinn um sigurinn. Óþekktur og fátækur bóndasonur, Spiridon Louis, en hann var Grikki, sigraði 1 þessu hlaupi, með tvo landsmenn á haélum sér. Tíminn er skráður í bók um þessa fyrstu leiki 2,58,50. Gaízlumenn á hestum fylgdu hlaup urunum, en dýrin gáfust upp fyrir manninum í þetta sinn, þau réðu ekkert við hið hraða „tempó“ hlauparanna í hinum mikla hita er var meðan á hlaupinu stóð. Grikkir höfðu til þessa ekki fengið neinn sigurvegara í Ólympíuleikj- unum, og var því sigur bóndason- arins Louis kærkominn. Honum var fagnað sem þjóðhetju og sýnd hin mesta virðing. En það er ekki alltaf, sem mað- ur getur litið á þetta hláup með augum þess manns, er aðeins sér góðu hlið allra mála. Hneyksli og grátleg endalok hafa verið í nær hvert einasta sinn, þegar hlaupið hefur farið fram á Ólympíuleik- unum. Árið 1900 voru leikirnir haldnir í París. Þá ieiddi hinn 18 ára gamli sænski drengur Ernest Fast Maraþonhlaupið um hinar þröngu og krókóttu götur Parísar, eða þar til hlaupið var um villandi götur í Boulogneskógi, þar var Fast látinn hlaupa með nýjum mönnum- er áttu að vísa honum veginn inn á leikvanginn, þeir fóru á undan honum á reið- hjólum, en fóru með hann rangan veg, og þegar þeir loks fundu það út, var það orðið um seinan. Það voru tveir Frakkar, er fyrstir kom- ust inn á leikvanginn og háðu þar harða keppni, en þeir skiptust á um að detta, í hálfgerðu öngviti af þreytu, en Fast hélt áfram og loks fannst leiðin á leikvanginn. Hann kom hlaupandi létt og ör- ugglega aðeins 40 mín. á eftir Frökkunum tveim, og kom sem 3. maður í mark, og tók við fyrstu verðlaunum Svía á Ólympíuleik- unum. Var fyrirfram ákveðið að villa hann af vegi? Það veit enginn ennþá, því „fylgdarmennirnir" tveir fundust hvergi. Ameríkumaðurinn Fred Lorz, sleit snúruna með fallegum stíl og sýnilega óþreyttur á Ólympíu- leikunum í St. Louis 1904, næstum því einum tíma á undan næsta manni. Hann var hyltur sem hetja og Alice, hin fagra dóttir Theodors Roosevelts, Bandaríkjaforseta, lagði lárviðarkrans um háls hans, og hann hljóp um og veifaði til áhorfenda. Lorz stæði líklega enn, sem sigurvegari í þessu mikla hlaupi, hefði það ekki verið vegna vakandi iþróttablaðamanns frá New York. Honum fannst það merkilegt að Lorz gæti komið í mark í svona góðu formi og alveg óþreyttur, þegar aðrir þátttakend- ur drógust í átt að marki. Blaðamaðurinn setti í gang „prívat“ njósnastarfsemi á leiðinni er hlaupið var, og áður en langt var liðið gat þessi Sherlock Holmes’ Maraþonshlaupsins, kynnt fyrir dómnefnd mann er lagði eið út á, að hann hefði keyrt Lorz um tveggja mílna leið. Annar Ame- i ríkumaður Hicks að nafni, er kom næstur í mark, 52 mín. á eftir Lorz var því dæmdur sigurinn, en hann sagðist hafa fengið konjak til að geta haldið áfram, og var lengi rifizt um það, hvort ekki ætti einnig að dæma af honum verðlaunin, fyrir að drekka vín, en loks var samþykkt að hann hefði unnið til þeirra, þótt um örvunar- meðal væri að ræða. Suður-Afríkumaðurinn Heffer- son hafði forystuna nær alla leið- ina í Maraþonhlaupi í London 1908, 2 kílómetrum, frá marki, hljóp loks fyrsti maður fram úr honum. Það var hinn smávaxni Pietro Dorando frá Italíu, hann kom reikandi, sem drukkinn mað- ur inn á leikvanginn. En hin gífur- legu fagnaðarhróp áhorfenda höfðu sýnilega ill áhrif á hann. Fyrir framan konungsstúkuna datt hann niður af þreytu, hann gat með naumindum komizt á fætur og skreið frekar en gekk í átt að marki, en hann datt aftur og nú aðeins 15 metra frá marksnúrunni, og hreyfði nú hvorki legg né Iið. í sama augnabliki kom Ameríku- maðurinn Hayes inn á leikvang- inn sýnilega í formi til að komast alla leið. Dauðahljóð varð á á- horfendabekkjunum og fólk horfði spennt á ítalann er lá en hreyfing- arlaus, og Ameríkumanninn, er nálgaðist .óslitna marksnúruna ör- uggum skrefum. En nú hlupu hjálparmenn og lögregla til og reistu ítalann á fætur, og drógu hann í mark þar sem hann var settur á börur og borinn út af. Ameríkumanninum Hayes voru því færð verðlaunin, því litla ítal- anum hafði verið hjálpað í mark, og því ekki réttilega unnið til þeirra. En í augum áhorfenda og allra var hann sigurvegarinn. Hann var hylltur sem sigurvegari, þótt Hayes væri það með réttu. Dor- ando fékk gullbikar úr hendi Eng- landsdbottningar, sem plástur á sárið, og síðan sópaði hann gulli til sín, sem atvinnuhlaupari, eða þar til að upp komst árið 1936 að hann notaði örvandi lyf sér til framdráttar á hinum löngu hlaupa- leiðum sínum. Árið 1948 voru leikirnir haldnir á ný í Englandi og nú á hinum fræga velli í London, Wembley. Og enn máttu hinu ensku áhbrf- endur horfa á nýtt „Dornado- hlaup", sem áður er hér nefnt. Þegar Maraþonhlaupararnir höfðu verið úti f 2 tíma og 32 mín. kom lítill hlaupari í rauðri skyrtu. og hvítum buxum inn á leikvanginn, þetta var Belgíumaðurinn Etienne Gailly, þá 22ja ára gamall. Hann hafði leitt hlaupið lengst af og hafði nú alla keppendurna vel að baki sér. 41.745 mptra hafði hann einnig lagt að b'aki sér, og_ aðeins 450 metrar í mark’ einn firingur og loks ein bein braut, þá hefði hann sigrað. Gailly hreyfðist sama og ekkert áfram. Hann tók aðeins desimeters skref í einu. Ólýsanleg- ar kvalir mátti lesa úr andliti þessa unglings. En nú kom sagan til að Framh. á bls. 7. HVAÐ GERA ÍSLENZKAR STÚLKUR? Eftir rúmt ár munu íslenzkar síúlkur taka á móti liðum frá Norðurlöndunum í handknattleik. Þessi mynd var tekin í leik í Danmörku fyrir skömmu og sýnir nokkrar beztu handknattleiksstúlkur Dana í leik. íslenzkar stúlkur mega leggja hart að sér til að ná góðum árangri næst, þvi eins og er eru íslenzkir kvennaflokkar ekki nándanærri nógu góðir tii að standast öðrum snúning.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.