Vísir - 22.03.1963, Side 5
VÍSIR . Föstudagur 22 maiz '1963.
Skipstjórinn á Macbeth spyrst fyrir um O. Fiagherty
Brefinn — ------------------
Framhald at bls. 1.
til lögreglunnar og taldi að maður
þessi myndi hafa komið í gær inn
í verzlun þar sem hún vinnur og
boðið páskaegg til sölu. Hinsvegar
telur skipstjórinn á togaranum að
þetta geti ekki hafa verið sinn
togarasjómaður, heldur skipverji
af öðrum togara, sem líka var
staddur I Reykjavíkurhöfn.
Sézt hafði til O. Flagherty niður
við höfn, og þá mjög drukkinn.
Var þýzkur togari þá að láta úr
höfn og þótti hugsanlegt að hann
myndi hafa farið þangað um borð
og síðan út með togaranum. Átti
að hafa samband við þýzka tog-
arann fyrir hádegið í dag og ganga
úr skugga um hvort maðurinn væri
þar, en ef svo væri ekki þá að gera
ráðstafanir til að láta slæða eða
kafa. Þegar Vísir hafði samband
við umboðsmann togarans, Geir
Zoega, rétt fyrir hádegið í morg-
un, sagðist hann hafa gert ráð-
stafanir til að fá froskmann til að
kafa eftir hádegið í dag. Aðstæður
VEéru að vísu slæmar vegna þess
hve sjórinn væri gruggugur og
dimmur eftir hvassviðrið.
Um togarann Machbeth er það
að segja, að hann bíður hér. eftir
þrem hásetum sem koma hingað
flugleiðis frá Englandi.
Berskálar —
Framhald af bls. 16.
flokksins, gerði grein fyrir þess-
um tillögum og áætlúnum á
borgarstjórnarfundinuni í gær.
Fulltrúar minnihlutans ,sem töl
uðu lýstu allir ánægju sinni með
þessa áætlun, töldu að hér væri
um stóran áfanga í byggingar-
málum höfuðborgarinnar • að
ræða.
f áætluninni er gert ráð fyrir
að aldrað fóik njóti , nokkurs
híuta þeirra íbúða, sem byggðar
verða eða keyptar, einkum á
neðstu hæðum hússins, sem
byggt verður við- Austurbrún.
Gísli Halldórsson sagði í ræðu
sinni, að herskálum hefði fækk-
að ört á undanförnum árum,
svo að nú væri b"'ð að rýma
80% allra ibúða i herskálum.
Hefði Re^ykjavíkurborg Iagt fram
mikið fjármagn til að aðstoða
fólk við að eignast eigin íbúðir,
enda hefði það verið stefna
borgarstjórnarinnar að sem flest
ir kæmu eigin þaki yfir höfuðið.
Þegar búið væri að byggja Álfta
mýrarhúsin myndi Reykjavíkur-
borg vera búin að veita um 125
milljónir króna á fáeinum und-
anfömum árum, til að uppræta
heilsuspillandi húsnæði. Alis
verður því borgarsjóður búinn
að veita 200 millj. króna til út-
rýmingar herskálum og heilsu-
spillandi húsnæði, þegar fram-
kvæmd umræddrar áætiunar er
lokið, eftir tvö ár.
Af hálfu minnihluta borgar-
stjórnar tóku til máls Guðmund-
ur Vigfússon, Einar Ágústsson,
Soffía Ingvarsdóttir og Alfreð
Gíslason. Lýstu^ þau ánægju
sinni yfir áætluninni, þar sem
nauðsynlegt hefði verið að út-
rýma heilsuspillandi húsnæði í
borginni.
Þá sagði borgarstjórinn, Geir
Hallgrímsson nokkur orð.
Hann vék að þeim ummæl-
um Guðmundar Vigfússonar, að
meirihluti borgarstjómar hefði
hingað til ekki viljað fallast á
að byggðar væru leiguíbúðir í
þvi skyni að útrýma með þeim
heilsuspillandi húsnæði, en nú
hefði meirihluti borgarstjómar
skipt um skoðun i þessu efni.
