Vísir - 16.03.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 16.03.1963, Blaðsíða 4
• Yfirheyrslur prests • um kynferðislífið A Y \ >1 v^.ýW' *-V. \ VV V S.'A-'V C' V í SIR . Laugardagur 16. marz 1963. Cyðst á eynni Gotland, sem liggur í Eystrasaltinu úti fyrir austurströnd Svíþjóðar er Nar-sókn. Þar búa 700 manns sem framfleyta sér með land- búnaði og fiskveiðum. Afkoman er all góð og fólkið hefur verið fremur kirkjurækið og stafar það e. t. v. af því að sveitin er afskekkt og ekki mikið um al- mennar skemmtanir til að giepja fyrír. Til dæmis um kirkjuræknina má geta þess, að eitt árið söfn uðust f samskotum í litlu sókn- arkirkjunni 7500 sænskar krón- ur, sem jafngildir um 60 þús. ísi. kr. Þá hafa sóknarfélög starfað pf fjöri, sérstaklega kvenfélag sóknarinnar, sem hef ur longum hlúð að kirkjunni með margs konar gjöfum. Einn er sá kirkjugripur ■ er ekki þekkist hér á landi, sem sjálfsagt þykir að sænskar kirkj ur eigi. Það er brúðarkrónan. Hún er hátignartákn brúðkaups' athafnarinnar. Er það fagur sið ur, að brúðurin skrýðist þessu drottningartákni og í Svíþjóð hefur frá fornu fari verið litið á kórónuna sem tákn hrein- leiká. 'C'yrir nokkrum árum gaf kven- félag Nar-sóknar kirkju sinni mjög fallega og verðmæta brúðarkrónu og setti hún fagr- an svip á vígsluathafnir í kirkj- unni. En svo gerðist sá atburð i ur fyrir tveimur árum, að nýr prestur kom f byggðina. Við- horf hans í trúmálum hafa verið slík, að eldur logar nú í sókninni. Hann neitar að lána öðrum en hreinum,- meyjum brúðarkrónuna. Hinn nýi prestur heitir séra Karl Erik Johansson. Hann er 35 ára, fæddur og uppalinn í nágrannasókninni Grötlingbo. Hann. nam guðfræði við Upp- salaháskóla og sneri síðan aftur til Gotlands, sem efnilegur ung ur prestur. Hann tók upp á ýmsum nýj- ungum, sem öllum geðjaðist ekki að, en þeir Jétu það vera, því að þeim virtist presturinn geðugur og myndarlegur. A Ht gekk vel, þangað til hin unga fallega Maj Petterson ætlaði að gifta sig. Hún hringdi til prestsins og, gpurðj byprt, hjónavigslan mætti fara fram 1 kirkjunni og hvort nágranna- prestur, sem var fermingarfað- ir unnusta hennar, mætti fram- kvæma vígsluna. — Jú, það var að sjálfsögðu ekkert til fyrir- stöðu. — Mætti ég svo fá lánaða brúðarkrónu kirkjunnar? spurði hin unga stúlka. Þá fékk hún undarlegt svar: — Já, þér getið það, svo framarlega sem þér eruð ekki þungaðar. Eruð þér með barpi? — Nei, það er ég ekki ... —• Jæja, sagði presturinn, þá er það allt í lagi, þér megið sækja brúðarkrónuna kvöldið fyrir giftingardaginn. Maj Petterson varð mjög leið yfir þessu símtali. Að hugsa sér, að presturinn skyldi geta spurt svona dónalega. Hann hafði eyðilagt hátíðarstemning- una fyrir brúðkaupið. Þó varð þetta falleg hjóna- vígsla, en hún fór fram í ann- arri kirkju og án brúðarkrón- unnar. Og enn gengur Maj ekki með barni. |7ftir þennan atburð hafa við- horf manna í sókninni til prestsins breytzt. Fólki finnst það óviðurkvæmilegt að prest- urinn sé að yfirheyra unga fólk ið um einkalíf þeirra. Flestir sem gifta sig í Nár-sókn hafa, eins og víðast tíðkast f Svíþjóð, haft kynferðislegt samband fyr ir hjónabandið og fólki finnst það óskiljanlegt að það sé stimplað syndarar fyrir það. Því finnst'að hann séra Johansson eigi ekki að setjast í dómara- sæti, eins og hann væri sjálfur Guð. Nú kom að því, að önnur ung stúlka i sókninni, Gertie Nils- son og fiskimaðurinn Lars Erik Karlsson ætluðu að ganga í hjónaband. Þau höfðu búið lengi saman og áttu nú von á barni. Fóru þau til prestsins, sem hafði áður verið í sókn- inni, en Gertie þorði ekki' að hringja til séra Johanssonar eftir það sem hún hafði heyrt um hann, En þá gerði móðir hennar það. — Dóttir mín ætlar að fara að gifta sig, sagði hún við prest inn, ætli hún geti fengið brúð- arkrónuna lánaða? — Já, sagði presturinn. En hvernig er það, ætli hún sé barnshafandi? 14/Tóðir Gertie hugsaði sig um, átti hún að segja ósatt? Þá myndi hún fá krónuna. En svo sagði hún: — Já, víst gengur hún með barni. En er það nokkuð óeðli-, legt? — Já, þá hefur hún farið öfugt að. — En kvenfélagið gaf kirkj- unni krónuna til þess að brúðir sóknarinnar fengju að bera hana. — Eftir því sem ég hef lært, fær dóttir yðar ekki að bera krónuna. — Én séra Jakobsson, sem var hér prestur á undan yður, lánaði krónuna án þess að hafa yfirheyrslur. — Já, en nú er það ég, sem ræð krónunni. Og ég er hérna til að segja ykkur hvað er rétt. Þá gafst móðir Gertie upp. Þetta brúðkaup fór fram eins og ekkert hefði í skorizt og enginn skuggi féll á hátlð- ina, því að þau höfðu fyrir- fram búizt við að svar prests- ins yrði neikvætt. Þau fóru I gullsmíðaverzlun og fengu lán- Frh. á bls. 13. Þegar Niis Evert og Inga Larsson komu til prestsins yfirheyrði hann þau í 2 klst. um kynferðislíf þeirra. Hér skoða þau brúðarkrónuna. Presturinn neitaði að gefa þau saman. TAKMÖRKIN Ungi presturinn sr. Iíarl Erik Johansson, sem neitaði að vígja og neitaði að lána brúðarkrónuna. Gertie Karlsson þorði ekki að hringja í prestinn til að fá brúðar- krónuna lánaða. Móðir hennar hringdi og fékk neitun. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.