Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 8
8 V I S I R . Föstudagur 1. marz 1963. VtSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. 1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Skýjaborgir Brynjólfs Á fundi Sósíalistafélags Reykjavíkur sem haldinn var kvöldið sem rússnesku njósnaramir voru gripnir uppi við Hafravatn, ræddi hinn gamli páfi flokksins um leið íslands til sósialisma. Eftir því sem málgagn kommúnista skýrir frá í gær sagði Brynjólfur að á þeim árum sem liðin eru frá því að stefnuskrá íslenzkra kommúnista var samin (1938) hafi margt gerzt sem skapaði breytt viðhorf. „Ekki sízt það, að nú væri opin leið til friðsamlegrar valdatöku alþýðunnar og þess vegna væri afar mikilsvert að menn gerðu sér grein fyrir því hvernig hún myndi eiga sér stað“. Já, það má nú segja. Það er sannarlega mikilsvert fyrir kommúnista að gera sér grein fyrir þessu vanda- máli — vegna þess að líkurnar minnka óðum fyrir því að nokkur lausn á því finnist. Nema þá kannski á mið- ilsfundi. Það er líkast því að hinn gamli páfi flokksins hafi setið-innmúraður í tuttugu ár, og hvorki lesið blðð eða hlýtt á útvarp. Veit ekki blessaður maðurinn að saga undanfarinna ára sýnir að kommúnistar hafa ekki náð völdum í einu einasta ríki veraldar á friðsam- legan hátt? Getur Brynjólfur bent á eitt slíkt ríki? Þá hlýtur það að vera á landabréfi hugarheims hans, sem ekkert á skylt við raunveruleikann. Hér á landi tap^. kommúnistar fylgi í kosningum, einnig á Norðurlönd um og nú síðast hrundi fylgi þeirra ofan í 1,1% í Vestur Berlín. Þannig er það í öllum löndum. Og flokkurinn á sér sannarlega minni lífsvon en ókunnugir hefðu haldið, þegar í ljós kemur að páfi flokksins og aðal hugsjónafræðingur gengur með slík- ar regingrillur í höfðinu. Byltingin er nú sem fyrr eina von kommúnista. Án hennar verður flokkurinn alltaf fyrirlitinn minnihluta flokkur, eins og hann er í dag. Nýtt byggðahverfi Vísir birti í gær mynd af hinu nýja Grensáshverfi, sem borgarverkfræðingur hefur skipulagt. Þar verða ýmsar tegundir íbúðarhúsa og alls munu um 1500 manns eiga þar framtíðarheimili. Stendur þetta hverfi á einum fegursta stað borgarinnar og munu fram- kvæmdir þar hefjast þegar í sumar. Mikill fjöldi lóða- umsóU'na liggur fyrir hjá bæjaryfirvöldunum en hið nýja hverfi með hátt á fjórða hundrað íbúa mun bæta hér úr brýnni þörf. En áfram verður að halda með hraði við skipuleggja ný byggðahverfi hér í höf- uðborginni. Takmarkið er að eftir lóð þurfi enginn að bíða. Keramik Enn sem komið er flyt ég bara inn eftir pöntunum, segir Magnús./En þess mun áreiðan lega ekki langt að bíða að fólk fari að nota þetta almennt, og þá verður allt mikið þægilegra. Hvað hefur þú aðallega verzl að með um dagana? Það er nokkuð margt, ég hef t.d. verið mikið með allskon- ar vefnaðarvörur hingað til. Og kvenfatatízkunni hef ég alveg haldið uppi, en nú sem stendur er keramikin aðalvaran hjá mér. Finnst þér ekki mikill mun ur að vera kaupmaður eftir að fríverzlunin komst á? Jú blessaður, það er sko ekk- ert líkt. Hérna áður fyrr varð maður stundum að hanga allan daginn og gat bókstaflega ekk ert gert, en núna er aftur svo mikið að gera, að maður má helzt aldrei stoppa. — Þú átt sem sagt ólíkt betri tíma núna, en þegar þú byrjað- ir? Já mikil ósköp, þegar ég byrjaði átti ég varla grænan eyrir, og oft' hefur það komið fyrir að ég hef orðið fyrir stór Magnús Haraldsson með sýn- ishorn af keramikflísum. húsagerðar Fyrir nokkrum dögum síðan, litum við inn hjá einum af stór kaupmönnum bæjarins, Magn- úsi