Borgarstjórinn kvað þetta vera
misskilning hjá Guðmundi.
Meirihluti borgarstjórnar hef-
ur aldrei sagt að hann væri and-
vígur byggingu leiguíbúða í
þessu skyni, sagði borgarstjór-
inn, en hann hefur verið ein-
róma fylgjandi þeirri stefnu, að
þetta vandamál yrði, að sem
allra mestu leyti, ieyst með því
að þeir, sem byggju í óviðun-
andi húsnæði fengju tækifæri
til að koma upp eigin húsnæði.
Árangurinn af þeirri stefnu er,
sagði borgarstjórinn, að 80%
! þeirra, sem búið hafa í herskál-
um, á undanförnum ámm, eða
siðan 1957, hafa nú flutzt í eig-
in húsnæði, og væru meðal
þeirra mjög margir, sem flutzt
hefðu f húsnæði, sem borgar-
stjórnin lét byggja og seidi sið-
an.
Loks sagði borgarstjórinn, að
það væri stefna Sjálfstæðis-
flokksins, nú sem fyrr, að sem
flestar fjölskyldur gætu átt sitt
eigið húsnæði, og að aðstoð hins
opinberra komi ekki til fyrr en
geta einstaklinganna þrýtur.
Brunar —
kom í ljós, að þarna vantar vatn
til slökkvistarfsins. Einn brunahani
er þarna skammt frá og voru slöng-
ur tengdar við hann, en vatnið er
lítið, þar sem það er tekið úr litlu
vatnsbóli þarna. Varð að gripa til
þess ráðs að flytja vatn í striga-
belgjum á staðinn frá Hafnarfirði.
Það er allalvarlegt mál hve erfitt
er að fá vatn til slökkvistarfa í
byggðinni kringum Silfurtún, því
að þar eru mörg timburhús. Enn
fremur myndi vera vöntun á vatni
ef eldur kæmi upp við Vífilsstaði.
í Silfurtúni er þó verið að vinna
að endurbótum og leggja allgott
vatnskerfi og brunahana um byggð
ina.
Það er af húsinu Brautarholti að
segja, að slökkviliðinu tókst loks
að slökkva eldinn, en þá var húsið
ónýtt, svo að ekki þarf að selja
það til niðurrifs.
Slysið —
Framhald af hls 1
hreppi, en hús þetta er við Hafn-
arfjarðarveginn milli Vífilsstaðaaf-
leggjarans og Álftanessafleggjar-
ans.
Það er að segja af eldinum í
bátnum, að hann var í vélarúmi
hans og tókst fljótlega að slökkva
hann.
Bruninn f húsinu var alvarlegri.
Að vísu var þetta gamalt forskallað
hús, sem Garðahreppur hafði ný-
lega keypt til niðurrifs og stóð
mannlaust. En hitt var alvarlegra,
að það er sannað að börn voru þar
á ferðinni með eldspýtur og höfðu
kveikt í húsinu. Er þetta í annað
skipti á einu ári, sem börn kveikja
í húsi í grennd við Silfurtún.
Hitt var líka alvarlegra, að það
Framhald af bls. 16.
Péturs Guðjohnsens í Hátúni 6.
Hann er fæddur 14. jan. 1958 og
er því nýlega orðinn 5 ára. ,1
Vísir átti í morgun stutt samtal
við frú Grétu, móður Viðars litla.
Hún sagði að Viðar litli hefði farið
í bíó síðdegis í gær ásamt eldri
bróður sínum, sem er 10 ára og
hafi þeir verið að koma þaðan þeg
ar slysið varð.
— Ég vissi ekkert um slysið,
sagði frú Gréta, fyrr en bróðir
hans kom heim og sagði mér frá
þvíf Mér brá ákaflega og hljóp
strax á slysstaðinn. Hann lá þar
þá ennþá, en svo fór ég með hon-
um í sjúkrabílnum upp í slysa-
varðstofuna.
— Ég hef verið miður mín síðan
bætti frú Gréta við, ég gat lítið
sofið í nótt og treysti mér ekki að
fara til vinnu í dag. Ég er sjokker
uð ennþá. En ég vona að það ræt-
ist vel úr þessu og að drengur-
inn minn sé ekki mikið slasaður.
