Vísir - 15.02.1963, Blaðsíða 13

Vísir - 15.02.1963, Blaðsíða 13
V í S I R . Föstudagur 15. bebrúar 1963. 13 ORÐSENDING frá Slysavarðstofu Reykjavíkur. Að marggefnu tilefni skal það tekið fram, að heimilislækningar í Reykjavík og nágrenni eru óviðkomandi Slysavarðstofu Reykjavík- ur, að öðru leyti en því, að þar er tekið á móti vitjanabeiðnum fyrir kvöld-, nætur- og helgi- dagsvaktir, er Læknafélag Reykjavíkur sér um og ber ábyrgð á. Vaktir þessar eru frá kl. 17—8 alla virka daga nema laugardaga, þá hefjast þær kl. 13, svo og alla helgidaga. Sjálf hefur Slysavarðstofan engu læknaliði á að skipa til læknisstarfa í heimahúsum, enda utan verkahrings hennar, sem eingöngu er slysameðferð. Þá skal fólki bent á, að Lækna- félag Reykjavíkur starfrækir neyðarvakt alla virka daga nema laugardaga milli kl. 13 og 17. Eru veittar upplýsingar um hana í skrif- stofu félagsins, Brautarholti 20. Sími 1-15-10. Slysavarðstofan Reykjavík. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að ganga frá félagsheimilinu á Blönduósi að utan með múrhúðun og máln- ingu eða annarri jafngóðri lithúðun. Útboðsgögn verða afhent á teiknistofunni Tómasarhaga 31 í Reykjavík og á sýsluskrif- sofunni á Blönduósi. Tilboð verða opnuð 22. marz kl. 11 fyrir hádegi á teiknistofunni Tómasarhaga 31 í Reykjavík. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Jóns Skaftasonar hrl. og að undan- gengnu fjárnámi 13. nóv. sl. verður bókasafn, talið 2500—3000 bindi, eign Siglaugs Brynjólfs- sonar, boðið upp og selt, ef viðunandi boð fæst til lúkningar skuld, að fjárhæð kr. 60.381,00, auk vaxta og kostnaðar, á opinberu uppboði, sem haldið verður að Garðhúsum í Seylu- hreppi, Skagafjarðarsýslu, laugardaginn 23. febrúar n. k. kl. 2 e. h. Uppboðsskilmálar, bókaskrá og önnur skjöl, varðandi söluna eru til sýnis í skrifstofu embættisins. Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu 5. febrúar 1963. írak — Sauðfé Framhald af bls. 10. Hinn 10. nóvember 1952 skil- um við Sæmundur í hendur ráð- herra greinargerð, sem er 100 vélritaðar síður, er nefnist: Greinargerð um athugun á að friða Reykjanesskaga ásamt Reykjavík, Hafnarfirði og ná- grenni bæjanna fyrir ágangi búfjár. — Samin haustið 1952 af Árna G. Eylands og Sæ- mundi Friðrikssyni. Greinargerðin endar á frum- varpi í 14 greinum er við köllum: Frumvarp til laga um búfjár- haid í bæjum og öðru þéttbýli. Greinargerð þessi hefir senni- lega aldrei verið prentuð, en mun að sjálfsögðu vera til í Landbún- aðarráðuneytinu. Vil ég eindregið ráða þeim sem nú vilja athuga þetta mál sem bezt að kynna sér greinargerð okkar Sæmundar með hausi og hala. Ekki af því að ég haldi að við höfum verið alvitrir f máli þessu 1952 (né sé- um það enn), heldur fyrir þær sakir, að ég hygg að hvergi sé á einum stað að finna jafnmiklar upplýsingar um þetta friðunar- mál. Þeim lesendum blaða til upp- Iýsingar, sem áhuga hafa á mál- inu, held ég væri ve! til fallið að birta frumvarpið frá 1952 í heild eins og það er f niðurlagi greinargerðarinnar, — það yrði ekki nema einn dálkur í blaði. en'það er þó alltaf nokkur um- ræðugrundvöllur um málið. Smedal, 7. desember 1962, Árni G. Eylands. Framhald af bls. 9. það einmitt fylgismenn Nassers, sem stóðu að henni. Þegar sú bylting var bæld niður, mátti heita að kommúnistar tækju öll völd í sínar hendur og fram- kvæmdu þeir hefndaraðgerðir gegn Mósúlbúum af ósegjan- legri grimmd. Síðan hefur kom- múnískur alþýðudómstóll verið starfandi í landinu og hinn fyrr nefndi Hahdawi hefur stjórnað sífelldum fjöldaaftökum í land- ^ðstaða Kassems hefur þannig að sumu leyti verið lík að- stöðu Castros á