Vísir - 27.02.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 27.02.1963, Blaðsíða 2
 V1SIR . Miðvikudagur 27. febrúar 1963. ... T- ni ji L_ u jr %______________. ,________. 'ík 11—i r_J 11—i i d r=T r ECörfuknatfleiksmót Islands: Efnilegir Arnesingar Á sunnudaginn voru leiknir hvorki meira né minna en 7 leikir í meistaramóti Islands í körfu- knattleik. Leikir þessir fóru fram í íþróttahúsi Háskólans og hófust kl. 1 eftir hádegi og var ekki lok- ið fyrr en kl. 7. Nokkuð margir leikir í einu að mínum dómi. Orslit einstakra leikja urðu þessi: IV. flokkur: KR — Ármann 6:17 ÍRb - ÍRc , 32:4 III. flokkur: ÍRb — Ármann 37:16 KR - KFR 32:19 II. flokkur: KFR — Ármann a 20:68 lR — KRb 83:32 I. flokkur: KR — Skarphéðinn 64:57 Síðastnefndi leikurinn var all spennandi á að horfa. Nokkuð spennandi á köflum. KR getur þakkað sigur sinn óvenjulegri skot heppni og nokkurri keppnis- reynslu umfram andstœðingana. annaanannannaannatannaa □ a | Dcmir unnu gieimsmeisturana i u a n Um hclgina unnu DanirQ aRúmena í Iandsleik í Kaup-Q gmannahöfn með 13:12 í hörku-D aspennandi og skenimtiIegumQ jjjleik. Danir voru nokkuð heppn-D air að vinna en sýndu þó mik-jjj Dinn sigurvilja og Iéku oft sér-D glega vel. g n a aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa Árnesingarnir eiga efnilegt lið. Þeirra beztur var miðherjinn, sterkur og skoraði hann 26 stig í leiknum. Með meiri keppnis reynslu á lið þetta eflaust eftir að Magnús að nafni, stór maður og verða Reykjavíkurliðunum skeinu- hætt. Stigin skoruðu, fyrir Skarp- héðinn Magnús 26, Gestur 11, Guðmundur 7, Þórður 7, Bjarni 5 og Ingólfur 2, af hálfu KR: Þórir Arinbjarnarson 16, Gunnar Hans- son 16, Baldvin Berntsen 16, Þor- steinn Ólafsson 14 og Helgi Ágústs son 2. Árnesingarnir eiga eftir að leika einn leik, sem fer fram 24. marz, að öllu forfallalausu. Þss. KFR VANN KR 1 gærHvöldi voru leiknir tveir ] leikir 1 körfuknattleiksmótinu. IR ] vann stúdenta með 64:27 og KFR vann KR með 62:56. Eins og framan getur unnu ÍR- ingar mikinn sigur yfir stúdentum. Nánar tiltekið, þeir skoruðu stigin. Stúdentarnir voru einstaklega ó- hittnir á körfuna. Tókst að opna vörn IR í fyrri hálfleik, en þar með var draumurinn búinn, skotið gátu þeir ekki, I hálfleik stóðu leikar 34:12.iÍR notaði allvel hæð leikmanna sinna og hittu auk þess mjög vel. Stigin í leiknum skoruðu fyrir ÍR: Þorsteinn 11, Guðmundur 13, Agnar 9, Einar Ólafsson 9, Helgi Jóhannsson 6, Sigurður Gíslason 8 og Tómas Zoéga 8, af hálfu stúdenta Edgar 8, Sigurgeir 6, Viðar 4, Jón 4, Hafsteinn 3 og Guðni 2. Seinni leikurinn var heldur daufur. KFR vann jafnt og þétt á. I hálfleik stóðu leikar 26:32 fyrir KFR. Og áfram héldu þeir hægt og sígandi og unnu leikinn eins og Hér eru þrjár brezkar íþróttakonur frá Samveldisleikunum í vetur. Elizabeth Ferris er lengst til hægri, en hún er stjama í kvikmyndum, og leikur á leiksviðinu engu slður en í sundlauginni, og um þessar mundl leikur hún í Sydney í Ieikriti Checkhovs Kirsuberjargarðurinn, en með henni á myndinni eru Nellek Jol til vlnstri en hún er þekkt sem þjálfari og í miðjunni er ungfrú Jen Bedford, sem auðvitað er snjöll fimleikakona. fyrr segir með 66:52. Það amaði greinilega eitthvað að KR-ingum í þessum leik. Þeir notuðu ekki þann hraða sem þeir ráða yfir og gekk erfiðlega að opna vörn KFR. Þá hittu þeir og mjög illa. Af hálfu KFR var leikurinn hins vegar all- vel leikinn. Vörnin góð, þeir gættu Einars og Guttorms mjög vel. Sóknarleikur hægur, en ákveðinn. Fyrir KFR skoruðu Ólafur Thorla- cius 21, Einar Matthiasson 13, en hann varð að yfirgefa leikvöll vegna meiðsla í síðari hálfleik, Hörður 14, Sigurður Símonarson 8, Marinó og Ástbjörn 4 hVor og Sigurður Helgason 2. Hjá KR skor- uðu Guttormur 18, Kolbeinn 11, Einar Bollason 9, Jón Otti 8 og Kristinn Stefánsson 6. Eflaust hef- ir ráðið nokkru um úrslit leiks þessa að Ólafur Thorlacius er þjálfari KR og þekkir því mætavel leikaðferðir þeirra. Einnig hófu þeir of seint að beita maður á mann vörn. Þss. " Frá Ieiknum f gærkvöldi milli ÍR og íþróttafélags stúdenta. ► Heimsmet Jon Konrad í 800 yarda sundi með frjálsri aðferð fékk heldur slæma meðferð á fimmtudaginn, en met þetta var orðið 4ra ára gamalt. Bob Windle frá Nýja Suður-Wales bætti það fyrst um 8.1 sekúndu í 9.34.1, en stundarfjórðungi síðar var metinu enn hnekkt og þá svo um munaði, þvf Japaninn Shozo Fujishima synti vegalengdina á 9.18.6. ► Annars eru Japanir geysisterkir í sundi um þessar mundir og virð- ast ekki ætla að verða Iömb við að leika á Olympíuleikunum sem verða í Tokyo á næsta ári. Á sama móti og met Konrads var hnekkt, í Pcrt f Ástralíu, vann 200 metra baksund á nýju heimsmeti, 2.58.5, sem er 4/10 betra en fyrra met hennar í vegalengdinni. ► Körfuknattleiksliðin ABE og Efterslægten Iéku nýlega til úr- slita um Danmcrkurmeistaratign- ina í körfuknattleik og Iauk Ieikn- um með sigri hinna síðarnefndu 50:37 og eru þeir meistarar í þriðja sinn. Rúizt var við jafnari leik og jafnvel sigri ABC, en einn Ieik- maður gat ekki mætt og einmitt þess vegna var ekki um baráftu eða spenning að ræða. Leikmaður þessi er hinn oinstæði fþróttamað- ur og „altmugligtmand", Knud Lundberg.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.