Vísir - 31.01.1963, Blaðsíða 3
VÍSIR . Fimmtudagur 31. janúar 1963,
3
ÚtgerBamenn
í kaffíhléinu
Útvegsmenn landsins hafa að
undanförnu komið saman til
fundar í Reykjavík. Þar hafa
þessir forustumenn í aðal at-
vinnuvegi þjóðarinnar rætt á-
stand og horfur í útvegsmáiun-
um. Þeir koma hingað frá nær
þvf öllum útgerðarpiássum á
landinu og nota ferðina til höfuð
borgarinnar þá jafnframt til ým
iss annars, m. a. að sitja fundi
í ýmsum öðrum félögum og sölu
samtökum útvegsins, sem fram
eiga að fara á næstunni.
Það hefur sjaldan verið betra
ástand sjávarútvegsins en ein-
mitt núna. Síðasta ár var eins
og allir vita metár aö afla til og
engin tregða hefur verið á sölu
afurðanna. Útvegsmenn láta nú
smíða fleiri og stærri skip en
nokkru sinni áður að nýsköpun
arárunum undanteknum. Það er
yfirleitt bjartsýni í útveginum
og menn leita nú nýrra leiða í
nýtingu aflans.
En það er jafnframt við ýmis
vandamál að stríða sem jafnan
áður. Útgerðarkostnaðurinn hef-
ur stöðugt farið vaxandi og
menn skilja þáð, að hið eina
sem bjargaði efnahag hans á s.
1. ári var einstaklega góð síld-
arvertíð. Það er vafasamt að
hægt sé að treysta á það að
slíkt endurtaki sig tvö ár í röð
eða fleiri. Og hættulegt væri
það, ef farið væri að leggja
meiri byrði á sjávarútveginn á
grundvelli góðrar afkomu á
slíku aflaári.
Myndsjá Vísis skrapp á dög-
unum vestur á fund útgerðar-
mannanna í húsi Slysavarnar-
félagsins á Grandagarði og tók
þessar myndir í kaffihléi. Þar
sjást margir kunnir athafna-
menn.
Eiríkur Asbjömsson Vestmannaeyjum, Jóhannes Símonarson, Jón Björnsson og Einar Sigurðsson úr Rvik.
Sigurður Pétursson Rvík, Baldur Guðmundsson Rvík, Þórarinn Pétursson, Grindavík, Ingimar Einarsson
starfsmaður FÍB og Björn Pálsson alþingismaður.
Loftur Bjamason formaður FÍB og Jón Gíslason báðir úr Hafnarfirði.
Tómas Þorvaldsson, Grindavík, Margeir Jónsson, Keflavík og Sverrir Júlíusson formaður LlÚ.
*J '■ '• i.
) k i I t t i. v i
iViiil i.V.Vn*''
Inn
» 1 t 1 I l ' t I I
I
I 1 I 1