Vísir - 01.03.1963, Qupperneq 10
10
V í SIR . Föstudagur 1. marz 1963.
Qi
AÐALFORINGI OAS
ARGOIID HANDTFKINN
Þau merku tíðindi hafa gerzt
í Frakklandi, að yfirmaður OAS-
samtakanna Antoine Argoud hef
ur verið handtekinn. Þessi
skeggjaði og kaldrifjaði herra
hefur lengi verið efstur á hin-
um svarta lista lögreglunnar.
Handtöku hans bar að með
þeim einkennilega hætti, að lög-
reglan fann Argoud liggjandi
bundinn og bjargarlaus í lokuð-
um sendiferðabíl, sem hafði ver-
ið lagt rétt undir vegg Notre-
Dame-kirkjunnar í París. Þykir
það ljóst, að deilur innan OAS-
samtakanna hafi Ieitt til hand-
töku Argouds, einhverjir fjand-
menn hans innan hreyfingarinn-
ar hafi ráðizt á hann. Ókunnur
maður hringdi til Parísarlögregl
unnar og skýrði henni frá þvl,
að Argoud lægi í sendiferðabíln
um. Þannig hefur svæsnasti
fjandmaður de Gaulle náðst.
Það var greinilegt að Argoud
hafði verið misþyrmt og var
hann illa farinn. Hann hefur
skýrt lögreglunni frá þvi að
hann hafði verið staddur í
MUnchen í Þýzkalandi, þegar ein
hverjir menn sem hann þekkti
ekki komu þangað sem hann
bjó, slógu hann í rot og fluttu
hann síðan til Parísar. Er vafa
laust að þessi árás hefur verið
liður í bræðravígum innan OAS
hreyfingarinnar.
Franska lögreglan þarf margs
að spyrja hinn handtekna skæru
liðaforingja, en fyrst og fremst,
hvar Georges Bidault hinn póli-
tíski foringi OAS er niður kom-
in. Argoud var dæmdur til
dauða í fjarveru sinni af frönsk
um herrétti árið 1961, en verður
nú að nýju leiddur fyrir rétt.
OAS foringinn Argoud sem hefur verið handtekinn.
Árni Vilhjálmsson hagfræði-
prófessor hefir gert upp eignir og
skuldir Bæjarútgerðar Hafnarfjarð
ar miðað við 1. júní 1962 er stjórn
arferli Alþýðuflokksins og komm-
únista Iauk og núverandi bæjar-
stjómarmeirihluti tók við. Reynd-
ust skuldir bæjarútgerðarinnar
umfram eignir, sem voru metnar
til núverandi verðgildis, nema 41.7
milljónum króna og má segja að
þær skuldir hafi aðallega myndazt
á 2 og hálfu ári. Árið 1960 varð
20 milljón króna tap hjá fyrirtæk-
inu, árið 1961 varð aftur 20 mill-
Jarðhiti —
Framhald af bls. l.
Hinn þýzki vísindamaður heitir
dr. Dobrowski og er prófessor við
háskólann í Giessen í Þýzkalandi.
Hann er kunnur vísindamaður m.
a. fyrir það að hafa fundið elzta
lífsvott á jörðu 1 650 milljón ára
gömlum saltklump frá paletolo-
giska tímabilinu.
Hann hefur greint frá því að af
61 heitri uppsprettulind sem mæld
ar voru og kortlagðar á hitasvæð-
inu í Hverag. sumarið 1961 séu 24
nú gersamlega horfnar en vatns-
yfirborð í hinum hefur lækkað um
þrjá metra, rennslismagn fer
minnkandi og hitastigið hefur
’ækkað mest 70 stig 'en minnst
stig. Erfitt er að gera sér
■ rein fyrir orsökum þessa og
þýrfti víðtækar rannsóknir til að
komast að því.
jóna króna tap en bætur frá afla-
tryggingasjóði það ár námu 10
milljónum eða helmingi tapsins.
Loks varð, samkvæmt uppgjöri, 10
milljón króna tap fyrra helming
ársins 1962. Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar rekur 4 togara.