Læknar segja að hann hafi fengið
þungt höfuðhögg, en telja þó að
hann sé ekki höfuðkúpubrotinn.
Ég hringdi upp í Landakotsspítala
í morgun og mér var sagt að Viðar
litli væri vakandi og liði sæmi-
lega.
Vísir spurði frú Grétu hvort hún
vildi segja nokkuð fleira í sam-
bandi við þetta slys. Hún kvaðst
vilja segja það eitt að göturnar
væru alltof hættulegar fyrir börn.
Þær væru ekki hinn rétti vettvang
ur fyrir þau, enda hafi það komið
berlega í ljós með þessu slysi í
gærkvöldi.
Burmeister —
Framh at bls. 1.
kom það glöggt fram, að aðalorsök
brunans var hið mikla olíumagn,
sem hafði runnið út í kvíifa. Hitt
er ekki fullkomlega ljóst, hvernig
eldur komst í olíuna.
Erlingur Jónsson stýrimaður á
Gullfossi skýrir frá þvi að þegar
uppvíst hafi orðið á sunnudaginn
að olía. hafi verið komin f kvina
hafi hann gefið áhöfninni fyrirmæli
um að vera ekki með eld og enn
fremur bannað að kasta nokkru út
fyrir borðstokkinn. Þá hafði hann
rætt um hættuna við fulltrúa skipa
smíðastöðvarinnar og höfðu þeir
heitið þvi að framkvæma nauðsyn-
legar öryggisráðstafanir. Þar að
auki hafði hann sett fastan bruna-
vörð meðal áhafnarinnar.
Það þykir einna líklegast, að eld-
urinn hafi kviknað í út frá koks-
ofnum, sem settir höfðu verið und-
ir skipið til að varna því að vatn
frysi i botntönkum, en ekki er það
þó öruggt þar sem því er haldið
fram að búið hafi verið að slökkva
á þeim. Enn fremur var því haldið
fram, að háseti á Gullfossi hafi unn
ið með gaslampa við skipið, en þvi
ér haldið fram að búið hafi verið
að slökkva á honum 1 y2 klst. áður
en eldurinn kom upp. Þá er upp-
MINNING
Ragnar H. B. Kristins-
son framkvæmdastjóri
Fæddur 17. febrúar 1906
Dáinn 15. marz 1963.
Lífið gengur sinn gang — og
vinur minn allur — horfinn í bili.
Um ættir Ragnars munu aðrir
greina, en hann var af traustum
stofni í báðar ættir.
Það er margs að minnast frá
fyrstu kynnum í Rafmagnsverzlun
Jóns Sigurðssonar. Var bókhaldari
þar um skeið, síðan aðaldriffjöðrin
í umfangsmiklu fyrirtæki föður
síns og eftir lát hans tók hann
ásamt bróður sínum við rekstrin-
um öllum og farnaðist vel, eins og
allt, sem hann tók að sér.
Ragnar er mér fyrst og fremst
minnisstæður haustið 1928, er ég
byrjaði í leikfimisflokki í Glímufé-
laginu Ármann — hann var fyrir-
liðinn — alltaf fremstur og allir
félagarnir, sem fyrir aftan stóðu,
lærðu af honum prúðmennsku og
háttvísi. Ef einhver óhöpp, veik-
indi, slys eða annað kom fyrir hjá
kunningjunum, þá gekk hann fram
fyrir skjöldu, en hinir komu á eftir,
að öðrum ólöstuðum. Einn úr þess-
um vinahóp sagði við mig eftir Iát
hans, að hann myndi leggja á sig
að bera hann til hinztu hvíldar
hvaðan sem væri af Iandinu, enda
var hann með afbrigðum vinsæll
og hrókur alls fagnaðar í vinahóp,
enda veit ég og að aldrei féll
skuggi á'vináttu okkar gömlu fé-
laganna í leikfimisflokki Ármanns.
