Vísir - 16.03.1963, Síða 13
V í SIR . Laugardagur 16. marz 1963.
13
TAKMÖRKIN -
Frh. at bls 4.
aðcf brúðarkrónu. Stðan gaf
gamli sóknarpresturinn þau
saman.
í”1 ustaf Larsson heitir kirkju-
vörðurinn í Nar. Hann und
irbjó stóra brúðkaupsveizlu.
Sonur hans, Nils Evert, ætlaði
að ganga að eiga unnustu sína,
Ingu. Allt var undirbúið og
unga parið fór til prestsins til
að biðja hann um að fram-
kvæma hjónavígsluna.
Þar urðu þau fyrir miklu á-
falli og sluppu ekki burt frá
prestinum fyrr en eftir margra
klukkustunda yfirheyrslur. Loks
lýsti presturinn því yfir, að
hann neitaði að gefa þau sam-
an.
Ástæðan fyrir þessu var sú,
að Inga hafði eignazt barn, er
hún var kornung stúlka. Hún
hafði sjálf alið barnið upp og
annazt það vel. Nú hafði hún
loksins fundið mann, sem hún
vildi giftast. Presturinn hóf
yfirheyrsluna svona:
— Hvernig ætluðuð þér að
vera búin við hjónavígsluna?
— I venjulegum brúðarkjól.
Þá tók presturinn af skarið:
— Það getur kirkjan ekki
leyft nema þér hafið fengið
fyrirgefningu syndanna.
Presturinn lagði til sameig-
inlegan bænalestur með honum
á prestssetrinu.
Svo hélt hann áfram:
—4 Síðan spyr ég allar sem
koma til mín, hvort þær séu
ófrískar. Ég vona að það sé
ekki tilfellið núna.
þá þótti hinum væntanlega
brúðguma nóg komið og
hann sagði:
— Eru það takmörkin milli
dyggðugs og syndugs manns?
— Já, það er rétt.
— Er það þá meiri synd að
stúlka hefur orðið barríshaf-
andi, heldur en ef hún hefur
átt samræði við mann en ekki
orðið barnshafandi?
— Samræði er ekki leyfilegt
fyrir hjónavígslu. Fyrst hjóna-
vígsla, síðan samlíf.
— En þá getur næstum eng-
in borið brúðarkrónuna.
Við þetta reiddist presturinn.
— Ég kom hingað til að
kenna yður, hvað væri rétt.
Og við Ingu sagði hann:
— Slík kona sem þér má ekki
einu sinni vera brúðarmeyja.
— Það hef ég samt verið
tvisvar og ég get ekki fundið
að ég séNsyndug fyrir það sem
ég hef gert.
Þannig var dagurinn eyðilagð
ur fyrir Nils Evert og Ingu.
Kirkjuvörðurinn, faðir Nils
Everts, varð ákaflega reiður og
sama mátti segja um alla sókn-
ina. Þau Nils og Inga urðu nú
að fara til gamla sóknarprests-
ins, sem var fluttur í næstu
sókn, en það var neyðarlegt að
þurfa að aka nærri 100 kíló-
metra -til að láta gifta sig. Þau
munu áldrei gleyma þessum
leiðinlega degi.
TVu var allt í háalofti út af
11 þessu og blöðin á Gotlandi
fóru að skrifa um málið. Harð-
ar deilur hafa komið upp milli
manna hákirkjunnar og almenn
ings.
Þegar fréttamenn heimsóttu
prestinn og báðu hann um að
skýra frá sjónarmiðum sínum,
vildi hann helzt ekkert tala við
þá. Meðal þess sem hann sagði,
þar sem hann stóð í dyragætt-
inni, var:
— Ég get vaknað upp um
miðja nótt og farið að hlæja
að lygum og rógi fólksins. Ég
er ekki hræddur við að mér
verði vikið úr embætti. Það
yrði þá af öðrum sökum. Svo
bætti hann við: — Fólk ætti
fremur að Iesa biblíuna en blöð-
in. •
Nú fer unga fólkið I Nár ekki
Iengur til sóknarprestsins til að
biðja hann um að gifta sig sam-
an. Nú er það ekki aðeins brúð-
arkrónan sem stendur ónotuð,
heldur líka kirkjan.
Kvenfélagið ætlaði að hafa
kirkjusamkomu, en hætti við
það. Það var svo mikill hiti í
umræðunum, þegar undirbúa
átti samkomuna. — Presturinn
framkvæmir lögregluyfirheyrslu
yfir unga fólkinu, sögðu kon-
urnar. Það versta er, að við
skyldum nokkurn tíma gefa
kirkjunni brúðarkrónuna.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
IVíálflutningsskrifstofa
Óðinsgötu 4. Simi 11043.
Kúluhúnar og skápahöldur í fjölbreyttu
úrvali nýkomið.
b
V99»ngavörur h.f.
Laugaveg' 178 . Sími 35697.
Xpelair
Viftan hreinsar loftið
á vinnustað,
! jjtiern- i?.í\
1 eldhúsum
og skrifstofum
Snorrabraut 44 . Sími 16242.
\ , í
Vörður — Hvöt — Heimdallur — Óðin
••
'Jmju
SPILAKVOLD
Siálfstæðisfélaganna í Keykjavík verður þriðjudaginn 19. marz kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
D A G S K R Á :
1. Spiluð félagsvist.
2. Ávarp: Sveinn Guðmundsson t ' iL
31 Spilaverðlaun afhent.
4. Dregið í happdrætti.
5. íslenzk kvikmynd.
Sætamiðar afhentir í skrifstofu Sjálfstæðisflokk^ms í Sjálfstæðishúsinu mánudag kl. 5-6.
Húsið opnað kl. 20 og lokað kl. 20.30.
SKEMMTINEFNDIN.
. <
AWW.mvw.VAW.V.'.V.V.V.VAV.mWVAVMVÍVAWAWLV.'W.WWAVWW.mWVA'WA^W