Vísir - 06.04.1963, Side 1
Húsnæðismálastjórn:
Stærsta úthlutunin
Húsnæðismálastjórn-
in er nú í þann veginn að
Ijúka við stærstu úthlut
un úr sjóðum sínum,
sem nokkru sinni hefir
verið veitt til húsbyggj-
enda.
Um helgina mun Húsnæðis-
málastjórn senda út tilkynning-
ar til þeirra sem Ián hafa hlot-
ið að þessu sinni og eru þær
væntanlegar til viðtakenda
skömmu eftir helgi.
í gær var ekki enn vitað ná-
kvæmlega hver heildarupphæð-
in er sem úthlutað hefir verið,
en Vísir mun skýra ýtarlega frá
því á mánudaginn.
Ný lögreglustöð
reist á Akureyri
VIÐEY
sigla út í Viðey, á þær
fornu söguslóðir.
Er líklegt að rúmir 200 nem-
endur f gagnfræðadeild skólans
hafi tekið þátt í þessari för
sem varð mjög ánægjuleg og til
þess fallin að auka söguþekk-
ingu þeirra á öld Skúla Magn-
ússonar fógeta og tímum
Stephensenanna.
Unglingarnir fengu starfs-
menn Slysavarnafélagsins til að
koma og hjálpa sér yfir sundið
og var björgunarbáturinn Gísli
J. Johnsen tekinn í flutningana.
Þurfti hann að fara fimm ferðir
með unglingana báðar leiðir.
Flugfélagið svarar ekki bréfí
frá Flugráði um flugöryggi
Ákveðið hefur verið að hefja
nú þegar í vor byggingu nýrrar
lögreglustöðvar og fanga-
geymslu á Akureyri. Er og ætl-
unin að bifreiðaeftirlitið á
Akureyri verði þar til húsa og
einnig fái veðurstofan þar inni
til að koma fyrir tækjum til
jarðskjálftamælinga.
Nýja lögreglustöðin verður
staðsett á klöppunum vestan
við Brekkugötu þar sem gamla
grjótnám bæjarins var.
Teikningu að lögreglustöðinni
gerði Ragnar Emilsson i Reykja
vík og verður húsið um 3 þús-
und rúmmetrar á stærð.
Ríki og Akureyrarbær leggja
sameiginlega fram fé til bygg-
ingarinnar og verður byggingin
hafin alveg á næstunni. Ekki
er þó búizt við að húsið verði
gert meira en fokhelt í sumar.
Nú í vikunni fóru nem veðrið var svo hagstætt
endur úr Vogaskólanum og völdu þeir þann kost-
í skemmtiferð, þar sem inn sem ágætur var að
VISIR
Að undanfömu hafa
nokkrir allháttsettir og
ábyrgir starfsmenn ís-
lenzku flugfélaganna,
bæði hjá Loftleiðum og
Flugfélaginu verið að
skrifa greinar í blöðin,
þar sem þeir láta í það
w
Vísir kemur næst út á
mánudaginn og verður
blaðið þá tvöfalt, 24 síð-
ur vegna mikilla auglýs-
inga, en efnið fjölbreytt-
ara vegna stækkunar
blaðsins.
skína eða segja berum
orðum, að fyllsta örygg
is sé ekki gætt með því
að leyfa hinum stóm
Cloudmaster-flugvélum
DC-6B að lenda og taka
sig til flugs af Reykja-
víkurflugvelli yfir Mið-
bæinn.
Vegna þessara skrifa ákvað
Flugráð þann 23. marz s.l. að
rita stjórnendum þessara flug-
félaga og benda þeim á þessi
skrif starfsmanna þeirrá, sem
sumir væru ábyrgðarmiklir
starfsmenn innan félaganna og
var þess óskað, að stjórnir
flugfélaganna létu þegar I stað
í ljósi hvort þetta væri rétt að
eigi væri gætt nægilegs öryggis
í sambandi við flugvélar þeirra.
★
Flugfélagið Loftleiðir hefur
þegar svarað þessu bréfi og
lýst því yfir að skrif starfs-
manna um þessi mál séu óvið-
urkvæmileg og óheppileg í
hæsta máta. Lýsa Loftleiðir því
yfir að fyllsta öryggis sé gætt
í öllum flugferðum félagsins
um Reykjavíkurflugvöll. En auk
þess sem Loftleiðir fylgja loft-
ferðareglum fara þau eftir ör-
yggisreglum Pan American sem
eru ennþá strangari.
Hitt vekur hins vegar meiri
athygli, að Flugfélag Islands
hefur ekki svarað fyrirspurn
Flugráðs um þetta mál og virð-
Hér birtist mynd, sem tekin
var í þessu ferðalagi á sögu-
slóðir. Sjást þar nokkrir nem-
endanna þar sem þeir eru að
klifra niður stiga úr bátnum í
vörinni rétt fyrir neðan Við-
eyjarstofu.
Framhald á bls. 5
SKlÐAHÓTELIB FULL T
Yfir 100 manns hafa þegar
pantað gistirúm I Skíðahótelinu
nýja í Hlíðarfjalli við Akureyri.
Flestir gestirnir koma sunnan
frá Reykjavík. Nú er unnið að
því dag og nótt að ljúka bygg-
ingunni svo að allt verði til-
búið að taka á móti gestunum.
Ýtarleg dagskrá hefur verið
samin til að gera páskagestun-
um dvölina sem skemmti-
legasta. Skipulagðar verða dag-
legar gönguferðir á skíðum og á
fólk að skiptast í þrjá hópa,
ýmist langar eða stuttar göngur
allt eftir gönguhæfileikum fólks
ins.
Skíðakennsla fer þar fram
alla daga undir stjórn kunns
skfðamanns, Sigtryggs Sig-
tryggssonar. Þá mun Flosi
Ólafsson stjórna kvöldvökum
bæði með aðfengnum skemmti-
kröftum auk þess sem þess er
vænzt að dvalargestir vilji
leggja sitt af mörkum til að
gera kvöldvökurnar skemmti-
legar.
Á páskadag verður svo efnt
til skíðamóts meðal dvalargesta
og keppt þar líkt og um íslands
mót væri að ræða. Þá er þess
vænzt að nokkrir reykvískir
keppendur frá landsmótinu á
Siglufirði komi við á Akureyri
á heimleið og taki ásamt skíða-
mönnum frá Akureyri og Eyja-
firði þátt í skíðakeppni I Hlíð-
arfjalli.