Vísir - 16.03.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 16.03.1963, Blaðsíða 5
V í SIR . Laugardagur 16. marz 1963. . 5 AlþÉngi —■ Framhald af bls. 7. nema fyrir tiltölulega iítinn hóp fólks. (Ráðherra leiðrétti Hannibal einnig í þessu efni, kvað um mis skilning vera að ræða I máli hans. Megintilgangur frumvarps ins, væri ekki sá, að hið aldr- aða fólk sjálft réðist í íbúða- kaup, heldur að auðvelda sveita- félögunum að byggja íbúðir fyr- ir aldrað fólk, sem það svo aft- ur gæti leigt .fyrir lítið gjald). JTftir að Hannibal hafði reynt að gera lítíð úr frumvarp- inu, með rökum og fullyrðing- um, sem að öllu leyti byggðust á misskilningi, venti hann sínu kvæði í kross, og kvaðst per- sónulega vera á móti vistheim- ilum fyrir aldrað fólk, þau eru ekki æskilegasta úrþótin sagði hann. Með öðrum orðum, fyrst á móti frumvarpi, sem auðveldar öldruðu fólki að búa I einka- íbúðum á lágri leigu og síðan á móti vistheimilum og elliheimil- um. Óhætt er að segja, að slíkur máiflutningur komi úr hörðustU átt, ekki sízt þegar forseti Al- þýðusambandsins er annars veg- ar. Pétqr Sigurðsson tók til máls f þessum umræðum og er þess getið sérstaklega annars staðar f blaðinu. Frumvarpinu um afnám prests kosninga var á dagskrá í neðri deild í gær. Þórarinn Þórarins- son fór nokkrum orðum um þetta frumvarp fyrr f vikunni íog gagnrýndi það nokkuð. í til- efni þess, kvaddi Bjarni Bene- diktsson kirkjumálaráðherra sér hljóðs í gær, og ræddi tiidrög þess_ að frumvarp þetta væri fram komið: Ráðherrann kvað það vera að tillögu kirkjuþings, það væri af hæversku við þjóð- kirkjuna að hugmyndir hennar fengju meðferð á Alþingi. Hins vegar, sagði ráðherrann, er það alls ekki ætlunin að frumvarpið verði afgreitt á þessu þingi, og er biskup sjálfur ásáttur um það. Það þótti aðeins rétt að taka málið fyrir, til þess að hægt væri að rannsaka það af meiri alvöru í framtíðinni, og þing- menn létu álit sitt í ljós. Eftir er að sjá hvaða tiilögur verði gerðar um tilhögun sóknar- nefnda og hvernig þær verði skipaðar, og þó ekki væri nema af þeirri ástæðu einni, er ekki ráðgert að frumvarp þetta um afnám prestskosninga fái end- anlega afgreiðslu. Fákur Framhald af bls. 16. ingur. Sigvaldi hefur teiknað öll hús Fáks. í fáum orðum má lýsa hinu nýja húsi á þessa leið: Steyptur grunnur er undir öliu húsinu, útveggir úr timbri, en burðarveggur í miðju húsi endilöngu er hlaðinn úr steini. Tvöfalt gler er í gluggum. Þak hússins er klætt Icopalpapþa. Á gólfinu í íbúð og skála er beyki parkett, en steinmosaik í and- dyri og snvrtiherbergjum. — ■ Klæðning á veggjum er úr reyktri furu, en hurðir spón- Iagðar með grenispæni. Húsið er hitað með rafmagnshitun, sem lögð er í loftin. Þeir sem unnu aðallega við bygginguna voru: Sigurður Þor geirsson yfirsmiður, múrara- meistari Ólafur H. Pálsson, Magnús Gíslason múrarameist- ari hlóð kamínuna og burðar- vegg, raflögn teiknaði Sigurður Halldórsson, raflagnir lagði Raf geislahitun h.f., en Gísli Hall-1 dórsson sá um pípulagningar.' Krossgátuverðlaun m fe H s \f r ns ■ gg| H m: 0 Þ 1 u- ÚtSi fí K L ú s tT K M il m w '0 N F fi n « Sh * $ b r 1 V «| 2> m fí ¥ fí « i n n u. |§ fí Ni s / V m 1 F f Sp íjitf n fí m P T ■m a 5 t 0 Mikf $i ífS »*r F 2> $ fí &■> 5 K n r 6 % / . / T i N N tú 5 f K S- U '8 R ff $> > N N fí N N fí Hi iipp Wk Í'-dtér 40§ * 8 í 2> * fí N N G fí n P 0 § R f U K t S fí G fí Tf Ð fí 'M 5 7 ft r / V t ö r fí K é*jf b Itln w 80 m N mN\Ý 3 ý L / f s i N sö Cr n u m N sm '8 % ii nd~ «'U< N ? / N G U n- / N N ÉT Aft r / N STtm n * TÞ úu ý\*i t fí fí M Mrj f * l «i w. K T M / k V i ’V-J 0 * íílÍ H 0 5 1 - K E y / U N H i é m & fí N r p i ssí f W y L I2£á <*< ¥ fí u i> fí zVö c A'i fí Ð / ii* ' fí r f n fpji fí U i m n U\ & > L / r N .