Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 1
VISIR
53. árg.— Föstudagur 1. marz 1963. — 50. tbl.
ENN GENGID TIL
MÓTS VIÐ BSRB
Eftirfarandi frétt hefir blað-
inu borizt frá ríkisstjórn-
inni.:
Hinn 7. febr. sl. voru tillögur
ríkisstjórnarinnar að kjarasamn
ingi ríkisstarfsmanna lagðar fyr-
ir Kjararáð BSRB. Ríkisstjórnin
ætlaðist til þess að þá þegar
hæfust viðræður samninganefnd
ar ríkisins og Kjararáðs um til-
lögurnar og þar á meðal um nið-
urröðun starfsmanna í launa-
flokka með það fyrir augum að
reyna að brúa bilið milli tillagna
ríkisstjórnarinnar um 25 launa-
flokka og kröfu Kjararáðs um
31 flokk. Var þá að sjálfsögðu
haft í huga, að í þeim viðræðum
yrðu gerðar ýmsar breytingar á
tillögum ríkisstjórnarinnar eins
og venjulegt er í samningaviðræð
um. En Kjararáð hafnaði því á
fundi 9. febr. sl. að ræða skipun
starfsmanna í launaflokka og
hefir þannig komið í veg fyrir
samningaumræður um það mál.
Samkvæmt lögunum um kjara
samninga eiga kjaramálin að
ganga nú 1. marz til Kjaradóms,
en lögin heimila fjármálaráð-
herra að breyta því tímamarki.
Ríkisstjórnin vill nú, þrátt fyr-
ir afstöðu Kjararáðs, freista þess
enn að ná samkomulagi og legg-
ur þvf fram ýmsar breytingar á
fyrri tillögum, sem miða að því
að ganga til móts við óskir ým-
issa starfsmanna og starfsmanna
hópa, sem hafa komið þeim ósk
um á framfæri við ríkisstjórnina
og samninganefnd ríkisins.
Jafnframt hefir fjármálaráð-
herra ákveðið að fresta því til
15. marz n.k. að málið gangi til
Kjaradóms til þess að tveggja
vikna frestur fáist til athugunar
og umræðna um hinar nýju til-
lögur, og væntir ríkisstjórnin
þess fastlega, að Kjararáð hefji
nú samningaviðræður með eðli-
Iegum hætti.
Reykjavík, 28. febr. 1963.
Við brottför Rússanna í morgun. Dimitriev lengst til vinstri, þá koma Kisilevs, islenzkur farþegi kona
Dimitrievs, Kisilev veifandi og 7 ára dóttir hans með hvíta húfu.
Rússnesku njósnarurnir fóru
utan i
Rússneski sendiráðs-
ritarinn Lev Kisilev, sem
varð sannur að sök að
reyna að fá íslenzkan
mann til að stunda hern-
aðarnjósnir fór í morgun
af landi brott og með
honum kona hans og sjö
ára dóttir. Einnig fóru
utan túlkurinn Lev
Dimitriev og kona hans.
Brottför þessara tveggja
Rússa og fjölskyldna þeirra
varð með öðrum hætti en
tékkneska njósnarans, sem vís-
að var úr landi s.l. sumar. Þau
komu að vísu á síðustu stundu,
en gengu með venjulegum
hætti í gegnum vegabréfaskoð-
unina og fóru út í flugvélina í
hópi annarra farþega.
Fréttamaður Vísis gerði
ítrekaðar tilraunir til að fá
Kisilev til að leysa frá skjóð-
unni og skýra frá atburðum
síðustu daga, en Rússinn lét
sem hann heyrði engar spurn-
ingar.
Mikill hópur annarra starfs-
manna úr rússneska sendiráð-
inu kom út á flugvöllinn til að
kveðja Kisilev, enda mun hann
hafa verið mikill samkvæmis-
maður innan þess lokaða
hrings sem hið fjölmenna rúss-
neska sendiráð myndar.
Hlíf úr flaueli iék
laus ú stýrishjólinu
Jeppabifreiðin U-138 fór í gær
út af veginum i Skriðum í
Fagradal og hrapaði fyrst nið
ur bratta um 12 metra vega-
lengd og tókst þá ökumann-
inum, Áma Þórarinssyni á
Kirkjubóli í Norðfirði, að henda
sér út, en billinn hentist svo
áfram niður í gljúfur og mun
það vera um 70 metra fall.
Þetta gerðist um hádegisbilið^
í gær og var Ámi á leið til
Egilsstaða einn síns liðs. Missti
hann stjóm á bílnum á fyrr-
nefndum stað. Veður var gott,
en dálítil rigning. Ámi skrám
aðist aðeins, og lagði af stað
til Reyðarfjarðar, en þangað er
um 8 km. leið, og fékk hann
brátt far með bíl, sem var á
leið þangað.
Bifrejðin sem er af Austin-
Gypsygerð er mjög mikið
skemmd sem að líkum lætur.
Sigurður Sveinsson bifreiðaeft-
irlitsmaður skoðaði bifreiðina í
gær og segir hann, að stýrið
hafi verið að öllu leyti í sam-
bandi, en það hefir verið haft
eftir ökumanninum, að hann
hafi talið, að stýrið hafi farið
úr sambandi.
Skýringuna á því, að maður-
inn missti stjórn á farartækinu
telur Sigurður þá, sennilegasta,
að á stýrishjólinu var hlíf úr
flaueli, sem var svo laus á
hjólinu, að hún gat runnið til,
án þess hjólið hreyfðist. Vísir
hefir það frá áreiðanlegum
heimildum, að eftirlitsmaður-
inn hafi prófað þetta sérstak-
lega og komizt að raun um,
að hlífin lék laus á stýrishjól-
Slíkar stýrishlífar úr fiaueli geta verið varasamar.
Hiti í Hveragerði minnkar
Rannsóknir þýzkra vís-
indamanns á hverasvæð-
inu í Hveragerði hafa nú
leitt í ljós, að á tveimur
síðustu árum hefur vatns j víðtækar mælingar, en sé
og hitanotkun þar á svæð-1 hér um annað og meira að
inu minnkað stórlega. Enn ' ræða en stundarfyrir-
eru eigi fyrir hendi nógu | brigði, er hér um uggvæn-
legar fréttir að ræða fyrir
Hvergerðinga, sem eiga
alla afkomu undir hvera-
h’ta.U.il, Framhald á bls. 10.