Útgerðarráð Hafnarfjarðar gerði
á fundi slnum s.l. föstudag sam-
þykkt og tillögur í tilefni af niður-
stöðum þessarar rannsóknar og er
þar lagt til m. a. að þegar í stað
verði Ieitað aðstoðar og samstarfs
við ríkisvaldið um allar nauðsyn-
legar ráðstafanir sem miði að því
að rétta við hag fyrirtækisins og
Ieysa greiðsluvandræði þess.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar í gærkvöld var skýrsla
prófessorsins lögð fram, svo og
samþykktir þær og tillögur, sem
útgerðarráð hafði gert á grundvelli
hennar og samþykkti bæjarstjórn-
in að fela framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðarinnar, Óttari Hans-
syni, útgerðarráði og bæjarstjóra
að vinna að því að reisa við hinn
Nýtt met í
stangarstökki
Á innanfélagsmóti í KR-
heimilinu í gærkvöldi, stökk
Valbjörn Þorláksson 4,36, sem
er nýtt met. Gamla metið sem
hann átti sjálfur var 4,33. í
hástökki sigraði Jón Ólafsson,
stökk 2,10. Næstir voru Jón
Pétursson, og Valbjörn Þor-
láksson, báðir með 1,80.
bágborna hag bæjarútgerðarinnar,
m. a. á grundvelii greinargerðar
Árna Vilhjálmssonar og tillagna
útgerðarráðs.
Alexandrov
mótmælir
enn
Ambassador Sovétríkjanna, hr.
Alexander H. Alexandrov, gekk á
fund utanrikisráðherra í dag og
kvaðst vilja endurtaka mótmæli
sín um að ásakanimar gegn tveim
sendiráðsstarfsmönnum sínum
væru rangar og tilhæfulausar, en
engu að siður mundu sendlráðs-
starfsmennirnir Lev Kisselev, og
Lev Dimitriyev, fara frá íslandi
þegar á morgun flugleiðis yfir
Danmörku, ef nauðsynlegar vega-
bréfsáritanir fengjust fyrir þann
tíma, annars mundu þeir fara með
næstu ferðum þar á eftir.
Utanrfkisráðherra fullvissaði
ambassadorinn um, að fslenzka
ríkisstjómin hefði öruggar og full-
komnar sannanir fyrir öllum á-
kæruatriðunum gegn þeim Kesse-
lev og Dimitriyev.
■rcnlsmíöja í. gúmmfstimplagcrö
Hinholti 2 - Simi 20960
íþróttir —
Framhald af bls. 2.
Ólafur B. Ólafsson, Á, 1:17,8
Erling Jóhannsson, KR, 1:18,0
50 m. bringsund sveina:
Guðm. Grímsson, Á, 38,3
Þorst. Ingólfsson, Á, 40,5
Jóhann Bjamason, SH, 40,8
50 m. flugsund karla:
Guðm. Gfslason, ÍR, 30,3
Pétur Kristjánsson, Á, 30,9
Davíð Valgarðsson, ÍBK, 33,0
100 m. bringusund kvenna:
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, ÍR,
1:21,8 íslandsmet
Auður Guðjónsd., ÍBK, 1:32,6
Matthildur Guðmundsd., Á, 1:33,8
100 m. skriðsund drengja:
Davíð Valgarðsson, ÍBK, 1:02,9
Guðm. G. Jónsson, SH, 1:10,1
Gísli Þórðarson, Á, 1:10,5
50 m. bringusund drengja:
Guðm. Grímsson, Á, 38,3
Þorsteinn Jónsson, SH, 40,0
Gestur Jónsson, SH, 40,2
3X50 m. þrísund karla:
Sveit ÍR, 1:32,8 (Guðm. Gíslason,
Sig. Sig., Þorsteinn Ing.)
A-sveit KR, 1:38,5
Ármann, 1:40,1.
Iðjo —
Framhald af bls. 16.
Guðjón sagði m. a. að Iðja hefði
tvisvar undirritað samninga við
vinnuveitendur á starfsárinu. f
íúlí gerði stjórn Iðju samning um
10% kauphækkun á alla taxta
félagsins og 8% hækkun á á-
kvæðisvinnutaxta. I janúar var
svo aftur sámið við iðnrekendur
og þá um 5% launahækkun. Um
sl. áramót fengu Iðjukonur svo
*V?% kauphækkun í samræmi við
lögin um launajafnrétti karla og
kvenna, svo nú minnkaði óðum
bilið milii karla- og kvennakaups.