Í....... n 2 ’A ■ fí mif Hér birtast Iausnir á krossgátunum sem birtust í blaðinu 23. febrúar og 2. marz. Dregið hefur verið úr aðsendum ráðningum og fá 500 króna verðlaun Guðbjörg Jónsdóttir Miðtúni 82 fyrir kross- gátuna 23. febr. og Sigurlina Símonardóttir fyrir þá sem birtist 2. marz. Þar að auki hafa margir velunn arar félagsins lagt hönd á plóg- inn. Húsgögn eru frá Völundi og Húsgagnaverzlun Austurbæj ar. Félagið hefur undanfarið rek- ið reiðskóla undir stjórn Rose- marie Þorleifsdóttur. Er hann einkum ætlaður börnum 7—12 ára gömlum. Hefur aðsókn ver- ið meiri en hægt er að anna. Kennt er fimm daga vikunnar, tuttugu börnum á dag. í undirbúningi, er gerð nýs skeiðvallar, hringbrautar, 800 metra Iangrar. Þá er ætlunin að byggja fleiri hesthús, enda þörfin mikil, þar sem hestum félagsmanna fjölgar árlega um 50, og nú er félagið að flytja hesthús sín frá Langalandi, en þar hafa verið geymdir um 100 hestar. Auk þess eiga einstakir hestamenn hesta í húsum hér og þar. Félagið hefur Geldinga- nes á leigu til beitar fyrir hesta félagsmanna. Félagsmenn 1 Fáki eru alls um 450. Stjóm félagsins skipa: Þorlákur Ottesen formaður, Har aldur Sveinsson varaform., Jón Björnsson gjaldkeri, Einar Sæ- mundssen ritari, Ingólfur Guð- mundsson meðstjórnandi, en varastjórn skipa Björn Halldórs son og Bergur Magnússon. DAS — Framhald at hls. 1 upphaflegu söfnun sjómanna til heimilisins og það mikla og ó- eigingjarna starf, sem þar hefði verið unnið. Ávöxtur þess erf- iðis sæist nú í hinum myndar- legu byggingum í Laugarásnum, sem nú væru metnar á um 35 millj. króna. Ræðumaður notaði tækifærið til að leiðrétta þann misskiln- ing, sem komið hefur fram ný- lega, að vistgjald væri hærra á Hrafnistu en t. d. á elliheimilinu Grund. Gjaldið á Hrafnistu væri þvert á móti mun lægra, auk þess sem ’vinna vistmanna gæfi af sér um 500.000 krónur ár- lega. Þá vék hann að happdrættinu, kvað tekjur af því hafa numið um og yfir 5 milljónum síðustu árin, og lagði Pétur áherzlu á, að sem minnst mætti missa af þessum tekjum, ef unnt á að vera að ljúka áætluðum fram- kvæmdum. BðfreiðslmRp — Framhald af bls. 16. ferð. Það fyrra var fyrir rúmri ‘ viku, en þá gerði lögreglan eink um herferð gegn bílum, sem voru á hinum margumtalaða „rúnti“ hér í borg. Sú herferð bar þann árangur, að lögreglan sá ástæðu tií að taka nærri 30 bíla úr umferð, auk þess sem. hún gaf fjölmörgum bif- reiðaeigendum aðvörun um að bæta aðbúnað farartækja sinna. Verða þau seinna einnig tekin úr umferð ef ekki verður farið eftir fyrirmælum lögreglunnar. Seinna var svo önnur kvöld- og næturherferð gerð og í henni náðust 14 bílar, sem Iögreglan tók umsvifalaust í vörzlu sína. og auk þess aðrir 14, sem skrá- setningarmerkin voru tekin af. Allt þetta starf lögreglunnar er framkvæmt í góðu samstarfi við Bifreiðaeftirliti ríkisins, þannig að lögreglan flytur alla grunsamlega bíla í bækistöð bif- reiðaeftirlitsins, en þar eru starfsmenn fyrirtækisins fyrir til að skoða bilana, þau kvöld og bær nætur, sem sérstaklega eru ætlaðar eru til skoðanagerðar. Lögreglan f Reykiavík telur samkvæmt upplýsingum frá borgardómara að bifreiðakaupa- mál unglinga séu í röð erfiðari og flóknari viðfangsefna, sem þangað berast. Það er 1 fyrsta lagi