Ragnar, ég þakka þér vináttuna
og Ieyfi mér að mæla fyrir munn
gömlu félaganna á sama hátt.
Eftirlifandi eiginkonu og börnurn
votta ég dýpstu samúð.
Ragnar heldur áfram að gera
garðinn frægan. Hann gengur fyrst-
ur. Guðm. Kristjánsson.
lýst að starfsmenn Burmeister og
Wain voru að vinna við logsuðu
um morguninn og enn væri sá
möguleiki fyrir hendi að einhver
hefði af mistökum kastað logandi
sígarettu niður. '
Viggo Maack'verkfræðingur, um-
boðsmaður Eimskipafélagsins háfði
strax talað við yfirverkfræðing
Burmeister og Wain þegar hann
frétti að olían hefði runnið út.
Sagði hann að yfirverkfræðingur-
inn hefði viðurkennt að sökin væri
skipasmíðastöðvarinnar og hefði
hann fallizt á að stöðin yrði að
taka á sig kostnað við hreinsun
olíunnar úr kvínni.
Enn hefur skaðinn ekki verið met
inn til fulls, en Iauslega er áætlað
að hann némi 6—8 milljónum
danskra, króna, eða allt upp undir
50 milljónir íslenzkra króna.
Sjóslys —
Framhald af bls. 1.
upp. En þá var skipstjórinn sjálf
ur uppgefinn og sökk í sjóinn.
En öðrum skipverjum sem kom-
ust í björgunarbátinn tókst að
draga hann upp á línunni og
þannig að bjarga honum.
Öll skiphöfnin héls sér uppi
með sundi í sjónum og sýndu
þeir mikið þrek, sérstaklega einn
skipverjanna Óskar Þórarinsson,
sem hafði rekið langt frá gúmmí
bátnum, en tókst að synda að
honum. En loks voru það þó
aðeins átta skipverjar, sem
höfðu komizt upp f gúmmíbát-
inn, tveir voru týndir.
Skipbrotsmennirnir tóku nú
fram neyðarblys, sem geymd
eru í gúmmíbátnum og kveiktu
á þeim. Bar það þann árangur
að skipverjar á bátnum Halkí-
on, sem var þárna skammt frá
urðu neyðarblysanna varir. Þeir
sendu þegar út neyðarkall gegn-
um radiötækin og sigldu á slys-
staðinn. — Voru þeir innan
skamms komnir að gúmmíbátn-
um og björguðu skipsbrotsmönn
unum.
Þetta er í þriðja skiptið sem
skipshöfnin á Halkíon er svo
gæfusöm að bjarga skipbrots-
mönnum, hitt var björgun skips
manna af Blátindi og Bergi frá
Vestmannaeyjum. Þá má og
geta þess, að í gær urðu skip-
verjar á Halkíon þess varir að
eldur var kominn upp f bátn-
um Tjaldi í Vestmannaeyja-
höfn og vegna þess hve fljótt
þeir urðu eldsins varir tókst
að slökkva hann áður en meira
tjón hlytist af.
Nú leita sem fyrr segir, 16
bátar á slysstaðnum að þeim
tveimur mönnum sem týndir
eru og auk þess Douglas-flug-
vélin Glófaxi frá Flugfélaginu.
Með flugvélinni eru Karl Schi-
öth, flugstjóri og Geir Gísla-
son aðstoðarflugstjóri og fimm
menn frá Landhelgisgæzlunni,
þeirra á meðal Garðar Pálsson,
sjóliðsforingi, og Guðjón Jóns-
son flugstjóri. ,
Erlingur IV. var einn af Svi-
þjóðarbátunum, byggður 1947
úr eik.
FÉLAGSIÍF
Ármenningar! Skiðafólk!
Farið verður í Jósepsdal n.k.
laugardag. Nógur snjór og brékk-
ur við állra hæfi. Ódýrt fæði á
staðnum. Farið frá BSR kl. 2 og 6
Stjórnin.
Jarðarför
VALTÝS STEFÁNSSONAR ritstjóra
fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 23. marz kl. 10.30.
Kirkjuathöfninni verður útvarpað.
Aðstandendur.