Vísir - 25.02.1963, Side 4
~v~.tdir . IfSSnudagur 25. febrúar 1963.
^sssasafBs
roouriar
er
I
innan barrskógabeltisins
ÍSLAND er í gróðurfarslegu til-
liti innan barrskógabeltisins,
hvort mönnum líkar það betur
eða verr, sagði Hákon Bjarna-
son skógræktarstjóri í viðtali
við Vísi fyrir skemmstu.
Hákon sagði að vanmat okk-
ar á gróðurskilyrðum landsins
hafi verið okkur fjötur um fót
fram til þessa. En með fenginni
vitneskju um raunveruleg gróð-
urskilyrði landsins og reynslu
um að hér geta dafnað nytja-
skógar eins og skógum Alaska,
Norður-Noregs og Norður-Rúss-
lands skapast nýtt viðhorf í
skógræktarmálum. Enda eiga ís-
lendingar að geta byggt afkomu
sína að nokkru leyti á skógrækt
þegar fram líða stundir eins og
íbúar þeirra landa, sem hér hafa
verið nefnd.
Steindór Steindórsson nátt-
úrufræðingur og menntaskóla-
kennari á Akureyri hefur. með
rannsóknum sínum og athugun-
um á flóru islands komizt að
þeirri niðurstöðu, að flóran okk-
an er ekki aðflutt tii landsins
eftir síðustu Isöld nema að
nokkru leyti. Hún á að meira
eða minna leyti upphaf sitt í
þeim gróðri, sem lifði af ísöld-
ina hér á landi. Þessi kennÁhg
Steindórs hlýtur óhjákvæmilega
að gjörbreyta þeim hugmyndum
sem gilt hafa allt til þessa, um
gróðurskilyrðin á íslandi.
Svo einkennilega vili til, sagði
Hákon Bjarnason, að samtímis
því sem Steindór vann að rann-
sóknum sínum, veittu skógrækt-
armenn því athygli, að ýmis tré,
runnar og jurtir( sem fluttar
höfðu verið til landsins að tii-
stuðlan Skógræktar ríkisins,
„ísland er í gróðurfarslegu tilliti innan barrskógabeltisins hvort sem
mönnum líkar það betur eða verr'. Myndin er frá Hallormsstað.
þrifust hér og döfnuðu á sama
hátt og í heimalöndum sínum.
Þegar þetta var sótt frá lönd-
um með áþekk veðurskilyrði og
legu og okkar lands, svo sem
frá Norður-Noregi, Norður-Rúss
landi og Aiaska.
Með því að fylgjast með þess-
um gróðri um allmörg ár, þykj-
umst við þess fullvissir, sagði
Hákon, að gróðurskilyrði í ýms-
um byggðum fslands eru nauða-
lík því sem gerist á vissum stöð
um í framangreindum þrem
löndum.
Sem dæmi um þetta sagðist
Hákon vilja geta þess, að ánð
1944 var flutt inn Alaskaösp frá
Kenaiskaga í Alaska. Hún var
sett niður í Múlakoti, þar sem
hún hefur vaxið við hliðina á
birki frá Bæjarstað, gráösp og
sænskri risaösp svo nokkur
dæmi séu nefnd. Reynslan f
gegnum árin hefur sýnt að birk-
ið og Alaskaöspin laufgast ekki
aðeins samtímis á vorin heldur
og fella blöðin á sama tíma á
haustin. Aftur á móti halda hin-
ar aspartegundirnar báðar blöð-
um sínum miklu lengur, enda
eru þær komnar frá suðlægari
stöðum. Hákon sagði, að þetta
benti f þá átt að lengd vaxt-
artímans hér á Suðurlandi sé
hinn sami og á vissum stöðum
á Kenaiskaga í Alaska.
Þá hefur Skógræktin einnig
fiutt inn hvítgreni og sitkagreni
frá þessum sömu slóðum og
reynslan sýnt að báðar þær teg-
undir hafa nógan vaxtartíma
hér. Sömuleiðis hefur melgresi
verið flutt inn frá Alaska og
borið saman við vöxt íslenzka
melgresisins. Það kemur í ijós,
að þessar plöntur blómgast sam
tfmis, og ber fullþroskað fræ á
sama tíma. Allt bendir þetta ó-
tvírætt til sömu áttar.
Lúpínan er líka flutt frá Al-
aska, en þar höfum við enga
plöntu í íslenzka gróðurríkinu
til samanburðar svo við verðum
að láta okkur nægja að dæma
eftir blómgunartíma og fræ-
þroska. Er það hvorttveggja á
þann veg að sýnilegt er að jurt-
in hefur ekki komið úr betra
umhverfi til hins v.erra.
Fjölmörg dæmi mætti telja á-
þekk þessum ef vill. Við höf-
um líka — sagði skógræktar-
stjóri — reynslu af plöntum frá
Norður-Noregi og Norður-Rúss-
landi, sem er mjög á sama ve’g.
Mörg af eldri barrtrjánum, sem
hér hafa verið gróðursett, eru
farin að bera þroskað fræ, sem
sýnir einnig að þau geta við-
haldið stofninum af eigin ram-
leik eins og lúpínan og mei-
gresið.
Með athugun og samanburði
á þeim staðreyndum sem hér
hafa verið nefndar, leiðir af
sjálfu sér að ekki er hægt að
Framh. á bls. 7.
„Framtíð sérhverrar ræktunar fellur eða stendur með því að frævalið
sé rétt“. Myndin er tekin í gróðrarstöðinni á Hallormsstað.
Hér er Haraldur að blaða í Leikhúsmálum, sem hann gaf út í 10 ár,
1040—1950.
HEIMDALLUR - ÓÐINN
VÖRÐUR
HVÖT -
SPILAKVÖLD
Spilakvöld halda Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík mánudaginn 25. febrúar kl. 20.30.
D AGSKRÁ:
1. Spiluð félagsvist.
2. Ávarp. Jóhann Hafstein bankastjóri.
3. Spilaverðlaun afhent.
4. Dregið í happdrættinu.
5. Danska útvarps- og sjónvarpsstjarnan Eugén Tajmér skemmtir
Sætamiðar afhentir sunnudag milli kl. 2-4 í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu.
Húsið opnað kl. 20.00. - Lokað kl. 20.30. SKEMMTINEFNDIN.