Vísir - 27.02.1963, Qupperneq 16
VÍSIR
Miðvikudagur 27. febrúar 1963.
Glæsilegt íbúðarhverfí rís
-<»
Líkan af hinu nýja íbúðarhverfi sem senn rís á Grensásnum.
SOLUHOFUR
GÓÐAR í USA
Útflutningur og sala á
freðfiski til Bandaríkj-
anna jókst mikið á sl.
ári. Fyrirtæki Sölumið-
stöðvarinnar í Bandaríkj
unum seldi árið 1962 um
20 milljónir punda en ár-
ið 1961 um 17 milljónir
punda. En aukningin því
um 18 prósent.
Söluhorfur á þessu ári í
Bandaríkjunum er all góðar. En<jv-
allt veltur á því að þorskurinn
veiðist vel á vertíðinni. Skortur
hefur verið á karfaflökum, og
erfitt að fullnægja eftirspurn-
inni á bandaríska markaðnum.
Togaramir sigla með aflann.
Annars veiðist karfinn aðallega
á sumrin.
Otlit er fyrir að tollahækkan
ir á markaði Efnahagsbanda-
lagsins muni fara að segja til
sín og skapa útflutningsstarf-
semi okkar erfiðleika, segir
Guðmundur Garðarsson, full-
trúi Sölumiðstöðvarinnar. í
Hollandi var enginn tollur á
frystum fiski en hann hefur
nú verið ákveðin 6%. Hugsan-
legt er að örðuleikar skapist
einnig á markaðnum í V-Þýzka
landi. Þar hefur ísland haft tak
markaðan tollfrjálsan innflutn-
ingskvóta fyrir frysta síld.
Hugsanlegt er að hann verði
minnkaður eða settir tollar á
síldina.
Samkeppnisaðstaða íslands
samanborið við Norðmenn á
markaði Fríverzlunarsvæðisins,
EFTA, er ekki góð. Tollar á
sjávarafurðum hafa verið 10%
hjá Bretum, en hafa nú verið
lækkaðir um helming gagnvart
Norðmönnum en eru óbreyttir
gagnvart okkur.
Skipulagt hefir verið 1500
manna íbúðarhverfi efst á Grens-
ásnum hér í borg og verður það
eitt hið glæsilegasta íbúðarhverfi
bæjarins, útsýn hið fegursta yfir
Flóann og Sundin og til austur- og
suðurfjalla. Skipulaginu hefir
skipulagsstjórinn, Aðalsteinn
Richter og starfsmenn hans, hagað
með tilliti til þess að útsýnið nyti
Álftamýrarhverfinu, sem nú er í
byggingu sagði skipulagsstjóri í
viðtali við Vísi í morgun. Það er
sem fyrr segir hæst á Grensásnum
og nær norður að hinni miklu
grjótnámsgryfju Hafnarinnar í
Grensásnum. Sterkur heildarsvipur
verður á þessu hverfi, eins og sést
af meðfylgjandi mynd, og jafn-
framt létt yfir því. Verzlanir fyrir
ar hæðar raðhús og 7 einbýlishús
Sé reiknað með 4ra manna fjöl-
skyldu í hverri íbúð verða nálægt
1500 manns í þessu nýja hverfi.
Samþykkt i borgarráði.
Skipulagning Grensáshverfis var
endanlega samþykkt í Samvinnu-
nefnd um skipulagsmál í fyrradag
og í borgarráði i gær. Deildir
í GRCHSASNUM
sín sem allra bezt, og jafnframt
eru hæstu húsin staðsett með til-
liti til þess að veita skjól fyrir
austan- og norðaustanáttinni á
ásnum, Þetta hverfi verður í hinu
fyrirhugaða Grensásprestakalli og
í Álftamýrarskólahverfi, norðaust-
an Hálaleitisbrautar, eða nánar til-
tekið norðaustur af Safamýrar- og
þetta hverfi hafa verið staðsettar
við Safamýri op er búið að úthluta
vérzlunarhúsalóðunum.
358 íbúðir
verða í hinu fýrirhugaða Grens-
áshverfi. Þar verða reist 19 fjög-
urra hæða fjölbýlishús með sam-
tals 312 íbúðum, þá koma 39 einn-
------------------:----------------
Frumrmnsikii / nauðgunar-f
málinu er nú lokið
borgarverkfræðings eru nú að
ganga frá verkfræðilegum undir-
búningi að byggingu hverfisins og
byrjað er á útivinnu þar, það er
að segja holræsagerð. Lóðaúthlut-
un mun fara fram á næstunni og
byggingaframkvæmdir hefjast þeg-
ar nauðsynlegum undirbúningi er
lokið.
Frumrannsókn lauk i gær hjá
bæjarfógetaembættinu í Hafnar-
firði út af nauðgunarmáli því sem
kært var til lögreglunnar í Reykja
vík að morgni 29. janúar s.l.