vegna þess að kaupendur eru býsna oft unglingar undir Iögaldri, sem að vísu skfrskota til ábyrgðar foreldra þegar kaup eru gerð, en foreldrarnir fylgj- ast engan veginn með þessum kaupum eins og efni standa til. Seljendur bílanna telja sig selja þá í því ástandi, sem þeir eru í, en kaupendur telja sig oft og einatt finna leynda galla á þeim og vilja á þeim forsendum rifta kaupsamningum. Út af þessu spretta eðlilega deilur, sem oft og einatt er erfitt að finna botn í Að því er lögreglan hefur tjáð Vísi hafa margir bilakaupenda engan veginn efni á þessari fjár- festingu, en kaupa samt sem áður 1 trausti þess að úr fjár- hagnum rætist fyrr eða síðar. Þetta skapar ákveðna erfiðleika, sem oft reynist erfitt að glíma við. í öðru lagi gat lögreglan þess, að það væri tízkufyrirbæri hjá unglingum um þessar mund ir að kaupa stórar bifreiðar þótt gamlar væru og úreltar og dýr- ar í rekstri á allan hátt. Áður fyrr gerðu ungir menn og félitlir sér það að reglu að kaupa litla bíla og sparneytna, en nú virð- ist þeirri reglu brugðið. Af þessu leiðir það, að kaupverðið er ekki í öllum tilfellum stærsta vanda- málið, heldur viðhalds- og benz- ínkostnaðurinn. Auk þess sem að framan grein ir um sérstakar herferðir götu- lögreglunnar gegn vanbúnum bifreiðum í umferð hefur um- ferðardeild lögreglunnar, sem staðsett er á Snorrabraut, sér- stakt eftirlit með útbúnaði bif- reiða og hefur þráfaldlega tekið fleiri eða færri bifreiðar úr um- ferð, auk þess sem að framan iðioci ait, iBnoaErteiiol. Trén — Framhald af bls. 1. að bera á sinubruna. Það er jafnvel svo, að fólk kemur hing- að til þess að skoða gróður- inn, segir Steingrímur. Yfirleitt er marz langerfiðasti mánuður- inn. Stundum í fyrra kom það fyrir nótt eftir nótt, að frostið var yfir 20 gráður. En í vetur fór það sjaldan yfir 12. Hvernig fer nú 1 páskahret- inu? Tja, ef það verður páskahret, þá er ekki hægt að gera neitt fyrir trén. Og þá er hætta á að illa fari. En við verðum bara að vona það bezta, segir Hafliði að lokum. Hrútafjorðará í fregn blaðsins fyrir nokkrum dögum um leigu Hrútafjarðarár í sumar var þess getið, að það hafi verið veiðifélagið Strengur, sem ána leigði. Það skal tekið fram, að það er ekki veiðifélagið í heild, sem að Ieigunni stendur, heldur einung- is nokkrir félagsmenn, Sveinn Kjarval arkitekt og fleiri. Magnús Jóhannsson kaupmaður er ekki í þeirra hópi. Niðursuða — Framh at 1 síðu — Hvert verður framleiðslan seld? — Að langmestu leyti til Bandaríkjanna, en þar er nú helzti markaður Bjellands fyrir kiþper- síld, og þar hefur hann mjög um- fangsmikið sölukerfi. — Verður eingöngu framleitt úr nýrri stld? — Nei, bæði nýrri og frystri síld. P' I. afur sagt að frysta síldin sé ekkert lakari til fram- leiðslunnar. — Veitir Bjelland tæknilega að stoð í sambandi við framleiðsl- una? — Já, hann mun gera það. — Hvað mynduð þér vilja segja um þetta að lokum? — Það er mjög þýðingarmikið fyrir okkur að þessi tilraun tak- ist. Það er öllum Ijóst, a við get- um framleitt þessa vöru engu síð- ur en aðrir, en okkur hefur vant- að markaðsaðstöðu. Það er ekki ! hægt að komast inn á markaðinn ) á stuttum tfma. Það tekur langan | tíma og kostar mikið fé. Norð- mennirnir hafa hins vegar mark- aðina en vantar sfldina, það verð- . ur því varla ánnað sagt en þarna sé að hefjast mjög hagkvæm sam- ■ vinna fyrir alla aðila. Húsnæði Vantar húsnæði nú þegar eða með haustinu. VEIZLUSTÖÐIN, Þverholti 4. Sírpi 10391.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.