Kúbu. Þó hefur sá mikli munur verið á, að Kas- sem hefur þrátt fyrir innri völd kommúnista í landinu reynt að halda vináttu og samskiptum við Breta. Það stafaði af því að írak hefur lang mestar tekjur a: olíugreiðslum frá þeim, er vinna mikið magn af olíu þar. Á þetta samstarf féll að vísu skuggi, er Kassem gerði kröfur til olíu- svæðanna í Kuwait, en olíu- vinnslan hefur haldið áfram truflunarlaust. Cem fyrr segir kom byltingar- tilraunin í síðustu viku Kas- sem algerlega á óvart. Áður en hann vissi af, Iá bústaður hans í hermálaráðuneytinu í rústum, en sjálfum tókst honum þó á síðustu stundu að komast niður í kjallarabyrgi og var því enn á lífi en blóðugur og særður, þegar byltingarhermenn komu daginp, eítir inn í rústirnar og fundu hann þar. Þessi ósigur var bitur fyrir Kassem, því að hann hefur lengi verið uppalandi og kennari þessara ungu írönsku hermanna, sem köstuðu sprengjum að bú- stað hans og tóku hann síðar höndum. TZ'assem var leiddur fyrir bylt- íngarráðið og var þá settur á skyndidómstóll, sem dæmdi hann og hinn illræmda Mahdawi til dauða. Var hann síðan leidd- ur út og hinir ungu hermenn og lærisveinar hans stilltu sér upp í aftökusveit og skutu þá samkvæmt fyrirskipun. Þannig hefur blóðug bylting verið framkvæmd að nýju í írak á fáum árum. Og nú er enn leit- að hefndar. Sveitir hinnar nýju byltingarstjórnar fara um borg- ina og landið og leita uppi hryðjuverkamenn kommúnista, sem eru hataðir líkt og Gestapo menn á valdadögum nazista. Það eru því enn ófagrar frétt- ir sem berast austan frá borg þúsund og einnar nætur, fréttir um hefnd og blóðsúthellingu. Enginn getur sagt fyrir með vissu hvar þetta tekur enda. J£n eitt er víst, að viðhorf vest- rænna þjóða gagnvart Ar- abaríkjunum þurfa að breytast Um Iangt skeið hafa þær haft Arabana og lönd þeirra sér að féþúfu. Slíkt er undarlegur öf- ugsnúningur, þegar sjón er sögu ríkari um það, að fáar þjóðir eru fátækari og á frumstæðara stigi en einmitt þær. Þar þarf mikið að breytast áður en kyrrð getur komizt á í nálægari Aust- urlöndum. Þorsteinn Thorarensen. ER æ VAR No. 1 VERÐUR 1 Reiknivélar PLÚS MÍNUS MARGFÖLDUN DEILING Lougovegi 178 Sfmi 38000 BOklfl ALDS- Oli skrm fst o fij y é lab PERMA, Garðsenda 21, sími 33968 Hárgreiðslu- og snyrtistofa Dömur, hárgreiðsla við allra hæfi. TJARNARSTOFAN, Tjarnargötu 10, Vonarstrætismeg in. Sfmi 14662. Hárgreiðslustofan HÁTÚNI 6, sfmi 15493. Hárgreiðslu- og snyrtistofa STEINU OG DÓDÓ, Laugavegi 11, sími 24616. Hárgreiðslustofan SÓLEY Sólvallagötu 72, Simi 14853. Hárgreiðslustofan PIROLA Grettisgötu 31, sími 14787. Hárgrciðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9, sími 19218. Hárgreiðslustofa SVÖNU ÞÓRÐARDÓTTUR, Freyjugötu 1, sími 15799. Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR (María Guðmundsdóttir) Laugavegi 13, sími 14656. Nuddstofa á sama stað. LAUGAVEGl 90-92 600—800 bílar til sölu, m. a.: Volkswagen, allar árg. Renau 60—62, Ford Angliu ’56—’61. Hillmanr: ’56. Skoda 440 ’56, '58. Fiat 1100 ’54, verð kr. 30 þús. DKV ’63. Consul ’62 tveggja dyra nýr bíll. Ford Codiak ’57, ’58. — Mercedes Benz 220 þús. Vom wall, Ford, Plymo”th og Dodge, allar árgerðir. — Okkar stóri viðskiptamanna- hópur sannar örugga þjónustu. Rafglit Nýjar skraut og rafmagsnvörur daglega. Hafnarstræti 15 Sími 12329 Nærfatnaður Karlmanna og drengja fyrirliggjandi. IH Muller 22997 • Grettisgötu 62 íbúðir Önnumst kaup og sölu á hvers konar fasteignum. Þið, sem ætlið að kaupa eða selja fyrir vorið, hafið samband við okkur sem fyrst. Fasteignasalan Tjamargötu 14. Sími 23987. i i I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.