Vísir - 15.02.1963, Blaðsíða 16
Föstudagur 15. febrúar 1963.
Tveir Dtmir krefjast ntu milljón
kréna skaðabóta af Póststofunni
Handknattleikslið íslendinga, fór utan í morgun með flugvél frá Flugfélagi Islands til keppni í Bilbao á
Spáni og f París. Sjá nánar á iþróttasíðu bls. 2. (Ljósm. Vísis I. M.)
Stökkþróun í furþegaflutn-
ingum til og frá íslandi
Meiri stökkþróun hefur orðið í
farþcgaflutningum til og frá ís-
iandi á árinu sem leið heldur en
á nokkru einu ári áður, enda
meiri farþegaflutningar en dæmi
eru til.
Sem dæmi um þessa þróun er
að á s.l. ári komu til íslands sam-
tals 28476 farþegar í stað 23594
árið 1961, eða nærri 5 þúsund
manns fleira. Tilsvarandi hlutfall
er með þá sem fara héðan til út-
landa. Á s.l. ári fóru héðan 28247
farþegar, en 23924 árið áður.
Þessi aukning í farþegaflutn-
ingum milli Islands og útlanda er
að heita má öll með flugvélum.
Þannig komu 4728 manns fleiri
með flúgvélum 1962 heldur en
árið áðúr en ekki nema 154 fleiri
með skipum. Héðan fóru 4246
fleiri farþegar til útlanda á árinu
sem leið heldur en árið áður, en
aðeins 67 fleiri með skipum. Heild
artölur farþega frá útlöndum voru
á s.I. ári 22553 með flugvélum og
5923 með skipum, en til útlanda
22948 með flugvélum og 5299
með skipum.
Af þeim sem komu frá útlönd-
um á árinu sem leið voru 17249
útlendingar, eða 3733 fleiri en ár-
ið áður og 11227 íslendingar eða
1149 fleiri en 1961. Til útlanda
fóru á s.l. ári 16835 útlendingar, í
stað 13629 árið áður og 11412 ís-
lendingar í stað 10295 árið 1961.
Um mörg ár hafa ævinlega
flutzt út fleiri íslendingar heldur
en komið hafa til landsins, þannig
t. d. 285 fleiri á s.l. ári. Þetta
stafar ekki hvað sízt af því, að
þegar þeir sækja skip til útlanda
eru þeir jafnan skráðir sem far-
þegar út, en sem áhafnir heim.
Samkvæmt upplýsingum frá
Útlendingaeftirlitinu, sem einnig
gaf Vísi upp framangreindar tölur,
hafa menn frá samtals 52 þjóðum
heims ferðast til eða frá íslandi
á árinu sem leið. Langmest bar
þar á Bandaríkjamönnum, eða
4561 talsins og Dönum 4179,
næst koma Bretar með 2.155 far-
þega og •’jóðverjar með 1725
Frímerkjamálin, sem risu í
sambandi við útgáfu hinna svo-
kölluðu Evrópufrímerkja árið
1961 hafa verið þingfest. Sem
kunnugt er gerðu tveir danskir
frímerkjakaupmenn stórar pant
anir til frímerkjasölu Póststof-
unnar f Reykjavík, en fengu
ekki það, sem þeir báðu um og
töldu sig hafa verið hlunnfarna
i viðskiptunum. Gerðu þeir bið
ir stórar pantanir til frímerkia
sölunnar en fengu lítið eða ekk
ert upp í þær.
Hafa þeir gert stórfe'ÞUr
skaðabótakröfur á hendur frí-
merkjasölunni. Hörður Ó'.afs-
son, lögfræðingur hefur i?eð
höndum mál Fritz Neve og ger
ir kröfur um að umbjóðanda
hans verði greiddar 848.430,88
danskar krónur, en Ágúst Fjel-
sted, lögfræðingur er með mál
Roberts Bechsgaard, og gerir
kröfur að upphæð 591.600,00
danskar krónur. Er fyrri krafan
að upphæð jafngildi 5,3 millj.
íslenzkra króna en hin síðari
að jafngildi um 3,7 millj. ísl. kr.
Kröfurnar eru miðaðar við þá
hækkun, sem varð á frímerkj-
unum eftir frfmerkin komust á
almennan markað.
Gangur málanna er í stórum
dráttum á þá leið að póst- og
símamálastjórnin sendi 12. júlf
1961 út umburðarbréf, þar sem
tilkynnt var um útgáfu svo-
nefndra Evrópufrímerkja 1961.
Fritz Neve, sendi nokkrar pant
anir, ásamt fullnaðargreiðslum,
og var hin síðasta send 10.
september, 8 dögum áður en
frímerkin áttu að koma út, en
útgáfudagur þeirra var 18. sept.
Framh. á bls. 5.
Kona Small kafara
framdi siálfsmorð
Þær hörmulegu fréttir berast
nú frá London, að frú Mary
Small hin unga og fagra lcona
kafarans Peter Small hafi fram
ið sjálfsmorð í íbúð sinni í
Mayfair. Hún hafði opnað fyrir
gaskrana f íbúð slnni og fannst
látin í rúmi sínu á miðviku-
dagsmorgun.
Afdrif Smallhjónanna eru
mikill harmleikur. Þau komu
við á íslandi skömmu fyrir jól,
en þá var Peter Small á Ieið-
inni vestur til Kaliforniu þar
sem hann ætlaði að reyna að
setja heimsmet í köfun. En það
fór verr en ráðgert hafði verið.
Hann fórst í tilrauninni og á
meðan leið hin unga kona hans
miklar sálarkvalir en hún beið
f skipinu meðan verið var að
reyna að bjarga honum.
Það eru aðeins tveir mánuð-
ir síðan þau giftust. Ferðin
til Kaliforniu var jafnframt
hveitibrauðsferð þeirra. Allt
hefur þetta borið hina 23 ára
konu ofuriiði.
Síðasti koss hinna nýgiftu hjóna. Mary kveður eiginmann sinn rétt
áður en hann kafaði.
Hneykslanleg aðbúð beims-
Tregur afli á línu ^ræ9s Hstafólks
Afli á Iínubáta hefir verið mjög
tregur. Engin bátur er á sjó í dag
og munu þcir nú _ sumir að
minnsta kosti — fara á net. Fimm
Reykjavíkurbátar voru úti í gær og
var aflinn að eins 1—5 lestir.
Engir bátar eru á síld á suður-
miðunum og þeir stunda veiðar á
austurmiðum liggia í Eyjum veðurs
vegna.
Frá Akranesi voru engir bátar
á sjó í gær og engir f dag. Það er
steindautt á lfnuna, sagði fréttarit-
ari Vfsis, og austan rok á hafinu,
þótt gott sé í landi. Engir bátar eru
famir á net.
Það var troðfullt hús
í Austurbæjarbíói, þegar
Mme Halina Czemy-
Stefanska, hinn heims*
frægi pólski píanóleik-
ari, hélt fyrstu tónleika
sína á Islandi í fyrra-
kvöld. Áheyrendur biðu
þess með eftirvæntingu
að fá að heyra listakon-
una túlka verk hins ó-
dauðlega samlanda síns,
Frederic Chopins. Og
vafalaust var Mme Stef-
anska líka eftirvænting-
arfull að leika í fyrsta
sinn fyrir íslenzka áheyr
endur og reiðubúin að
leggja sig alla fram.
En hvernig á píanóleikari,
jafnvel þótt snillingur sé, að
geta haft vald yfir hljóðfær-
Framh. á bls. 5.