Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 01.03.1963, Blaðsíða 5
V í S.I R . Föstudagur 1. marz 1963. 5 Ösku- dagur á Akureyri Víst munu siðir hins gamla Öskudags hvergi lifa svo góðu lífi sem norður á Akureyri. Þar klæð.ast flest börn búning- um og ganga um götur í röð- um syngjandi, og loks er farið út á völl og kötturinn sleginn úr tunnunni. Hér birtum við mynd af einum hópnum, sem tekin var á Akureyri í fyrra- dag. (Ljósm. Jón Stefánsson). Athugasemd 1 grein minni í Vísi 26. þ. m., „Misskilningur leiðréttur“, hafa orð skolazt til, aðallega á tveim stöðum. Þannig hefur orðið ómak- Iegt orðið „ómerkilegt", og á öll setningin, þar sem þetta orð kem- ur fyrir, að vera á þessa leið: „Allt tal um guðspekina sem trú- arbragðasamsteypu eða „hræri- graut“ er því ómaklegt og út í hött“. Seinna í greininni kemur fyrir orðið „guðmyndir", en á að vera guðsmyndin. 28. febr. 1963. Gretar Fells. Eitt óhugnanlegasta glæpa- mál Noregs upplýst Yfir2000bókat't!- ar á bókamarkaði Bókamarkaðurinn árlegi á veg- um Bóksalafélags íslands var opn aður í morgun í Listamannaskálan um. Tíðindamaður frá Vísi átti viðtal í gær við þá Gunnar Einars son formann Bóksalafélagsins og Lárus Blöndal bóksala, en hann og Jónas Eggertsson sjá um mark aðinn. Og þeir Gunnar og Lárus höfðu m.a. þetta að segja um hina árlegu bókamarkaði félagsins: Bókaútgefendur hafa á undan- gengnum árum reynt að kynna fólki hvað til er af eldri bókum með því að halda bókamarkað. Bókaverzlanir í bænum eru yfir- leitt ekki stærri en það, að þær hafa ekki tök á að sýna eldri bæk- ur samtímis hinum nýju. Þótt bók- salar séu allir að vilja gerðir til þess að hafa eldri bækurnar til sýnis eru skilyrðin ekki fyrir hendi og þær verða útundan. Til þess að bæta úr þessu hafa bókaútgef- endur í heild tekið það ráð, sem erlendir bókaútgefendur gera hver fyrir sig, að hafa bókamarkað ár- lega til þess að kynna hvað er til af eldri bókum og hvað er að hverfa. Þótt mörgum sýnist, er þeir koma inn í sýningarsalinn, að lítil breyting sé frá ári til árs, er það missýn, þvi að á hverju ári hverfa tugir bóka fyr- ir fullt og allt, en aðrar koma í staðinn. Þessu til sönnunar er til dæmis, að á bókamarkaðn- um í fyrra gengu gersamlega til þurrðar 70 bækur. Að bókamarkaðnum nú standa 45 útgefendur í upphafi, en reynsl- an hefir alltaf sýnt, að fleiri bæt- ast við. Alls eru 2000 bókatitlar á markaðnum að þessu sinni. Nú munu menn spyrja hver sé ávinningurinn og því viljum við svara: Vegna þrengsla neyðast útgef- endur til að lækka verð bóka þótt verðgildi peninga falli samhliða. Á markaðnum eru margt bóka 50— 60% undir upphaflegu verði, og sumar þær elstu kosta ekki meira en hefting bókar kostar nú. Bóka- útgefendur vilja sérstaklega taka fram, að tilgangurinn er ekki að- eins að selja bækur, heldur einnig að kynna hvaða bækur eru að þrjóta og verða ófáanlegar. Engar bækur eru á markaðnum yngri en 5 ára. Af sumum bókum er aðeins eitt eða tvö eintök Fá- ein ljósprentuð eintök eru þarna af bók sem prentuð var í Leirár- görðum 1780. Eitt ævintýri eftir síra Snorra Björnsson frá Húsa- felli. Þarna eru fáein eintök af bókum, sem voru taldar uppseld- ar — en hafa komið í leitirnar. Þeirra á meðai eru örfá eintök af þjóðsögum Einars ÓI. Sveinssonar Hið svokallaða Ritu-mál í Noregi er nú fullkomlega upp- lýst. Skýrði Vísir fyrir nokkru frá því að óhugnalegt afbrot hefði verið framið í nágrenni Björgvinjar á vesturströnd Noregs. Fannst þá í holræsis brunni lík 15 ára stúlku, Ritu Haakonsen, sem hafði horfið þrem mánuðum áður. Var þama um að ræða kynferðis- brot og skiljanlegt að það vekti hinn mesta óhug f Noregi. Fylgdi það með fréttinni, að vitað væri að árásarmaðurinn .UtUOílBl Dagskrá og matseðill Pressuballsins Dagskráin á Pressuballinu i Hótel Sögu er nú endanlega á- kveðin og verður sem hér seg- ir: Dr. Gunnar Schram, for- maður Blaðamannafélags