Vísir - 16.03.1963, Side 6

Vísir - 16.03.1963, Side 6
6 . VIS IR . Laugardagur 16. marz 1963. ► 72 stunda leit að gúmmíbáti Bankaþjónusta Framhald af bls. 16. Útibúið að Gimli i Grindavík verð ur opið tvisvar í viku, á mánudög um og fimmtudögum kl. 2—4. Forstöðumaður þessara stofnana verður Ari Jónsson og gjaldkeri Jens Sörensen, en þeir hafa báðir starfað sem fulltrúar við aðalbank ann í Reykjavík. Afgreiðslur Landsþankans í Keflav. og Grindav. annast ýmiss- konar bankaviðskipti. Útibúið í Grindavík mun taka við fé til á- vöxtunar í sparisjóðsbækur og í ávísanareikninga. Báðar afgreiðsl- urnar munu taka við innborgun- um og innleysa tékka og hlaupa reikninga í aðalbankanum og úti búum hans. Afurðalán verða af- greidd og innheimtustarf fyrir aðal bankann unnið og þá annast af- greiðslurnar kaup og sölu erlends gjaldeyris og önnur erl. viðskipti. Viðskipti Suðurnesjamanna og þá sérstaklega útgerðarmanna hafa í mörg ár verið mjög mikil. Nú sem stendur eru um 60 vélbátar á Suðurnesjum yfir 20 tonn að stærð f viðskiptum við Landsbank ann og um 30 stórar og smáar fiskvinnslustöðvar. /Eskulýðsvika í Laugarneskirkju Vikuna 17.— 24. marz efna K.F.U.M. og K.F.U.K. til æskulýðs- viku í Laugarneskirkju. Slíkar æs- kulýðsvikur hafa verið haldnar þar árlega um nokkurt skeið og hafa notið mikilla vinsælda. Þá eru Laugarneskirkja. haldnar samkomur í kirkjunni á hverju kvöldi kl. 8.30. Á fyrstu samkomunni talar séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, ásamt fleirum. Á hverju kvöldi verður mikill almennur söngur og enn- fremur kórsöngur eða einsöngur. Æskulýðsvikunni lýkur svo sunnudaginn 24. þ.m. Kl. 2 verður guðsþjónusta með altarisgöngu og prédikar sóknarpresturinn. Um kvöldið verður lokasamkoma æsku- lýðsvikunnar og talar þá Sigur- björn Einarsson, biskup, ásamt fleirum. Stjórnandi vikunnar verður Ást- ráður Sigursteindórsson, skóla- stjóri. Margir, sem sótt hafa æskulýðs- vikurnar í Laugameskirkju undan- farin ár minnast þaðan indæila stunda. Er ekki að efa, að margir munu leggja leið sína þangað næstu viku. Ungt fólk er sérstak- lega velkomið, og ættu aðstand- endur unglinga að hvetja þá sér- staklega til að sækja samkomur- nar. Það er reynsla margra, að betra veganesti getur enginn fengið út í lífið en þann boðskap fagnað- arerindisins, sem þar verður fluttur Námskeið fyrir leik- stjóra Norræna leikhúsráðið gengst fyr ir námskeiði fyrir leikstjóra í vor. Námskeiðið verður haldið í V.asa í Finnlandi dagana 16.— 29. júní n.k. Stjórnandi námskeiðsins verð ur danski leikstjórinn Sam Besek ow. Meðal annarra kennara verð- ur hinn þekkti leikstjóri Michel St. Denis. Þátttakendur séu ekki eldri en 40 ára. Námskeiðið er ókeypis en þátttakendur verða sjálfir að greiða uppihald, sem á- ætlað er sænskar kr. 350.00, og fargjald, sem mun vera um 12 þús. ísl. kr. með flugvél fram og til baka. Tveir þátttakendur geta komizt frá íslandi. Umsóknir sendist fyrir 1. apríl n.k. til formanns íslandsdeildar Norræna leikhúsráðsins, Guðlaugs Rósinkranz, Þjóðleikhússtjóra. Dimmuborgir. — Myndin er af Sigríði Hagalín og Stefáni Thors úr einu atriði leiksins Dimmuborgir, sem sýndur er i Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Þetta er fyrsta leikrit Sigurðar Róbertssonar, sem sett hefur verið á svið, en áður hafa komið út eftir hann tvö leikrlt. Næsta sýning verður annað kvöld (sunnudag). Leikurinn hefur nú verið sýnd- ur 7 sinnum. Byrjað að veiða rauðmaga Rauðmaginn er nú að koma í verzlanir. Fyrsti rauðmaginn kom frá Húsvikingum, en þeir eru oft á undan Reykvfkingum að ná sér í rauðmaga. Húsvik- ingar hafa samt fengið litla veiði að undanförnu, en hún virðist vera að glæðast. Tveir bændur á Álftanesi hafa verið með net í sjó í nokkr ar vikur, en aflinn hefur verið mjög lítill þangað tii í siðustu viku. Það er heldur ekki venja að rauðmaginn veiðist fyrr en seinnihluta marz eða f byrjun apríl, a.m.k. ekki svo að nokkru nemi. í morgxm virtist ekkert vera um rauðmaga í búðum. Húsvíkingar sendu hingað um 700 rauðmaga til Fiskmið- stöðvarinnar, snemma í þessari viku og tveir bændur á Álfta- nesi sendu þangað um 70 rauð maga. Söluverðið á rauðmagan um hefur verið 12 krónur fyrir kílóið. Þó mun vera heimilt að selja rauðmagann dýrari, en það hefur ekki verið gert. Fisk búðirnar koma sér saman um verðið á rauðmaganum. Frá hinu nýja útibúi Landsbankans f Grindavik. Við borðið sitja Jens Sörensen gjaldkeri og Ari jóns- son forstöðumaður. Skip og leitarflugvél- ar leituðu nú um miðja vikuna í 72 tíma á Norð- ursjó að áhöfninni af danska fiskibátnum Dagmar Larsen, sem fórst á þriðjudag. Leit- inni lauk með því að sjó mennimir fundust á reki í gúmmíbjörgunarbát um 60 km. frá slysstaðn um. Leitin af sjómönnunum vakti geysilega athygli í Danmörku og var sem þungu fargi væri létt af mönnum þegar danska útvarpið stöðvaði allt í einu venjulega útsendingu og til- kynnti að gúmmibáturinn hefði fundizt og þegar tilkynnt var skömmu síðar að áhöfninni þrem mönnum hefði verið bjarg að. Mest var gleðin á heimilum vandamanna sjómannanna, þeg ar fólkið heyrði allt £ einu til- kynninguna um að gúmmíbátur inn hefði fundizt, fólkið hafði lifað angistarstundir í þrjá sól- arhringa og flestir höfðu gefið upp von um að mennirnir fynd ust. Mál þetta hefur enn einu sinni vakið mikla athygli 1 Dan mörku á notagildi gúmmíbát- anna, en um ieið hefur verið bent á það að nauðsynlegt sé að koma litlum neyðar- senditækjum fyrir í þeim. Hefði slíkt senditæki verið I gúmmf- "bátnum af Dagmar Larsen hefði ekki þurft að leita í 72 klst. heldur hefði báturinn fund izt þegar í stað. i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.