Vísir


Vísir - 16.03.1963, Qupperneq 10

Vísir - 16.03.1963, Qupperneq 10
w VÍSIR . Laugardagur 16. marz 1963. minningu frú Krist- Leikdómar - ínar Stefánsdóttur Fædd: 6. apríl 1889 Dáin: 5. marz 1963 í dag kveðjum við hana frá Stóra-Núpi í Eystrihrepp, þangað sem flestir þeirra fara, sem þá sveit byggja og ekki gera víð- reist um dagana. Þegar ég vil minnast fóstru minnar er ekki af að taka sýnileg- um afrekum á þjóðlífsvellinum, sér stakir atburðir séu í minnum hafðir frekar en gerist með fólki yfirleitt. Því fjær, að lýðhylli hafi hún notið, utan frændahrings, enda ekki gengið hjarta hennar nærri. Hvað má þá segja um slíka konu? Það, að hún var svo heil- steypt í sinni umhyggju um menn og málleysingja að oft þótti nóg um. Hún bjó yfir þeirri tvíræðu glettni, sem betra var að sjá en undir búa, og átti skap sem var ekki allra. Alla sína daga eftir æskuár var heimili hennar að Ásum með maka sínum. Þar kom ég fyrst sem barn, þá var hún ung kona og dvaldist ég þar öll sumur fram yfir tvítugs aldur. Mynd hennar geymist mér frá þessum tímum, þegar ég fór að fá skyn á útliti fólks, enda taka mæður trauðla á sig aðra mynd en þá, sem greypist í hug barns. Auðvitað var allri ást tekið sem sjálfsögðum hlut í þann tíð, — því eftirminnanlegt er aðeins ást- leysið — og þótti hennar eigin ; börnum oft nóg um. Þegar ég fór að komast til vits, sá ég það, sem mér var áður hulið; sjálfsfórn hennar á vinnupalli lífs- ins og grínhæfileikar hennar. Hún var sú ósérhlífnasta, fyrst upp alla morgna, síðust á kvöldin, undantekningarlaust, þá ég man og þótti þó aðeins, partur af góðu landslagi, að hún sæist fyrst og síð ast án frekari umþenkingar. Slíkri sóun krafta er sjaldnast gaumur gefinn fyrr en fólk er allt. Bæði er það, að rík gestrisni var þeim hjónum báðum í blóð borin og Ásar Iiggja um þjóðbraut þvera, því var það heimili nokkurs konar hótel öll sumur um minn aldur og er enn hjá afkomendum þeirra hjóna. Þangað flykktust frændur og vin ir — og þeirra vinir — og öllum Krlstín Stefánsdóttir. sinni, þótt ekki sé því mótmælt, að oft lífgar það upp á tilveruna. Mínar beztu stundir á fullorðins árum voru f bardússi eldhússins í Ásum meðan fóstra mín var og hét og náði að ræða ótruflað við þá, sem þóttust af heiminum. Varð ég þar áheryandi að mörgu ánægju legu samtalinu. Henni lá sérstaklega vel að ræða við fólk, hvernig sem það var, og var sjálf alltaf tilbúin í litbrigðum samræðunnar og vissi fár, hvor sér skemmti betur, og er skaði að henni skyldi ekki endast aldur til að þjóna þeirri gáfu betur þegar um hægðist á efri árum. Nú, þegar hún er öll og aðeins til í hugum okkar, minnir það okkur á að dauðinn er ávallt ná- lægur og á hans vit gengur hver einn, en ásýnd hans er mild þegar vitað er að maður getur ekki lifað Iengur. H. St. Framhald af bls. 9: Leikhúsið vantar fé, svo það má helzt ekki spilla fyrir aðsókn inni með slæmum ritdómi. Leik- endurnir og höfundurinn eru kannski vinir hans eða e. t. v. óvinir, — pólitiskir andstæðing- ar, nú eða þá samherjar, sem blaðið helzt ekki má setja ofan I við, eða á neinn hátt móðga, og þar fram eftir götunum. Leik- dómarnir bera þess oft glögg merki, að þeir sem skrifa, hafa oft í meira lagi bundnar hend- ur. Hvað mikið sjálfri listinni skín gott af þess konar ,,kritik“ er aftur á móti nokkurt vafa- mál. ÍWntun r prentsmiöja & gúmmistlmplagerö Einholti 2 - Simi 20960 tekið með þeirri vináttu, sem ekki spyr, hversu mikla aukavinnu þurfti á sig að leggja við að þjóna þeim her með veizlukosti utan heimilisfólks þá daga, sem skyldi hvíldardaginn heilagan, þamiig að jafnvel húsbændur viku úr rúmi fyrir þeim, sem geð höfðu að þiggja. Þegar unglingsárum sleppti sá ég fóstru mína frá þeim sjónar- hóli, sem sinn þátt átti í að lyfta henni frá dagsins önn, glögg- skyggni á það forvitnilega í fari náungans og léttvægi áýndar- mérinskunnar. Eftir að þetta varð mér ljóst, fór ég stundum austur með vini mínum til að sýna þeim þá konu, sem ég hafði sagt þeim sögurnar af og þeir trauðla’ trúðu, og þeirri viðkynningu hafa þeir ekki gleymt. Öllum var þar tekið opnum örm- um því þetta voru mínir vinir og hún gat sag.t þeim nákvæmar en þeir sjálfir hverjir þeir væru að Iangfeðgatali, ef þeirra ættir voru á annað borð umtalsverðar. Launhæðnin hefir löngum verið Hreppamönnum eiginleg, og eru þar margir mannþekkjarar í góðu lagi og láta mannlega bresti ekki fram hjá sér fara, og hefur það verið lagt þeim til lofs og lasts eftir efnum og ástæðum hverju Frímerkjaþáttur Að þessu sinni birtir frí- merkjaþátturinn niyndir af nokkrum frímerkjum frá smá- ríkinu San Marino, sem komu út snemma á þessu ári. Þetta eru myndir af seglskip- um frá fyrri öldum.'