ís- lands, setur samkomuna, Gunn- ar Gunnarsson skáld, flytur ræðu, Svala Nielsen syngur einsöng, Kristinn Hallsson syng ur nýja skopkviðlinga eftir Stefán Jónsson fréttamann og Halldór Blöndal blaðamann. Og síðast flytja leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason nýjan skemmtiþátt eftir Har- ald J. Hamar blaðamann. Veizlustjóri verður Vilhjálm- ur Þ. Gíslason útvarpsstjóri. Að Iokum verður dansað. Hljómsveit Svavars Gests leik- ur. Hótelið hefur sérstaklega vandað til veizlumatar og hljóðar matseðillinn svo: Consommé journaliste, Homard Andalouse, Supreme de Canard Bigarade og Bombe Girondine. Þeir fáu, sem enn þá eiga eftir að sækja miðapantanir sín eru beðnir að hafa samband við Elínu Pálmadóttur á Morg- unblaðinu í dag. hefði ekið um í ljósum Fólks- vagni, og var það hið helzta sem lögreglan studdist við í byrjun. Björgvinjarlögreglan vann í fyrstunni þannig að málinu, að hún tók saman skrá yfir alla þá menn sem ættu ljóslitaða Fólksvagna. Síðan fór hún að rannsaka fortíð þeirra, hvort þeir hefðu framið afbrot, eink- um afbrot skyld kynferðisaf- brotum. Þannig þrengdist hring urinn smásaman, unz einir 10 menn voru eftir. Þá var þeirra ferill rannsakaður enn ýtarleg- ar og brátt kom að því, að einn maður lá helzt undir grun. Hann hafði fyrir nokkrum ár- um verið dæmdur fyrir brot gegn blygðunarsemi (eksibition ismi) og hegðun hans upp á síðkastið hafði á margan hátt verið undarleg. Öruggt sönnunargagn fékkst loks, þegar lögreglan rannsak aði híbýli hans og fann þá ann- an hanzka stúlkunnar. Þá var maðurinn sem heitir Carl Jacob Schnitler handtekinn. Hann neit aði í fyrstu, en þegar hanzkinn var lagður á borðið, gafst hann upp og játaði brotið. Lögregluna grunar að þessi maður hafi verið stórhættuleg- ur og að hann sé valdur að hvarfi fleiri telpna og kvenna m.a. hvarfi 17 ára stúlku frá Haugasundi í október í fyrra, en ekkert er vitað um hana síðan. prófessors og heildarútgáfa skáld- sagna Jónasar Jónssonar frá Hrafnagili, Þá sögðu þeir að það væri far- ið að koma í Ijós, að menn kæmu þarna til þess að fá stofn að bóka safni og bættu svo við árlega. Slíkan stofn gamalla, góðra bóka er hægt að fá á markaðnum fyrir 500—1000 krónur. María / boði með Jatk og Jackie TRÓÐ MATBAUNIEYRAD Síöastliðið sunnudagskvöld varð 11 ára drengur í Hrísey fyrir þvi óhappi að troða matarbaun upp í eyrað á sér. Drengurinn ætlaði að ná baun- inni út úr eyranu með eldspýtu, en tókst svo illa til að baunin tróðst æ lengra inn í eyrað. Tók það smá | saman að bólgna og drengurinn að fá þrautir í það. Þar sem læknislaust er f Hrísey og héraðslæknir eyjaskeggia stað settur í Dalvík var farið með dreng inn á báti til Dalvíkur. Læknirinn þar taldi sig ekki hafa tæki til að ná bauninni, þar sem hún væri komin svo langt inn í eyrað. Var drengurinn þvf sendur f fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Þar náðu læknar bauninni 02 fékk drengur inn að fara heim til sín í gær- kveldi „Maria Guðmundsdóttir er virkileg; yndisleg stúlka, starf hennar er stórkostlegt og gerir hún þvi góð skil. Laugardaginn 9. febrúar, un. kvöldið vgr hún í veizlu með Mr. and Mrs. Kennod (forsetanum) svo það er aldeilis •íamar fyrir okkur (slendingana. •'egar okkar fegurðardísum gengur -•’ona “ Þetta er orðréttui kafli u. bréfi, sem Einari Jónssyni, forstjóra ís- lenzku fegurðarsamkeppninnar barst frá íslenzkn konu í New York, fyrir fáeinum dögum. Okk- ur þótti rétt að leyfa lesendum Vísis að sjá þetta. Við spurðum Einar í Ieiðirrf.i hvernip honum gengi að fá stúlkur í fegurðarsamkeppnina. Hann sagðist hafa fengið rúmlega 80 á- bendinaar hvaðanæva af lai.dini oe væri verið að vmna úr þessum ábending .m, er n” væru Jðustu " öð að tilnefna stúlkur til þátt- töku. Va, hann mjög ánægður með ábendingarnar. mmaaeacsr^mjæ^--tmm.wr,isnKmmiMrmmsx%>. tsjmsmsasmmam mtm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.