Árið 1956 var kvennakaupið að-
eins 64 V2 af karlakaupi en er nú
komið í 84% (miðað við 4 ára
taxta). Um 9V2 af þessarri hækkun
hefur náðst vegna stefnu stjórnar
Iðju í kjaramálum.
Iðja og ákvæðis-
vinnan.
Iðja er reiðubúin til að hefja
samninga við iðnrekendur um á-
kvæðisvinnu, sagði Guðjón Sig-
urðsson. Iðja er eina félagið, fyrir
utan eitt fagfélag, sem hefur sent
mann á námskeið Iðnaðarmála-
stofnunarinnar I vinnuhagræðingu,
með tilliti til þess að Iðja geti tek-
ið upp samninga við atvinnurek-
endur um ákvæðisvinnu. Grund-
völlur þeirra samninga verður sá,
að Iðjufólk fái hærri laun, betri og
hagkvæmari vinnuskilyrði. Jafn-
framt verður lögð áherzla á að á-
kvæðisvinna verði ekki til að auka
vinnuálag á starfsfólkið.
Kommúnistinn sem eyði-
lagði lífeyrissjóðinn.
Þá vék Guðjón Sigurðsson að
kommúnistaforingjanum Bimi
Bjamasyni og þvi „afreki“ hans að
eyðileggja lífeyrissjóð Iðjufólks.
Gat Björn fengið því framgengt á
einum Iðjufundi, með stuðningi
sinna dyggustu flokksbræðra í
Iðju £.5 sjóðurinn varð ekki
skyldusjóður. Eru bvf mun færri I
sjóðnum en annars mundi hafa
verið. sjóðurinn er veikari en ella
og atvinnurekendur hafa losnað
við að greiða stórar fjárhæðir,
jafnvel svo milljónum skiptir í
þennan sjóð.
Joan Fontaine.
„Charles og ég erum svo
góðir kunningjar og samband-
ið milli okkar er svo gott, að
það væri synd að eyðileggja
það með hjónabandi. Hjóna-
band er ágætt fyrir fólk, sem
ætlar að eignast böm og býr
í sveitaþorpi, en þar sem við
ætlum okkur hvorki að eignast
saman böm eða búa í sveita-
þorpi, erum við svo skynsöm
að halda okkur aðeins við vin-
áttuna.“
Siðasta skotasagan: Skoti
nokkur vildi fá að breyta um
nafn — og skýrði yfirvöld-
unurn frá hvers vegna hann
óskaði þess..
— Nei, var svarið. Það föll
umst við ekki á. Þér getið
ekki fengið nafni yðar breytt
vegna þess eins að þér hafið
fundið á götunni kassa með
nafnspjöldum.
Hinn 62 ára gamli ihalds-
fulltrúi í neðri deild brezka
þingsins, Robert Jenkins hef-
ur svipfræði sem tómstunda-
gaman — og hér eru nokkrar
af niðurstöðum hans:
Masmillan forsætisráðherra:
Hefur sérstakan eiginleika til
að ná góðutn samböndum.
Sir Roy Welensky: Einn
bezti heili í heimi.
Nikita Krúsjeff: Stendur að
eins einum manni að baki, Sir
Roy Welensky.
Kennedy forseti: Heilinn
ekkert sérstakt, en mælskan
óvenjuinikil.
De Gaulle forseti: Þrjósk-
an skyggir á alla aðra eigin-
leika hans.
Og herra Jenkins leggur á-
herzlu á að niðurstöðunni um
de Gaulle hafi hann komizt
að tveimur árum fyrir fund-
inn í Briissel.
Nú ganga þær sögur f jöllum
hærra í Hollywood að kvik-
myndastjarnan Joan Fontaine,
sem er 45 ára og þrífráskilin,
ætli að giftast skopteiknaran-
um fræga, Charles Adams.
En nú hefur Joan harðlega
mótmælt þessu:
Krúsjeff
l