.Frtoierkja- serían er mjög faUeg iOg, á þeim myndum, sem hér birtast, sjást fyrst fornegypzkt skip, þá holl- enskt skip, rómversk galeiða, víkingaskip, Santa Maria sem Kolumbus sigldi á til Ameríku, hafskip eins og þau tíokuðust á nýlendutímunum og galeiða frá 16. öld. Nokkur fleiri merki eru í seríunni, sem sýnir þró- un hinna stóru seglskipa frá fyrstu tíð. Frímerki frá smárikinu San Marino eru mjög vinsæl. Að vísu vita allir, að minnstur hluti frí- merkjaútgáfu þessa smárikis á Ítalíuskaga eru notuð til póst- sendinga, þvi að segja má að San Marino 'ifi á þvf að selja frímerkjasöfnurum frímerki. — kið illa upp og frímerkjasafnarar forðast slíkar gróðabrallsaðgerðir. Þó gegnir -okkru öðru máli með hin þrjú evrópsku smáríki, San Marino, Monaco og Liecht- enstein, sérstaklega þau tvö fyrri, að þau hafa orðið mjög vinsæi og er athyglisvert að þessum vinsældum hafa þau náð meðal frímerkjasafnara fyrst og fremst fyrir það að frímerkin eru svo falleg og skemmtilega valin. Á síð- ustu árum hefur t. d. komið hver frfmerkjaserían annarri fallegri frá Monaco. Ein serían var með bílategundir, önnur með flugvélategundir og enn fremur seríur með ýmsum greinum íþrótta, olympíumerk- in, knattspyrnumerkin, veiði- merkin og svo dýramyndir svo sem hin afbragðs fallega fugla- sería 1960. Fyrir það hve San Marino- merkin eru falleg, er eins og frímerkjasafnararnir fyrirgefi San Marino brot sem ekki yrðu liðin þar sem kastað er höndum til verksins. Enn ber þess að geta að frumverð merkjanna er ekki hátt. En sá galli er á skipamerkj- unum nú eins og sumum öðr- um útgáfum San Marino, pð upplagið er varla nóg miðað við eftirspurnina. Nú þegar er svo komið að serfan fæst ekki f heild hjá póststjórn landsins. Er því fyrirsjáanlegt, að þau muni hækka verulega í verði Slíkt myndi fæla safnara frá, ef það væri ekki San Marino, sem allt er fyrirgefið. Shoor O' r t n tr i n. SAMEINAR MARGA KOSTi: FAGURT ÚTLIT, ORKU. TRAUSTLEIKA RÓMAÐA AKSTURSHÆFNI OG LÁGT V E R Ð | TÉHHNESHA BIFREIÐAUMBOÚIf) VONAMTIMTI 12. SÍMI J7SÍI ■ Jt Frank Sinatra. Frank Sinatra er önnum kai inn maður og getur alls ekki verið án einkaritara síns, sem er mjög duglegur — en því verður ekki neitað að hann gerir mikið til að halda henni (einkaritaranum) hjá sér. Á þremur sfðustu afmælis- dögum hennar hefur hann gef ið henni bíl á 4000 dollara, pels á 5000 dollara og gim- steinaarmband á 6000 dollara. Það er því ekki að undra að Hollywoodbúar skuli kalia hana „gullslegna einkaritar- ann“ og segi jafnvel: — Ef Frankie-boy heldur þessu áfram, verður þess ekki Iangt að bíða að hann gefi henni flugvél. * Enn eru það fréttir af Liz Taylor. Líz Taylor krefst þess, að | sérhvert smáatriði sé tilbúið, áður en hún gengur fram fyrir ' $ kvikmyndavélina, með svip og | fas drottningar. Eitt sinn var allt tilbúið, eftir margra klukkustunda undirbúning, og Liz gekk fram ! og hrópaði upp yfir sig: — Hvar er Teresa? Þetta orsakaði almcnna ring i ! ulreið. Allir — nema kvik- myndatökustjórinn — urðu að > fara að leita að Teresu — og eftir heila kvalafulla klulcku- stund fannst Teresa Ioksins. Teresa? — Litill Yorkshire- rottuhundur, sem Liz krefst, að sé nálægur meðan kvik- myndir hennar eru teknar. Án hans — segir hún — verða hin ótrúlegustu mistök. Það er því ekkert undarlegt, að Liz Taylor-myndirnar skuli vera dýrar. * Hér eftir skal enginn segja að kanzlari Vestur-Þýzkalands hafi ekki peru í kollinum. ítalskt fyrirtæki hefur nefni lega hafið framleiðslu á „Aden ; auer-styttum“ og innan í þeim eru Ijósaperur. Það verður víst ekki dýrt að fá hinn gamla kanzlara til að Iýsa upp heim- ilin — stytturnar kosta aðeins ! um 100 krónur. í Englandi, landi hinna - ströngu reglna, var maður nokkur til yfirheyrslu. Þjóðerni? tautaði embætt ismaðurinn. — Þér eruð : franskur, ekki satt? — Nei, svo sannarlega er ég J|| cnskur, bæði faðir minn og : móðir voru ensk. — Já, en þér eruð þó fædd- ur f Frakklandi? — Já, að vísu, en þótt tík eignist hvolpa sína í hesthúsi, verða þeir ekki hestar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.