Haraldssyni, en hann hefur skrifstofur sínar í Aðalstræti 8, eins og mörgum er kunnugt. Magnús hefur nú rekið fyrir- tæki sitt i 20 ár. Hann tók okkur ljúflega og var strax fús til þess að lofa okkur að rabba við sig smástund. — Jæja Magnús hvernig finnst þér nú að líta yfir far- inn veg, þegar þér hefur vegn- að svona vel? O alveg prýðilega, þó að ekki hafi alltaf gengið eins og bezt var á kosið. mér gengur vel núna, mikil ósköp. Og ég get stækkað fyrirtækið hvenær sem ég vil. En ég hef enga sérstaka löngun til þess, kann ágætlega við allt eins og það er. Hérna f gamla daga, ef svo má segja þá var útliðið oft svart, og fjárhagurinn heldur framlágur, en mér tókst alltaf að rétta mig af aftur, án þess að taka lán eða nokkuð svo- leiðis. Hvað viltu segja okkur um kaupmátt almennings nú til dags Magnús? — til Prýðilegur, fólkið virðist hafa ágæt fjárráð, ég er t.d. núna á skömmum tíma búinn að selja keramikflísar á þrjú hús. Magnús, hefur einkaumboð fyrir keramikglerið og telur að það eigi mikla framtíð fyrir sér hér á íslandi, sökum þess hvað það sé sterkt endingar- gott og henti vel veðráttunni okkar. tapi, og verið svo til á núlli aftur. En samt hefur aldrei fall ið á mig vfxill og ég hef aldrei tekið lán. Þú hefur mikla trú á kera- mikinni ekki satt, Magnús? Jú, það er alveg rétt. Kera- mikin er í einu orði sagt stór- fengleg, enda er hún mjög mik- ið notuð erlendis. Sterkari og endingarbetri eða fallegri klæðningu, er ekki nokkur leið að fá, hvort sem nota skal úti eða inni, í gólf eða loft. Við þökkum nú Magnúsi rabb ið og forðum okkur út áður en hann selur okkur keramik hús, sem tæki okkur, minnst að kosti 100 ár að greiða. Stjómin ráðgerir bygg- ingarsjóS nldraðs fólks Þrjú stjórnarfrumvörp varðandi aukinn stuðn- ing við aldrað fólk, voru lögð fram á Alþingi í gær, frumvarp um bygg ingarsjóð aldraðs fólks, frumv. um að 40% tekna<s> af happdrætti DAS skuli renna í fyrrgreindan byggingarsjóð, og loks frumv. um heimilishjálp handa öldruðu fólki. Frumvörpln eru samin af nefnd, sem kosin var úrið 1959 til að „athuga skilyrði aldraðs fólks til að ~iota starfsorki' slna“. Formaður nefndarinnar var frú Ragnhildur Helgadóttir alþingismaður. Styrki og lán úr byggingar- | sjóði aldraðs fólks má veita | gegn öruggum veðum og trygg- ingum, sveitarfélögum eða að- ilum, sem sveitarstjómir mæla með að takist á hendur að reisa íbúðir handa öldruðu fólki. Tryggingaráð ríkisins, sem hefur stjóm sjóðsins með höndum getur ákveðið að hluti sjóðsins Uomi til úthlutunar á vegum húsnæðismálastjórnar eftir reglum, sem þaö setur og félagsmálaráðuneytið staðfestir. Skal því fé varið til að lána ein staklingum yfir 67 ára aldri til kaupa á litlum íbúðum, sem sérstaklega eru gerðar við hæfi aldraðs fólks. Skal þá vera sú kvöð á íbúðunum, að þær verði eimngis aotaðar fyrir aldrað fólk meðan lánin hvila á þeim. Til starfsþjálfunar í Bandaríkjunum Mörg undanfarin ár hefur Is- lenzk-ameríska félagið haft milligöngu um að aðstoða unga menn og konur við að komast til Bandaríkjanna til starfsþjálf unar. Er þessi fyrirgreiðsla á vegum The American-Scand- inavian Foundation í New York. Höfuðtilgangurinn með þessum ferðum er, að menn geti aflað sér aukinnar þjálfunar og kynnt sér nýjungar í Larfs- grein sinni. Um margs konar störf er að ræða Á síðastliðnu ári fóru samtals sjö menn til starfs í ýmsum greinum, svo sem bankastörfum, bifreiðavið- gerðum, kjörbúðaafgreiðslu, trésmíðum og landbúnaði, en Frh. á bls 13 li

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.