Þar sem pilturinn sem hér á
hlut að máli telst til heimilis í
Hafnarfirði hafa dómpróf í máli
hans farið fram þar að undan-
gengnum yfirheyrzlum hjá rann-
sóknarlögreglunni í Reykjavík.
Pilturinn sem er að verða 22ja
ára að aldri hefur setið í gæzlu
varðhaldi síðan, en var látinn laus
„Rússarnir liggja í því"
— segir Einor Olgeirsson
Vísir átti í morgun stutt
samtal við Einar Olgeirs
son foringja kommún-
ista, og spurði hann
hvert álit hans væri á
njósnamálinu.
— Það er nú svona með
þessi njósnamái, að maður
veit aldrei hvor kemur til
hvors. hvort það eru Rússam-
ir sem koma til íslendingsins
eða sá síðari sem býður Rúss-
unum þjónustu nna.
— En teljið þér ekki alveg
ljóst af því sem fram kemur
í skýrslunni, að Rússarnir
hafi viijað fá upplýsingar hjá
Ragnari?
— Jú. þetta er allt öðru vísi
mál en blýantsmálið. Rúss-
amir Iiggja hér í því.
— En af hverju teíjið þér að
Ragnar hafði boðið fram þjón
ustu sína?
— Það er nú svo með þetta
mál, að Ragnar hefur um ára-
bil gengið erinda Sjálfstæðis-
flokksins, að útvega þeim
fréttir af fundum Sósíalista-
flokksins.
— Getur það verið, hefur
hann ekki verið all háttsettur
í flokknum?
— Nei, nei, hann var víst
einu sinni i stjórn Dagsbrún-
ar, meira veit ég ekki.
— Þekktuð þér Ragnar
persónulega?
— Já, já, ég þekkti hann
vei sérstaklega tengdaföðui
hans.
í morgun.
Að þvf er Gunnar Sæmundsson
fulltrúi bæjarfógeta í Hafnarfirði
skýrði Vísi frá í morgun hefur lít-
ið nýtt komið fram f málinu við
síðari yfirheyrzlur. Pilturinn hefur
að vísu játað það, sem hann neit
aði f fyrstu að hafa haft kynmök
við stúlkuna sem kærði hann, en
neitar að það hafi verið að óvilja
hennar. Stúlkan heldur hins vegar
fast við fyrri framburð sinn og
kæru.
Þau vitni sem leidd hafa verið
geta lítið borið og að sjálfsögðu
ekkert beint. Tvær konur sem búa
í húsinu segjast hafa heyrt ein-
hvern hávaða umrædda nótt, sem
telja má að hafi orsakazt af því
er maðurinn var að klifra upp á ris
hæð hússins. Konurnar kváðust
hins vegar þá ekki hafa gert sér
neina grein fyrir orsökum þessa
hávaða og ekki gert sér frekari
rellu út af hopum.
Málið verður nú afhent saksókn
ara til athugunar og ákvörðunar.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá liggja tvær aðrar hliðstæðar
kærur fyrir á hendur þessum sama
manni, önnur fyrir tilraun til nauð
gunar, hin fyrir meinta nauðgun.
Átti að taka þau mál bæði til
dóms f Hafnarfirði þegar þetta
þriðja kom til sögunnar og sagði
Gunnar Sæmundsson að dómur
myndi verða kveðinn upp f þeim
öllum sameiginlega.
Úibreiðsla
inflúenz-
unnar hæg
Bóluefnið sem Lyfjaverzlun
ríkisins pantaði, er nú komið
til landsins Frá Bretlandi í
gærkvöldi og Bandaríkjunum í
morgun. Er hér um allmikið
magn að ræða,' mikið meira en
ætlað er að verði notað, fyTst
í stað að minnsta kosti. Mest
ástæða þykir að bólusetja börn
gamalt fólk og veiklað, svo og
starfsfólk ýmissa stofnanna
sem ekki má án vera. Bóluefn
ið er fengið í hendur heimilis
læknum, sem nota það eins og
þeim finnst ástæða til. Yfir-
læknum sjúkrahúsa, mun gefin
kostur á nokkru magni til þess
að bólusetja starfsfólk sitt.
Bólusetning er ekki hafin ennþá
sem neinu nemur, en læknar
eru nú að sækja það til lyfja-
verzlunarinnar. Inflúenzusýkill-
inn mun að því er rannsóknir
benda til vera af tegundinni A-
2, en veikin sem hann orsakar
er nefnd Asiuinflúenza. Að
því er skrifstofa borgariæknis
tjáði blaðinu munu fjarvistir í
skólum síðan eftir helgi, ekki
vera neitt óeðlilega miklar, og
bendir það fremur til að út-
breiðsla veikinnar sé ekki mjög
ör. Fólk sem æskir þess að
vera bólusett skal snúa sér til
lækna sinna, en ekki til Heilsu-
verndarstöðvarinnar.